Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húnabyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Húnavatnssýslur
Undirritunardagur
28. nóvember 2025
Útgáfudagur
2. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1289/2025
28. nóvember 2025
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi í Húnabyggð.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Brautarhvamms, ferðaþjónustu- og útivistarsvæðis.
Sveitarstjórn Húnabyggðar samþykkti 27. nóvember 2025 óverulega breytingu á deiliskipulagi Brautarhvamms, ferðaþjónustu- og útivistarsvæðis. Breytingin varðar svæði 2 þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu þjónustuhúss og fimm gistieiningum og lagfæringu á afmörkun svæðis sem merkt er þjónustuhús að Brautarhvammi 5. Hámarksstærð gistieininga er 40 m² og þjónustuhúss 400 m². Þakhalli skal vera 14-40°, mænisstefna skal taka mið af núverandi húsum en þakform er að öðru leyti frjálst. Vegghæð er að hámarki 2,7 m og mænishæð er að hámarki 5,0 m frá gólfplötu. Lóð Brautarhvamms 5 stækkar úr 1.116 m² í 1.263 m² og lóð áfanga 4 minnkar úr 2.393 í 2.254 m².
Málsmeðferð var í samræmi við 2. mgr 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Húnabyggð, 28. nóvember 2025.
Börkur Ottósson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 2. desember 2025