Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskólinn á Akureyri

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

19. nóvember 2020

Útgáfudagur

4. desember 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1211/2020

19. nóvember 2020

REGLUR

um gjaldskrá Háskólans á Akureyri vegna þjónustu við nemendur og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds.

1. gr. Öflun tekna til viðbótar við fjárframlög.

Háskólanum á Akureyri er heimilt að afla sér tekna til viðbótar við framlög á fjárlögum. Reglur þessar eru settar af háskólaráði Háskólans á Akureyri samkvæmt 24. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008.

2. gr. Skrásetningargjald.

Skrásetningargjald við skráningu í nám kr. 75.000
Skrásetningargjald, nýskráning á vormisseri kr. 55.000
Leyfi til skrásetningar utan skrásetningartímabils kr. 11.250
Skrásetningargjald, öryrkjar (gegn staðfestingu á örorkumati) kr. 37.500

Með greiðslu skrásetningargjalds staðfestir umsækjandi skólavist við Háskólann á Akureyri. Skrásetningargjald við skráningu í nám nær til heils skólaárs en þeir nemendur sem fá heimild til að hefja nám á vormisseri greiða hluta skrásetningargjalds.

Afsláttur af skrásetningargjaldi er veittur nemendum er búa við örorku eða fötlun gegn staðfestingu á örorkumati.

3. gr. Skrásetningartímabil og greiðslur.

  1. Þegar umsókn um skólavist hefur verið samþykkt geta umsækjendur greitt skrásetningargjald í gegnum rafræna kortagreiðslugátt eða með greiðslukröfu í netbanka umsækjandans.
    Eindagi skrásetningargjalds er 5. ágúst vegna skrásetningar í nám, þ.e. nýskráningar og áframhaldandi nám. Beri eindaga upp á helgidag eða almennan frídag, færist eindagi til næsta virka dags þar á eftir. Fyrir nýskráningu á vormisseri skal greiða skrásetningargjald fyrir 10. desember og staðfesta þar með skrásetningu sína.
    Skrásetningartímabili lýkur þann 5. ágúst bæði fyrir nýnema og aðra nema.
  2. Greiðsluheimild fellur úr gildi á eindaga, 5. ágúst. Frá 6. ágúst til og með 15. ágúst geta nemendur óskað eftir leyfi til greiðslu á skrásetningargjaldi eftir lok skrásetningartímabils, reiknast þá 15% álag á gjaldið.
    Hafi skrásetningargjaldið auk álags ekki verið greitt þann 15. ágúst er litið svo á að viðkomandi hyggist ekki stunda nám við Háskólann á Akureyri á komandi skólaári. Falli 15. ágúst á helgidag eða almennan frídag, færist frestur til greiðslu á skrásetningargjaldi auk álags til næsta virka dags þar á eftir.
    Viðbótargjald vegna leyfis til skrásetningar utan skrásetningartímabils er ætlað til að mæta aukinni vinnu og kostnaði vegna innritunar.
  3. Alþjóðlegir nemar sem samþykktir hafa verið sem skiptinemar í gegnum áætlanir Nordplus, Erasmus og North2North, eða frá skólum sem eru með tvíhliða samninga við Háskólann á Akureyri, eru undanþegnir greiðslu skrásetningargjalds við HA hafi þeir greitt skrásetningargjald við sinn heimaskóla.
  4. Samþykktir gestanemendur frá opinberum háskólum á Íslandi eru undanþegnir greiðslu skrásetningargjalds hafi þeir greitt skrásetningargjald við sinn skóla.

4. gr. Endurgreiðsla skrásetningargjalds.

  1. Skrásetningargjald er ekki endurgreitt ef nemandi hættir námi. Skrásetningargjald er ekki endurgreitt, nema að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:

    1.1 Ef ákvarðanir háskóladeilda eða annarra opinberra aðila raska forsendum stúdents fyrir því að hefja nám. Rökstutt erindi þar að lútandi skal sent nemendaskrá fyrir 5. nóvember vegna haustmisseris en 5. febrúar á vormisseri. Verði erindi þess efnis samþykkt nemur endurgreiðsla einungis 75% skrásetningargjaldsins.
    1.2 Ef nemandi getur ekki stundað nám vegna veikinda getur hann fengið 75% gjaldsins endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs fram til 5. nóvember á haustmisseri, hefji nemandi nám á haustönn, en 5. febrúar á vormisseri, hefji nemandi nám á vorönn.
    1.3 Endurgreiðsla afsláttar á skrásetningargjaldi vegna örorku eða fötlunar miðar einungis við yfirstandandi skólaár.

5. gr. Gjaldskrá vegna aðgangs að húsnæði HA.

Nemendur aðgangsbaunar kr. 2.000
Gestabaun kr. 2.000
Ný baun í stað glataðrar aðgangsbaunar (nemendur og gestir) kr. 2.000
Skilagjald baunar kr. 1.500
Kostnaður felst í baun með örgjörva og skráningarferli.

6. gr. Gjaldskrá vegna þjónustu bókasafns Háskólans á Akureyri.

1. Lánþegaréttindi:
Nemendur/starfsmenn kr. 0
Lánþegaréttindi og kort kr. 4.500
2. Dagsektir:
Mánaðarlán og hálfsmánaðarlán, pr. dag kr. 50
Skammtímalán úr námsbókasafni, pr. dag kr. 100
3. Millisafnalán:
Bækur frá innlendum söfnum kr. 1.500
Bækur frá Norðurlöndunum kr. 2.500
Bækur frá erlendum söfnum utan Norðurlandanna kr. 3.800
Ljósrit greina, 1-20 bls. kr. 1.500
Ljósrit greina, 21 bls. eða fleiri kr. 2.500
Nemendur Háskólans á Akureyri greiða hálft gjald fyrir millisafnalán
Gjald fyrir rit sem glatast kr. 8.000
4. Plöstun:
Plöstun á A4 blaði, pr. blað kr. 100
5. Ljósritun og prentun:
A4 - einstök blöð öðru megin - svart/hvítt kr. 10
A4 - einstök blöð báðum megin - svart/hvítt kr. 15
A3 - einstök blöð öðru megin - svart/hvítt kr. 20
A3 - einstök blöð báðum megin - svart/hvítt kr. 30
A4 - einstök blöð öðru megin - í lit kr. 20
A4 - einstök blöð báðum megin - í lit kr. 30
A3 - einstök blöð öðru megin - í lit kr. 40
A3 - einstök blöð báðum megin - í lit kr. 60
Þjónustugjaldi er bætt við ef starfsmenn prenta fyrir viðkomandi, kr. 10 pr. blað.
Ofangreind gjöld miðast við áætlaðan efnis- og rekstrarkostnað prentara, kostnað vegna korta og prentunar á þau og hefðbundin bókasafnsgjöld svo sem millisafnalán og dagsektir.

7. gr. Gjaldskrá þjónustuborðs nemendaskrár.

1. Útprentanir á þjónustuborði:
Vottorð til nemanda kr. 350
Námsferilsyfirlit kr. 350
Námskeiðalýsingar kr. 2.000
Nemendur geta nálgast yfirlit yfir námskeið á námsferli sínum í Uglu án endurgjalds. Við brautskráningu fá nemendur afhent brautskráningarskírteini, brautskráningarferil auk viðauka með prófskírteini á íslensku og ensku.
Óski nemandi eftir staðfestu yfirliti eða vottorði að auki er innheimt gjald fyrir það.
Gjald miðast við áætlaðan prent- og blaðakostnað. Sé óskað eftir gögnum í pósti er póstburðargjald innheimt samkvæmt gjaldskrá Póstsins.
2. Endurskráning í námskeið:
Endurskráning í námskeið kr. 5.000
Gjald fyrir endurskráningu í námskeið miðast við kostnað vegna vinnu við endurskráningu nemanda í námskeið sem sinnir ekki staðfestingu á skráningu í námskeið á auglýstum tíma á misserinu.

8. gr. Gjald fyrir próftöku.

Próftökugjald, seinni prófatíð kr. 5.000

Verð miðast við kostnað vegna prófumsýslu, breytileg laun umsjónarmanna, prófgögn, prófgæslu og póstkostnaðar þar sem við á.

9. gr. Gjaldskrá náms- og starfsráðgjafar.

Bendill, áhugakönnun kr. 6.000
Prófkvíðanámskeið kr. 5.000

Verð miðast við umsýslu, aðkeypta þjónustu, efniskostnað auk prentkostnaðar. Sé óskað eftir gögnum í pósti er póstburðargjald innheimt samkvæmt gjaldskrá Póstsins.

10. gr. Ráðstöfun skrásetningargjalds.

Skrásetningargjaldið er bókfært hjá sameiginlegum rekstri háskólans. Háskólaráð ráðstafar skrásetningargjaldi á þá kostnaðarliði sem falla undir gjaldið lögum samkvæmt.

Skrásetningargjaldi er ráðstafað á kostnaðarliði, skv. meðfylgjandi viðauka, vegna annarrar þjónustu við nemendur sem ekki telst til kostnaðar við kennslu og rannsóknarstarfsemi, vegna kynningarstarfs, nýnemadaga, alþjóðasviðs, þjónustu skrifstofustjóra, aðgangs að tölvukerfi og annarrar upplýsingaþjónustu.

Heimilt er að ráðstafa hlutfalli innheimtra skrásetningargjalda til Stúdentafélags Háskólans á Akureyri og Félagsstofnunar stúdenta í samræmi við gerða samninga við viðkomandi félög.

11. gr. Umsýslu- og afgreiðslugjald vegna erlendra umsókna.

Umsýslu- og afgreiðslugjald vegna umsókna nemenda með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins, að undanskildum Færeyjum og Grænlandi er 50 evrur.

Umsýslu- og afgreiðslugjald tekur mið af vinnu við að taka á móti hverri umsókn, fara yfir hana og tilheyrandi fylgigögn, eiga samskipti við umsækjendur m.a. ef fylgigögn vantar, meta umsókn og afgreiða hana. Miðað er við evrur þegar umsóknirnar koma erlendis frá.

12. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglur þessar, auk viðauka I, sem samþykktar voru í háskólaráði eru settar með stoð í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. einnig 41. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009 og taka þegar gildi. Jafnframt falla þá úr gildi reglur um gjaldskrá Háskólans á Akureyri vegna þjónustu við nemendur og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds nr. 596/2014 með áorðnum breytingum.

Háskólanum á Akureyri, 19. nóvember 2020.

Eyjólfur Guðmundsson rektor.

VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 4. desember 2020

Tengd mál