Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Iðnaðarráðuneytið (2001-2012)
Málaflokkur
Orkumál, Gullbringusýsla, Reykjanesbær
Undirritunardagur
27. janúar 2010
Útgáfudagur
29. janúar 2010
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 64/2010
27. janúar 2010
GJALDSKRÁ
HS veitna hf. fyrir heitt vatn. Suðurnes.
I. KAFLI
1. gr.
HS veitur hf. selja afnot af heitu vatni úr veitukerfum þeim, sem gerð hafa verið og verða gerð, eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari.
2. gr.
HS veitur hf. láta hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar, í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til fullrar hitunar, enda séu ofnar hússins nægilega stórir, að dómi HS veitna hf.
Verður vatnsrennsli að húsinu takmarkað um hemil, eftir því sem þörf krefur.
II. KAFLI
3. gr.
Fyrir afnot af heita vatninu skal húseigandi greiða samkvæmt magnhemli.
| án vsk. | m. vsk. | ||||
| Húshitun | m/l á ári | (80°C) | 34.082,00 | 36.014,00 | kr. |
| Húshitun | m/l á dag | (80°C) | 93,38 | 99,00 | kr. |
| Húshitun | m/l á ári | (90°C) | 38.343,00 | 40.517,00 | kr. |
| Húshitun | m/l á dag | (90°C) | 105,05 | 111,00 | kr. |
Verði um sölu á heitu vatni að ræða í öðru formi en að framan greinir, skal verðið ákveðið hlutfallslega, skv. mæli:
| án vsk. | m. vsk. | |||
| Til húshitunar | (80°C) | 95,66 | 101,08 | kr./m³ |
| Til húshitunar | (90°C) | 105,25 | 111,22 | kr./m³ |
| Til annarra nota | 95,66 | 120,05 | kr./m³ | |
| Til iðnaðar, sem verulegur hluti framleiðslukostnaðar | 52,62 | 66,04 | kr./m³ | |
4. gr.
HS veitur hf. leigja vatnsmæla og hemla og annast viðhald þeirra. Leigan fyrir mæli eða hemil skal greidd jafnhliða gjaldi fyrir vatnsnotkun og skal vera fyrir hvern mæli eða hemil sem hér segir:
| án vsk. | m. 7,0% vsk. | m. 25,5% vsk. | ||
| Mælir eða hemill allt að 20 mm | 6.378,00 | 6.740,00 | 8.004,00 | kr./ár |
| Mælir eða hemill allt að 20 mm | 17,47 | 18,46 | 21,93 | kr./dag |
| Mælir eða hemill 25 - 50 mm | 12.778,00 | 13.503,00 | 16.036,00 | kr./ár |
| Mælir eða hemill 25 - 50 mm | 35,01 | 36,99 | 43,94 | kr./dag |
| Mælir eða hemill 65 mm og stærri | 25.532,00 | 26.980,00 | 32.043,00 | kr./ár |
| Mælir eða hemill 65 mm og stærri | 69,95 | 73,92 | 87,79 | kr./dag |
5. gr.
Hitaveitugjöld skv. 3. og 4. gr. má krefja mánaðarlega. Gjalddagi hitaveitugjalda er við framvísun reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Sé reikningurinn ekki greiddur við fyrstu sýningu, ber gjaldanda að greiða hann, þar sem HS veitur hf. ákveða. Það eru vanskil, ef gjöldin eru ekki að fullu greidd innan 15 daga frá gjalddaga.
6. gr.
Heimæðargjald skal greitt fyrir hverja heimæð er tengir hús við veitukerfi HS veitna hf. Heimæðargjald skal greitt þegar lagningu heimæðar er lokið.
Heimæðargjald skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð:
| Rúmmál húss utanmál m³ | án vsk. | m. vsk. | ||
| Allt að 400 m³ | 160.711,00 | 169.823,00 | kr. | |
| Yfir 400 - 2000 m³ | 131,13 | 138,57 | kr./m³ | |
| 2.000 m³ | 370.539,00 | 391.549,00 | kr. | |
| Yfir 2.000 - 6.000 m³ | 107,83 | 113,94 | kr./m³ | |
| 6.000 m³ | 801.947,00 | 847.417,00 | kr. | |
| Yfir 6.000 - 10.000 m³ | 95,43 | 100,84 | kr./m³ | |
| 10.000 m³ | 1.183.635,00 | 1.250.747,00 | kr. | |
| Yfir 10.000 m³ | 83,01 | 87,72 | kr./m³ | |
| Bráðabirgðatenging | t.d. vinnuskúrar | 26.356,00 | 27.850,00 | kr. |
Nú eru fleiri en eitt hitunarkerfi í húsinu með sérstökum hemlum eða mælum frá HS veitum hf og skal þá greiða fyrir hverja grind:
| án vsk. | m. vsk. | |||
| Aukagrind | 19.929,00 | 21.059,00 | kr. |
III. KAFLI
7. gr.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka lögtaki á kostnað húseiganda.
8. gr.
HS veitur hf. hafa rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Heimilt er að loka vatnsrennsli að húsi, sem hitaveitugjöld eru vangreidd af.
Fyrirætlun um að loka, ber að tilkynna með minnst 5 daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá, sem vanskilum veldur hverju sinni.
| án vsk. | m. vsk. | |||
| Opnunargjald | 4.804,00 | 5.981,00 | kr. |
9. gr.
Eftirlitsmanni HS veitna hf. skal hvenær sem er frjáls aðgangur að öllum hemlum, mælum, hitagjöfum og vatnsæðum sem eru í sambandi við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerðir á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu.
10. gr.
Virðisaukaskattur, 7,0%, bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, nema á sölu vatns til annars en húshitunar og opnunargjaldi þar sem virðisaukaskatturinn er 25,5%. Í útreikningi á 7,0% vsk. hefur verið tekið tillit til endurgreiðslu ríkissjóðs á vsk. Í gjaldskránni er ekki tekið tillit til 2% orkuskatts á smásölu verð.
IV. KAFLI
11. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af stjórn HS veitna hf., staðfestist hér með til að öðlast gildi við birtingu og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis, nr. 129/2008, með síðari breytingum.
Iðnaðarráðuneytinu, 27. janúar 2010.
F.
h.
r.
Kristján
Skarphéðinsson.
Guðjón Axel Guðjónsson.
B deild - Útgáfud.: 29. janúar 2010