Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
14. desember 2016
Útgáfudagur
29. desember 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1203/2016
14. desember 2016
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu.
1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
25% launatekna þeirra erlendu sérfræðinga sem hlotið hafa staðfestingu nefndar á því að þeir uppfylli skilyrði 6. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, allt að þremur árum frá ráðningu í starf.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, öðlast gildi 1. janúar 2017.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 14. desember 2016.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
B deild - Útgáfud.: 29. desember 2016