Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
21. ágúst 2023
Útgáfudagur
5. september 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 907/2023
21. ágúst 2023
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.
1. gr. Almenn ákvæði.
2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktun er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir sem koma eiga til framkvæmda eru og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
2. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr., í réttri númeraröð:
| 1.33 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1592 frá 3. ágúst 2023 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.33. | |
| 1.34 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1601 frá 3. ágúst 2023 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.34. | |
| 2.40 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/1591 frá 3. ágúst 2023 um framkvæmd 8. gr. a í reglugerð (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.40. | |
| 2.41 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/1594 frá 3. ágúst 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.41. |
2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 68/2023.
3. gr. Viðurlög.
6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna skal sæta viðurlögum skv. 37. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.
4. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 21. ágúst 2023.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 5. september 2023