Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Kópavogsbær

Málaflokkur

Kópavogur, Gatnagerðargjöld

Undirritunardagur

8. apríl 2013

Útgáfudagur

11. apríl 2013

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 322/2013

8. apríl 2013

SAMÞYKKT

um gatnagerðargjald fyrir Kópavogsbæ.

1. gr.

Almenn heimild.

Af öllum nýbyggingum, svo og stækkunum húsa, hvort sem er á eignarlóðum eða leigu­lóðum í Kópavogi, skal greiða gatnagerðargjald til bæjarsjóðs samkvæmt samþykkt þessari. Um gatnagerðargjald fer að öðru leyti eftir lögum um gatnagerðargjald nr. 153/2006 með síðari breytingum sem tóku gildi 1. júlí 2007.

2. gr.

Gjaldskylda.

Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, er gjaldskyldur samkvæmt sam­þykkt þessari og ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.

3. gr.

Ráðstöfun gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í Kópavogi og viðhalds gatna og annarra gatnamannvirkja. Ráðstöfun gjaldsins er óháð eignarhaldi gatna.

4. gr.

Gjaldstofn gatnagerðargjalds.

Af hverjum fermetra húss greiðist ákveðinn hundraðshluti byggingarkostnaðar pr. fer­metra í húsbyggingu eins og hann er hverju sinni í vísitöluhúsinu samkvæmt útreikn­ingi Hagstofu Íslands og var í apríl 2013 krónur 185.578 pr. fermetra. Gjald á fer­metra er í heilum krónum og er eins og hér segir fyrir:

     kr.

Einbýlishús með eða án tvíbýlisaðstöðu

15,0%

27.828

Raðhús, parhús, tvíbýlishús og keðjuhús

10,3%

19.108

Fjölbýlishús

4,9%

9.090

Verslunar-, skrifstofu- og iðnaðarhús

8,5%

15.769

Annað húsnæði

8,5%

15.769

Flatarmál húsa, sem gatnagerðargjald er greitt af, er brúttóflatarmál viðkomandi hús­bygg­ingar í lokunarflokknum A, að undanskildum svölum, sbr. ÍST 50.

Fjárhæðir gatnagerðargjalds breytast 1. dag hvers mánaðar í samræmi við breytingu á byggingarkostnaði vísitöluhússins samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987 um vísitölu byggingarkostnaðar.

Gatnagerðargjald skal innheimt ef reist er ný og stærri bygging í stað annarrar á sömu lóð sem stækkuninni nemur. Gildir þessi regla um byggingar sem samþykkt er bygg­ingarleyfi fyrir allt að fimm árum eftir að leyfi er gefið fyrir niðurrifi byggingar. Að öðrum kosti skal greiða fullt gatnagerðargjald. Ef hin nýja bygging er annarrar tegundar eða til annarrar notkunar en hið eldra húsnæði gilda ákvæði 5. mgr. þessarar greinar.

Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir endurbyggingu, breytingu eða breyttri notkun bygg­ingar þannig að hún færist í hærri gjaldflokk samkvæmt samþykkt sveitarfélagsins, sbr. 4. gr., skal greiða gatnagerðargjald af fermetrafjölda viðkomandi húsnæðis sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu.

5. gr.

Álagning gatnagerðargjalds.

  1. Þegar sveitarstjórn úthlutar eða selur lóð eða byggingarrétt á lóð skal leggja á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirra bygginga sem heimilt er að reisa á viðkomandi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
  2. Verði ekki lagt á gatnagerðargjald skv. a-lið, skal við samþykkt byggingarleyfis leggja á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem byggingarleyfi tekur til. Tekur ákvæði þetta einkum til þeirra mannvirkja sem reist eru á lóðum í eigu annarra en tilgreint er í a-lið.
  3. Ef samþykkt er byggingarleyfi fyrir stærri byggingu en álagning skv. a-lið var upphaflega miðuð við skal leggja á gatnagerðargjald (viðbótargjald) í samræmi við fermetrafjölda stækkunar, samkvæmt gildandi gjaldskrá við samþykkt bygg­ingarleyfis.
  4. Gatnagerðargjald skal lagt á við samþykkt byggingarleyfis ef reist er ný og stærri bygging í stað annarrar á sömu lóð sem nemur fermetrafjölda stækkunar.

6. gr.

Almenn lækkunarheimild.

Gatnagerðargjald skal lækka af íbúðarhúsnæði þegar svo stendur á sem segir í 1. - 3. tl. þessarar málsgreinar:

  1. Af kjallararýmum íbúðarhúsa sem myndast þegar hagkvæmara er að grafa út grunn en fylla hann upp skal greiða 25% af fermetragjaldi viðkomandi húss, enda sé húsrýmið gluggalaust og aðeins gengt í það innan frá.
  2. Af sameiginlegum bifreiðageymslum fyrir þrjár eða fleiri bifreiðar skal greiða 25% af fermetragjaldi þeirra húsa sem þær eiga að þjóna.
  3. Af auknu flatarmáli íbúðarhúsa 15 ára og eldri skal ekki greiða gatnagerðargjald, enda nemi stækkunin ekki meiru en 30 m² fyrir hverja íbúð. Tilheyri stækkunin sameign fjöleignarhúss skal meta hana eins og ef um stækkun einnar íbúðar væri að ræða. Við ákvörðun gatnagerðargjalds samkvæmt þessum tölulið skal meta í einu lagi þær stækkanir sem samþykktar hafa verið á sama húsi á næstu 5 árum á undan. Ákvæði þetta gildir einnig fyrir bílskúra, geymsluskúra og aðrar stakar byggingar á lóðum og svalaskýla íbúðarhúsa sem eru allt að 30 fermetrar eða minni.

Verði breytingar á húsnæði eða notkun húsnæðis sem undanþágur samkvæmt 1. eða 2. tl. 1. mgr. þessarar greinar taka til, þannig að það uppfylli ekki lengur skilyrði til lækk­unar gatnagerðargjalds, skal greiða gatnagerðargjald af því húsnæði samkvæmt gild­andi gjaldskrá að teknu tilliti til þess sem áður hefur verið greitt vegna sama hús­næðis.

7. gr.

Sérstök lækkunarheimild.

Bæjarstjórn er heimilt að lækka gatnagerðargjald um allt að 40% samkvæmt samþykkt þessari vegna nýbygginga sem koma í stað eldri húsa sem rifin eru og tekur lækkunin til mismunar á fermetrafjölda þeirrar byggingar sem rifin er og nýbyggingar. Lækkunin tekur til nýbygginga í vestur- og austurbæ Kópavogs eins og það svæði er afmarkað samkvæmt aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012. Nánar tiltekið er um að ræða vesturbæ Kópavogs vestan Hafnarfjarðarvegar og austurbæ Kópavogs austan Hafnarfjarðarvegar að Reykjanesbraut og í norðri frá Fossvogsdal og að Kópavogslæk í suðri. Hin sérstaka lækkunarheimild er bundin við sérstakar aðstæður, svo sem vegna þéttingar byggðar, atvinnuuppbyggingar eða lítillar ásóknar í viðkomandi lóð. Lækkunin gildir um framkvæmdir sem útgefið byggingarleyfi gildir fyrir frá gildistöku samþykktar þessarar.

Bæjarstjórn er enn fremur heimilt að lækka eða fella niður gjöld vegna sérhæfðs félags­legs húsnæðis, svo sem sambýla fyrir fatlaða, þjónustuíbúða fyrir aldraða og félags­legs leiguhúsnæðis enda sé slíkt húsnæði í eigu stofnana, félagasamtaka eða félaga sem ekki eru rekin í ágóðaskyni. Þinglýsa skal kvöð á umrætt húsnæði um að greiða skuli gatnagerðargjald af því ef það fellur af einhverjum ástæðum ekki lengur undir ákvæði þetta.

8. gr.

Gjalddagi og eindagi gatnagerðargjalds.

70% af álögðu gatnagerðargjaldi samkvæmt hámarksbyggingarmagni á lóð miðað við gildandi deiliskipulag, skv. a. lið 5. gr., fellur í gjalddaga við úthlutun eða sölu á lóð eða byggingarréttar á lóð sem er í eigu Kópavogsbæjar eða hann hefur ráðstöfunarrétt á. Það byggingamagn sem samþykkt er umfram 70% af heildarbyggingarmagni á lóð miðað við gildandi deiliskipulag, skv. a. lið 5. gr. fellur í gjalddaga við samþykkt byggingarleyfis.

Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.

Gatnagerðargjald skv. b. til d. lið 5. gr. fellur í gjalddaga við samþykkt byggingarleyfis.

Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.

9. gr.

Innheimta vangreidds gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald ber dráttarvexti samkvæmt ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá gjalddaga.

Gatnagerðargjald ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði er tryggt með lögveðsrétti í við­komandi fasteign með forkaupsrétti fyrir hverju samningsveði og aðfaraveði í tvö ár frá gjalddaga.

Gatnagerðargjald er aðfararhæft án undangengis dóms eða stjórnvaldsúrskurðar.

Ef lóðarhafi greiðir ekki gatnagerðargjald á þeim gjalddögum sem kveðið er á um í úthlut­unar- eða byggingarskilmálum er Kópavogsbæ heimilt að afturkalla úthlutun.

Sveitarstjórn skal með 30 daga fyrirvara senda lóðarhafa með sannanlegum hætti við­vörun um hina fyrirhuguðu afturköllun áður en lóðarúthlutun er afturkölluð.

10. gr.

Endurgreiðsla gatnagerðargjalds.

Kópavogsbær endurgreiðir gatnagerðargjald innan 90 daga ef lóðarúthlutun er aftur­kölluð eða ógilt eða lóð skilað. Sama gildir um gatnagerðargjald sem lagt hefur verið á við samþykkt byggingarleyfis, skv. b. til d. lið 5. gr., en í þeim tilvikum skal endur­greiða gatnagerðargjaldið innan 90 daga frá því að byggingarleyfishafi hefur sannan­lega krafist greiðslu. Fjárhæð greidds gatnagerðargjalds á lóðum sem úthlutað var fyrir 5. mars 2009 skal verðbætt miðað við vísitölu neysluverðs frá greiðsludegi til endur­greiðslu­dags sbr. 4. gr. laga nr. 6/2009 um breytingu á lögum um tekjustofna sveitar­félaga, nr. 4/1995, lögum um gatnagerðargjald, nr. 153/2006, með síðari breyt­ingum. Gatnagerðargjald af lóðum sem úthlutað var síðar, verðbætist ekki. Við greiðslu­drátt reiknast dráttarvextir á fjárhæðina samkvæmt ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá gjalddaga.

11. gr.

Kæruheimild.

Heimilt er að kæra ákvörðun sem Kópavogsbær tekur á grundvelli laga nr. 153/2006 um gatnagerðargjald eða á grundvelli samþykktar þessarar til úrskurðar ráðherra sem fer með sveitarstjórnarmál. Kærufrestur er þrír mánuðir frá því að aðili fékk vitneskju um ákvörðunina. Kæruheimild þessi skerðir þó ekki rétt aðila til að höfða mál fyrir dóm­stólum.

Komist ráðherra að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Kópavogsbæjar hafi ekki verið í sam­ræmi við lög getur hann ógilt ákvörðunina og eftir atvikum lagt fyrir Kópavogsbæ að taka nýja ákvörðun

12. gr.

Gildistaka og lagaskil.

Samþykkt þessi var gerð af bæjarstjórn Kópavogsbæjar þann 26. mars 2013.

Samþykktin öðlast gildi við birtingu og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Um álagningu og innheimtu gatnagerðargjalds sem gjaldfallið er í tíð eldri gjald­skrár fer samkvæmt þeirri gjald­skrá.

Samningar um gatnagerðargjald af tilteknum lóðum sem lóðarhafar eða lóðareigendur hafa gert við Kópavogsbæ svo og skilmálar varðandi gatnagerðargjald sem Kópavogs­bær hefur sett og lóðarhafi eða lóðareigandi hefur undirgengist, halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði í samþykkt þessari, nema aðilar séu um annað sáttir.

Þrátt fyrir gildistöku þessarar samþykktar gildir ákvæði 1. tl. ákvæða til bráðabirgða í lögum nr. 153/2006 um gatnagerðargjald.

Samþykkt þessi er sett með heimild í 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006.

Samþykktin öðlast þegar gildi.

F.h. bæjarstjórnar Kópavogsbæjar, 8. apríl 2013,

Gísli Norðdahl

byggingarfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 11. apríl 2013

Tengd mál