Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
13. janúar 2020
Útgáfudagur
27. janúar 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 40/2020
13. janúar 2020
AUGLÝSING
um álagningu opinberra gjalda á árinu 2020.
1. gr.
Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 29. maí 2020 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á menn. Álagningu lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 30. október 2020. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.
2. gr.
Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 13. janúar 2020.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
B deild - Útgáfud.: 27. janúar 2020