Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Flugmál

Undirritunardagur

22. mars 2018

Útgáfudagur

13. apríl 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 372/2018

22. mars 2018

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 176/1983 um þjóðernis- og skrásetningarmerki íslenskra loftfara.

1. gr.

Við reglurnar bætist ný grein, 10. gr., sem orðast svo:

Að því er varðar loftför sem bera sögulega nákvæm hernaðarleg auðkenni og merki, vegna fyrri notkunar þeirra sem hernaðarloftfara, er Samgöngustofu heimilt að samþykkja frávik frá reglum þessum.

2. gr. Gildistaka.

Reglur þessar eru settar með heimild í 9. gr. sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 22. mars 2018.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 13. apríl 2018

Tengd mál