Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Sveitarstjórnarmál, Akranes
Undirritunardagur
18. maí 2026
Útgáfudagur
9. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 650/2026
18. maí 2026
SAMÞYKKT
um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar.
I. KAFLIUm skipan bæjarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.
1. gr.Skipan bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar er skipuð 9 bæjarfulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum bæjarfélagsins samkvæmt kosningalögum.
2. gr.Sjálfstætt stjórnvald.
Akraneskaupstaður er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni bæjarstjórn í umboði íbúa bæjarfélagsins.
3. gr.Verkefni bæjarfélagsins.
Akraneskaupstaður annast þau lögmæltu verkefni sem honum eru falin í lögum, sbr. og leiðbeinandi auglýsingu frá því ráðuneyti sem fer með málefni sveitarfélaga. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.
Akraneskaupstaður vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.
Akraneskaupstað er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa hans, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.
II. KAFLI Um bæjarstjórn.
4. gr.Hlutverk bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn fer með stjórn Akraneskaupstaðar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. síðari breytingar, annarra laga og samþykkt þessari.
Bæjarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.
5. gr.Verkefni bæjarstjórnar.
Meðal verkefna bæjarstjórnar er að:
- Sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum bæjarfélagsins.
- Kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, ráð, stjórnir og aðrar nefndir, skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá bæjarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga.
- Setja bæjarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Ákveða stjórnskipan bæjarfélagsins, ráða bæjarstjóra, sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður bæjarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna.
- Móta stefnu fyrir starfsemi bæjarfélagsins, sviða, fyrirtækja og deilda. Setja starfsemi bæjarins reglur, m.a. um ábyrgðarmörk ráða, stjórna og nefnda, kjörinna fulltrúa og embættismanna, gjaldskrár o.þ.h., eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
- Fara með fjárstjórnarvald bæjarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjárhagsáætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
- Bera ábyrgð á fjármálum bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar bæjarfélagsins til lengri tíma.
- Hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
- Veita íbúum bæjarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem bæjarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Setja nefndum, ráðum og stjórnum erindisbréf, þar sem kveðið er á um hlutverk þeirra, valdsvið og starfshætti í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir bæjarstjórnar.
6. gr.Ný bæjarstjórn tekur til starfa.
Nýkjörin bæjarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur fráfarandi bæjarstjórn umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af kosningalögum. Nýkjörin bæjarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarðana um málefni bæjarstjórnarinnar eða bæjarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.
Sá fulltrúi í nýkjörinni bæjarstjórn sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til forseti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.
Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.
7. gr.Kjör forseta og varaforseta.
Á fyrsta fundi kýs bæjarstjórn forseta og tvo varaforseta og skulu þeir kjörnir til eins árs í senn. Njóti forseti eða varaforseti ekki lengur stuðnings bæjarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju.
Hið sama á við ef forseti eða varaforseti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu forseta og varaforseta til ráðuneytis sveitarstjórnarmála þegar að því loknu.
Sá telst rétt kjörinn forseti sem fær atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meirihluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.
Þegar að lokinni kosningu forseta skal kjósa fyrsta og annan varaforseta. Kosning varaforseta fer fram með sama hætti og forseta.
Varaforsetar gegna störfum forseta í réttri töluröð embættanna. Sé enginn forseti á fundi gegnir aldursforseti störfum forseta nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.
III. KAFLIFundir bæjarstjórnar og fundarsköp.
8. gr.Fundir bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn heldur reglulega fundi, sbr. 11. gr. samþykktar þessarar, tvisvar í hverjum mánuði, annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar í fundarsal bæjarstjórnar. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 17.00.
Aukafundi skal halda í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarstjórnarmanna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.
Bæjarstjórn er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi bæjarstjórnar á undan.
Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi.
9. gr.Boðun bæjarstjórnarfunda.
Bæjarstjóri boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórn ekki gert það.
Bæjarstjóri skal hafa sent bæjarstjórnarmönnum fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund. Heimilt er að senda dagskrá ásamt fylgigögnum með rafrænum hætti í gegnum fundargátt Akraneskaupstaðar. Aukafundir skulu á sama hátt boðaðir með a.m.k. sólarhrings fyrirvara.
Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal fund.
10. gr.Dagskrá bæjarstjórnarfundar.
Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundarboði.
Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:
- Lögákveðnar kosningar s.s. kosningu forseta og varaforseta, kosningar ráða, stjórna og nefnda á vegum bæjarfélagsins svo og ráðningar bæjarstjóra og helstu stjórnenda kaupstaðarins og endurskoðendur hans.
- Mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar, sbr. 5. gr., og bæjarstjóri, bæjarfulltrúar eða ráð vilja taka á dagskrá.
- Fundargerðir ráða og stjórna til kynningar: Dagskrám bæjarstjórnarfunda skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem bæjarstjóri telur nauðsynleg.
- Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 3. tölulið hér að framan og þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
Óski bæjarfulltrúi eftir að taka mál á dagskrá, sbr. 2. tölul., skal hann tilkynna bæjarstjóra það skriflega eða með rafrænum hætti með tillögu eða fyrirspurn fyrir kl. 13.00 föstudaginn fyrir bæjarstjórnarfund. Ráð sem vill vísa máli til bæjarstjórnar skal hafa skilað samþykkt um það í frágenginni fundargerð fyrir kl. 11.00 á föstudegi fyrir bæjarstjórnarfund.
Heimilt er að taka mál sem ekki er í útsendri dagskrá til meðferðar á bæjarstjórnarfundi með samþykki afbrigða og með auknum meirihluta, sbr. c-lið 16. gr.
11. gr.Tilkynning til íbúa um fundi bæjarstjórnar.
Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórn ákvörðun um hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir, sbr. 8. gr. samþykktar þessarar, og skal sú ákvörðun kynnt íbúum bæjarfélagsins með tryggum hætti.
Íbúum bæjarfélagsins skal kynnt með opinberri auglýsingu eða með auglýsingu á vefsíðu bæjarfélagsins um fyrirhugaða fundi bæjarstjórnar ásamt dagskrá, innan sömu tímafresta og við á um bæjarfulltrúa, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.
12. gr.Opnir fundir bæjarstjórnar.
Fundir bæjarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Forseti bæjarstjórnar eða bæjarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.
Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn bæjarfélagsins séu viðstaddir.
13. gr.Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.
Bæjarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur bæjarstjórnarmanna sé viðstaddur á fundi.
Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.
14. gr.Fjarfundir.
Heimilt er einstökum nefndarmanni að taka þátt í fundum bæjarstjórnar, ráða og nefnda með rafrænum hætti skv. 4. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga ef hann er staddur innan Akraneskaupstaðar eða er í erindagjörðum innanlands á vegum Akraneskaupstaðar, en að öðrum kosti skal kalla inn varamann.
Ef nefndarmaður, einn eða fleiri, taka þátt í fundi með rafrænum hætti skal tryggja jafna möguleika allra fundarmanna til þátttöku á fundi og í atkvæðagreiðslu, óskerta möguleika þeirra til að fylgjast með því sem þar fer fram og öryggi samskipta á milli fundarmanna.
15. gr.Tvær umræður í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:
- Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
- Staðfestingu ársreiknings.
- Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til bæjarfélagsins í heild eða meirihluta þess.
- Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga.
Þá skal bæjarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir bæjarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.
16. gr.Fundarsköp og ritun fundargerða.
- Fundarstjórn. Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu gerðar og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta.
Forseti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum bæjarstjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. - Vald forseta. Skylt er bæjarfulltrúa að lúta valdi forseta í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu.
Ef bæjarfulltrúi ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal forseti víta hann. Ef bæjarfulltrúi er víttur tvisvar á sama fundi getur forseti lagt til við bæjarstjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust.
Ef bæjarfulltrúi hlýðnast ekki úrskurði forseta eða almenn óregla kemur upp á fundi skal forseti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal.
Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundum. - Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá, nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað. Forseti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum.
Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra bæjarstjórnarmanna samþykkja slíkt afbrigði.
Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá bæjarstjórn eða vísa því til afgreiðslu ráðs, stjórnar, nefndar eða bæjarstjóra. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma. - Málfrelsi bæjarstjóra. Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt, en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í bæjarstjórn.
- Málfrelsi. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum.
Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis, ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala.
Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað. - Ávarp ræðumanns Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta og fundarins.
Bæjarfulltrúi skal ávarpa einstaka bæjarstjórnarmenn með fullu nafni.
Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða.
Bæjarfulltrúi má ekki lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta. - Hve oft má tala. Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Bæjarstjóri hefur óbundið málfrelsi.
- Ræðutími. Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.
- Tillögur og afgreiðsla. Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef forseti óskar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp.
Forseti sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað. - Réttur til bókunar. Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í bæjarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
- Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Bæjarfulltrúi greiðir atkvæði úr sæti sínu. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það, skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef bæjarfulltrúi óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir. - Kosningar. Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti.
Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d´Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess.
Bæjarstjórn ber að hafa í huga ákvæði 4. tl. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga varðandi kynjahlutfall. - Ritun fundargerða. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða. Um ritun fundargerða sveitarstjórnar skal að öðru leyti farið eftir leiðbeiningum um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.
Umræður á bæjarstjórnarfundum skulu hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Bæjarstjórn skal setja um það nánari reglur. - Um varðveislu fundargerða. Skjöl og gögn sem verða til í starfsemi bæjarfélagsins s.s. fundargerðir og önnur skráð fundargögn bæjarstjórnar og nefnda á hennar vegum tilheyra skjalasafni bæjarfélagsins og eru eign þess og fer um varðveislu þeirra skv. gildandi lögum og reglum hverju sinni.
17. gr.Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.
Um hæfi bæjarstjórnarmanna, nefndarfulltrúa og starfsmanna bæjarfélagsins til þátttöku í meðferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga sé ekki öðruvísi ákveðið í sveitarstjórnarlögum. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfsmaður sveitarfélagsins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis bæjarfélagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.
Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber bæjarstjórnarmanni, nefndarfulltrúa eða starfsmanni bæjarfélagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd bæjarfélagsins.
Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.
18. gr.Varamenn í bæjarstjórn.
Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.
Sé bæjarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra, sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast.
Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast.
Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta eða öðrum fundi sveitarstjórnar að loknum sveitarstjórnarkosningum og gildir hún til loka kjörtímabils.
IV. KAFLIRéttindi og skyldur bæjarfulltrúa.
19. gr.Skyldur bæjarfulltrúa.
Bæjarfulltrúa er bæði rétt og skylt að taka þátt í öllum fundum bæjarstjórnar og fundum í nefndum og ráðum nema lögmæt forföll hamli.
Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í ráð, stjórnir og nefndir á vegum bæjarfélagsins. Hverjum bæjarfulltrúa er skylt að taka að sér þau störf, sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnarinnar, svo sem forsetastörf. Þó getur sá sem verið hefur forseti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í ráði, stjórn eða nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.
Bæjarfulltrúar skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
20. gr.Réttur bæjarfulltrúa.
Bæjarfulltrúar eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.
Bæjarfulltrúar eiga rétt á að tekið verði á dagskrá bæjarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni bæjarfélagsins eða verkefni þess.
Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá bæjarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.
Bæjarfulltrúar hafa málfrelsi á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum bæjarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar.
Vilji bæjarfulltrúi ekki una úrskurði forseta um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til bæjarstjórnar sem sker úr án umræðna.
21. gr.Aðgangur að gögnum.
Vegna starfa sinna í bæjarstjórn á sérhver bæjarfulltrúi rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu bæjarfélagsins og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í bæjarstjórn. Beiðni um slíkt skal beint skriflega til skrifstofu bæjarfélagsins. Tiltaka skal í beiðninni hvaða gögnum óskað er eftir og/eða um hvaða málefni þau fjalla. Miða skal við að aðgangur sé veittur innan 5 daga frá móttöku beiðninnar. Ef gögn eru undanþegin upplýsingarétti almennings hefur bæjarfulltrúi heimild til að kynna sér þau á skrifstofu bæjarfélagins en hefur ekki heimild til að taka af þeim afrit eða fara með þau af skrifstofu bæjarfélagsins.
Bæjarfulltrúi skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum bæjarfélagsins á reglubundnum opnunartíma þeirra í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi bæjarfélagsins og rekstur.
Bæjarstjórn skal kveða nánar á um málsmeðferð varðandi afhendingu gagna s.s. um fyrirkomulag beiðna, afmörkun gagna, afritun gagna, fyrirkomulag og framkvæmd aðgangs að skrifstofu og stofnunum bæjarfélagsins.
22. gr.Siðareglur og góðir starfshættir.
Bæjarfulltrúi skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem bæjarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
23. gr.Lausn frá störfum.
Telji bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags, getur hann óskað eftir því við bæjarstjórn að hún:
- létti af honum störfum eða,
- veiti honum lausn úr bæjarstjórn um tiltekinn fyrirfram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.
Þegar bæjarfulltrúi flytur úr bæjarfélaginu um stundarsakir má bæjarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr bæjarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í bæjarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en bæjarfulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir bæjarfulltrúi kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.
Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn. Ef bæjarfulltrúi missir fjárforræði skal bæjarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.
24. gr.Boðun varamanna.
Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í bæjarstjórn skal boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur bæjarfulltrúi krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra bæjarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslutíma máls.
Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsufarsástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í bæjarstjórn á þeim fundi.
Aðalmaður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. samþykkt þessari, eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður.
Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.
Þegar fyrirséð er að aðalmaður í bæjarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.
Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í bæjarstjórn skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórn frá og með næsta fundi.
25. gr.Þóknun o.fl.
Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum bæjarfélagsins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.
Bæjarfulltrúi má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.
26. gr.Réttindi og skyldur varamanna.
Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varabæjarfulltrúa sem taka sæti í bæjarstjórn.
V. KAFLIRáð (fastanefndir), stjórnir og aðrar nefndir.
27. gr.Kosning og kjörtímabil.
Bæjarstjórn kýs fulltrúa í ráð, stjórnir og nefndir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Ráð (bæjarráð, mennta- og menningarráð, velferðar- og mannréttindaráð og skipulags- og umhverfisráð) teljast fastanefndir bæjarstjórnar. Kjörtímabil fastanefnda er eitt ár, sbr. 44. gr. samþykktar þessarar.
Á fyrsta fundi ráðs, stjórnar og nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara ráðs, stjórnar og nefndar nema lög, samþykktir eða bæjarstjórn ákveði annað.
Formaður ráðs, stjórnar eða nefndar boðar til fyrsta fundar ráðs, stjórnar eða nefndar eða ákveður hver skuli gera það, nema formaður hafi áður verið valinn af bæjarstjórn. Formaður ráðs, stjórnar eða nefndar boðar eða lætur boða fundi í ráði, stjórn eða nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara.
Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda ráð (fastanefndir) umboði sínu þar til nýkjörin bæjarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri bæjarstjórn setti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.
28. gr.Kosning og kjörgengi.
Kosningar í ráð (fastanefndir) bæjarstjórnar, nefndir fyrir hluta bæjarfélagsins og nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem bæjarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitarstjórnarlaga.
Bæjarstjórn skal kjósa formenn og varaformenn ráða á þeim fundi sem kosning ráða, stjórna og nefnda fer fram. Formenn og varaformenn ráða skulu vera aðalbæjarfulltrúar.
Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skal bæjarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölulið 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi nefnd.
Þeir einir eru kjörgengir í ráð, stjórnir og nefndir sem hafa kosningarrétt í bæjarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana bæjarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Bæjarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndarsetu.
Formönnum og í forföllum þeirra varaformönnum ráða er heimilt að sitja nefndar- og stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt í þeim fagnefndum og stjórnum sem heyra undir ráðin.
29. gr.Erindisbréf.
Bæjarstjórn staðfestir erindisbréf fyrir ráð, stjórnir og nefndir, þar sem kveðið er á um hlutverk, valdsvið og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir bæjarstjórnar.
30. gr.Valdsvið ráða og framsal bæjarstjórnar til ráða og embættismanna
á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð er bæjarstjórn heimilt að fela ráðunum sem talin eru upp í 1.-4. tl. A-liðar 44. gr. og embættismönnum, sbr. 76. gr. samþykktar þessarar, að afgreiða án staðfestingar bæjarstjórnar, mál á verksviði þeirra ef:
- Lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því.
- Þau varða ekki fjárhag bæjarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun eða öðrum almennum og bindandi reglum eða áætlunum sem bæjarstjórn hefur sett.
- Þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum.
Þriðjungur fulltrúa í ráði sem hefur fengið framselt vald til fullnaðarafgreiðslu, getur ávallt óskað eftir því að bæjarstjórn taki ákvörðun í máli.
Heimildir ráða og embættismanna til fullnaðarafgreiðslu skulu koma fram í samþykktum ráða og í sérstökum viðaukum með samþykkt þessari.
31. gr.Endurupptaka mála sem fengið hafa fullnaðarafgreiðslu
fastanefnda og embættismanna.
Mál sem hefur fengið fullnaðarafgreiðslu ráða skv. 44. gr. eða embættismanna skv. 76. gr. samþykktar þessarar, getur komið til ákvörðunar bæjarstjórnar með tvennum hætti:
- Ráði er skylt að vísa fullnaðarafgreiðslu máls til bæjarstjórnar ef a.m.k. þriðjungur ráðsmanna óskar eftir því með bókun á ráðsfundi.
- Bæjarfulltrúi getur með formlegri og rökstuddri tillögu óskað þess að fullnaðarákvörðun ráðs skv. 44. gr. eða ákvörðun embættismanns, sbr. 76. gr. samþykktar þessarar, verði tekin á dagskrá bæjarstjórnar. Þetta gildir þó ekki ef ákvörðun hefur verið tilkynnt málsaðila og hagsmunir hans mæla gegn því að mál verði tekið upp að nýju.
Heimildir til endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessari grein skulu taka mið af 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
32. gr.Endurupptökuskilyrði.
Aðili máls á rétt á að mál hans sé tekið til meðferðar á ný eftir fullnaðarafgreiðslu þess hjá bæjarstjórn, ráði skv. 44. gr. eða embættismanni skv. 76. gr. samþykktar þessarar, ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.
Beiðni um endurupptöku máls skal beina til viðkomandi ráðs og verður að jafnaði að koma fram áður en þrír mánuðir eru liðnir frá því að málsaðila er tilkynnt um afgreiðslu.
Ef endurupptökuskilyrði eru fyrir hendi tekur viðkomandi ráð ákvörðun um málsmeðferð.
33. gr.Afgreiðsla á fundargerðum.
Fundargerðir ráða, stjórna og nefnda bæjarins skulu teknar á dagskrá bæjarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum fundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar bæjarstjórnar, eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, ber að taka þær sérstaklega fyrir. Hafi ályktun ráðs, stjórnar eða nefndar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir, skal ályktun ætíð lögð fyrir bæjarráð og bæjarstjórn.
34. gr.Fundir ráða, nefnda og stjórna og ályktunarhæfi.
Fundir ráða, stjórna og nefnda skulu að jafnaði haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundunum. Ráð, stjórn eða nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn bæjarins og jafnframt boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.
Um fundi ráða, stjórna og nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.
35. gr.Fundarstjórn og fundargerðir.
Formaður ráðs, stjórnar og nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Jafnframt gilda ákvæði erindisbréfa, ráða, stjórna og nefnda um meðferð mála.
Kjörinn ritari skal rita fundargerð. Heimilt er að starfsmenn bæjarskrifstofu annist ritun fundargerða í stað kjörinna ritara. Um ritun fundargerða, ráða, stjórna og nefnda gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 15. gr. samþykktar þessarar.
36. gr.Varamenn.
Varamenn ráða, stjórna og nefnda taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.
Þegar kosið er til ráðs, stjórnar og nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í ráði, stjórn eða nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.
Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til bæjarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í ráð, stjórn eða nefnd bæjarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í ráði, stjórn eða nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í ráð, stjórn eða nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.
Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að kosning í ráð, stjórn eða nefnd fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í ráð, stjórn eða nefnd að nýju.
37. gr.Boðun varamanna.
Um boðun varamanna á ráðs-, stjórnar- og nefndarfundi gilda ákvæði 23. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.
Þegar aðalmaður í ráði, stjórn eða nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í ráði, stjórn eða nefnd tekur varamaður hans sæti í ráðinu, stjórninni eða nefndinni nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar bæjarstjórn nýjan varamann til setu í ráðinu, stjórninni eða nefndinni.
Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt skv. 39. gr. samþykktar þessarar.
38. gr.Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.
Fulltrúum í ráðum, stjórnum og nefndum bæjarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í bæjarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við bæjarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.
Bæjarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í ráðum, stjórnum og nefndum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan bæjarstjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Enn fremur getur bæjarfulltrúi krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Bæjarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í ráðum, stjórnum og nefndum bæjarfélagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga nema enginn ágreiningur sé innan bæjarstjórnar um breytingarnar.
Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.
39. gr.Áheyrnarfulltrúar.
Um áheyrnarfulltrúa á fundum ráða (fastanefnda) og annarra stjórna og nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í viðkomandi ráði, stjórn eða nefnd.
40. gr.Þóknun.
Bæjarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum bæjarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati bæjarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur. Bæjarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum bæjarfélagsins.
41. gr.Önnur réttindi og skyldur.
Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.
Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.
42. gr.Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem Akraneskaupstaður á aðild að.
Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem bæjarfélagið á aðild að samkvæmt viðkomandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.
Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem bæjarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem bæjarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi bæjarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum bæjarstjórnarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.
43. gr.Aðrir starfshópar og nefndir.
Bæjarstjórn og ráð geta kosið starfshópa og nefndir til að vinna að einstökum tímabundnum og afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra starfshópa og nefnda fellur niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar og fyrr ef verkefni starfshóps eða nefndar er lokið.
Bæjarstjórn og ráð geta einnig afturkallað umboð slíkra starfshópa og nefnda hvenær sem er.
44. gr.Fastanefndir, aðrar nefndir stjórnir og ráð sem bæjarfélagið á aðild að.
Bæjarstjórn kýs í eftirfarandi ráð, stjórnir og nefndir. Bæjarstjórn kýs formenn og varaformenn nefnda skv. B-lið nema annað sé ákveðið í lögum eða samþykktum viðkomandi nefnda:
A. Til eins árs:
Á fundi í júní ár hvert, nema það ár sem kosið er til sveitarstjórnar en þá er heimilt að kjósa á fundi bæjarstjórnar sem fram fer í maí:
- Bæjarráð. Þrjá bæjarfulltrúa sem aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 35. gr. sveitarstjórnarlaga. Um kjör í bæjarráð gilda ákvæði 45. gr. samþykktar þessarar. Kjósa skal einnig aðal- og varaáheyrnarfulltrúa til eins árs séu þeir til staðar, sbr. 2. mgr. 45. gr.
- Mennta- og menningarráð. Þrjá aðalmenn og þrjá til vara samkvæmt ákvæðum 52. gr. samþykktar þessarar, sbr. 2. mgr. 28. gr. Kjósa skal einnig aðal- og varaáheyrnarfulltrúa til eins árs séu þeir til staðar, sbr. 3. mgr. 52. gr.
- Velferðar- og mannréttindaráð. Þrjá aðalmenn og þrjá til vara samkvæmt ákvæðum 59. gr. samþykktar þessarar, sbr. 2. mgr. 28. gr. Kjósa skal einnig aðal- og varaáheyrnarfulltrúa til eins árs séu þeir til staðar, sbr. 3. mgr. 59. gr.
- Skipulags- og umhverfisráð. Þrjá aðalmenn og þrjá til vara samkvæmt ákvæðum 66. gr. samþykktar þessarar, sbr. 28. gr. Kjósa skal einnig aðal- og varaáheyrnarfulltrúa til eins árs séu þeir til staðar, sbr. 3. mgr. 66. gr.
B. Til fjögurra ára:
Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:
- Menningar- og safnanefnd. Sex aðalmenn og jafnmarga til vara. Nefndin annast verkefni samkvæmt erindisbréfi og samkvæmt skipulagsskrá Byggðasafnsins í Görðum.
- Umdæmisráð barnaverndar. Bæjarstjórn skipar umdæmisráð skv. 14. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002.
- Yfirkjörstjórn. Þrjá aðalmenn og þrjá til vara. Kjörstjórn fer með verkefni samkvæmt kosningalögum nr. 112/2021 og varða Alþingiskosningar, sveitarstjórnarkosningar, forsetakosningar og aðrar þær kosningar sem sveitarfélaginu er falið að annast samkvæmt lögum.
- Undirkjörstjórnir. Þrjá aðalmenn í hverja undirkjörstjórn og jafnmarga til vara.
- Stjórn Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis. Þrjá aðalmenn og þrjá til vara. Stjórnin starfar samkvæmt skipulagsskrá.
C. Tilnefningar þingfulltrúa hjá samtökum sveitarfélaga og í stjórnir:
- Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Einn aðalmann og annan til vara samkvæmt stofnsamþykktum Orkuveitu Reykjavíkur. Aðalmaður skal vera úr hópi kjörinna aðalbæjarfulltrúa.
- Stjórn Faxaflóahafna. Einn aðalmann og annan til vara ásamt einum áheyrnarfulltrúa samkvæmt stofnsamþykktum Faxaflóahafna. Aðalmaður skal vera úr hópi kjörinna aðalbæjarfulltrúa.
- Heilbrigðisnefnd Vesturlands. Sveitarstjórnirnar á svæðinu kjósa sameiginlega fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í nefndina skv. 11. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
- Sorpurðun Vesturlands. Aðalfundur kýs árlega úr hópi hluthafa 7 menn í stjórn félagsins. Um hæfi þeirra fer að lögum.
- Fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Fimm aðalmenn og jafnmarga til vara samkvæmt samningi sveitarfélaga á Vesturlandi um rekstur skólans, frá 3. október 2006.
- Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmann og annan til vara skv. 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994.
- Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Fimm fulltrúa og jafnmarga til vara á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi samkvæmt lögum samtakanna.
- Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjóra þingfulltrúa og jafnmarga til vara skv. 7. gr. laga Sambands íslenskra sveitarfélaga.
- Samstarfsnefnd lögreglu og sveitarfélaga, samkvæmt viljayfirlýsingu ríkislögreglustjóra og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. apríl 2004.
- Öldungaráð Akraness. Þrjá aðalmenn og einn til vara skv. 3. gr. samþykktar bæjarstjórnar um öldungaráð Akraness frá 22. maí 2018 og 2. mgr. 38. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Bæjarstjórn tilnefnir formann öldungaráðsins úr hópi aðalmanna.
- Notendaráð um málefni fatlaðs fólks. Þrjá fulltrúa skv. 42. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
- Þróunarfélag Grundartanga ehf. Einn aðalmann í stjórn og einn til vara samkvæmt samþykktum félagsins frá 7. júlí 2016.
- Breið – þróunarfélag ses. Einn aðalmann í stjórn og einn til vara samkvæmt samþykktum félagsins frá 2. júlí 2020.
D. Aðrar nefndir sem stofnaðar verða.
- Verkefnabundnar nefndir:
Bæjarstjórn og bæjarráð geta skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið. Bæjarstjórn getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er. Þegar bæjarstjórn tilnefnir fleiri en einn fulltrúa í samstarfsnefndir skal að öllu jöfnu tilnefna a.m.k. einn fulltrúa úr minnihluta.
VI. KAFLIBæjarráð, mennta- og menningarráð, velferðar- og mannréttindaráð
og skipulags- og umhverfisráð.
Bæjarráð.
45. gr.Kosning bæjarráðs.
Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn og varamenn í bæjarráð, sbr. 3. mgr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga.
Framboð sem hefur fulltrúa í bæjarstjórn og á ekki kjörinn fulltrúa í bæjarráði skal hafa einn áheyrnarfulltrúa í bæjarráði og annan til vara og skulu þeir fullnægja kjörgengisskilyrðum í bæjarráð, sbr. 3. mgr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga.
Kosningar í bæjarráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess.
Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna.
Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt, en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.
46. gr.Fundartími bæjarráðs.
Bæjarráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma og eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda eftir þörfum að ákvörðun formanns eða ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.
47. gr.Boðun funda bæjarráðs.
Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund tilkynnir hann forföll til bæjarstjóra og óskar eftir því að varamaður verði boðaður.
48. gr.Stjórnun bæjarráðs.
Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðs.
Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmanna óskar þess.
Sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs annast ritun fundargerða bæjarráðs eða sér til þess að það sé gert. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 16. gr.
Bæjarráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum.
49. gr.Verkefni bæjarráðs.
Bæjarráð hefur umsjón og eftirlit með stjórnsýslu Akraneskaupstaðar, fjármálum, rekstri fyrirtækja kaupstaðarins, starfsmanna- og gæðamálum, málum sem falla undir stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og með málefnum sem falla undir stjórnir byggðasamlaga eða annarra fyrirtækja sem Akraneskaupstaður á aðild að og skulu fundargerðir þeirra lagðar fyrir bæjarráð.
Bæjarráð hefur umsjón með þjónustu- og upplýsingatæknimálum, nýsköpunar- og atvinnumálum og öðrum þeim verkefnum sem öðrum ráðum eru ekki sérstaklega falin.
Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með fjármálastjórn bæjarins að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin.
Bæjarráð leggur fram tillögu að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi ráða og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Bæjarráð gerir tillögu til bæjarstjórnar um viðauka fjárhagsáætlunar. Bæjarráð hefur eftirlit með að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja bæjarins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu, svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.
50. gr.Nefndir og stjórnir.
Eftirtaldar nefndir og stjórnir heyra undir stjórnsýslu bæjarráðs:
- Stjórn Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis.
- Almannavarnanefnd.
- Yfirkjörstjórn við kosningar samkvæmt kosningalögum nr. 112/2021.
- Undirkjörstjórnir við kosningar samkvæmt kosningalögum nr. 112/2021.
- Þróunarfélög sem Akraneskaupstaður á aðild að.
51. gr.Heimild bæjarráðs til fullnaðarákvörðunar og endurupptöku.
Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála, sbr. 30. gr., á grundvelli erindisbréfs skv. 10. tl. 5. gr. og skv. sérstökum viðauka við samþykkt þessa, án staðfestingar bæjarstjórnar ef:
- Lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því.
- Þau varða ekki verulega fjárhag sveitarfélagsins eða stofnana hans.
- Þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum.
Bæjarráð hefur heimild til fullnaðarákvörðunar um lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins og sölu eigna þess og annarra réttinda þess, sbr. 5. og 6. tölul. 1. mgr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga, enda sé ekki um verulega fjárhagslega hagsmuni að ræða og ákvörðunin rúmast innan fjárhagsáætlunar til eins árs og áætlunar fjögurra ára, eigi hún við.
Ef mál sem bæjarráð hefur heimild til að afgreiða eru samþykkt samhljóða í bæjarráði hefur bæjarstjóri heimild til að láta framkvæma þau. Ef mótatkvæði kemur fram í bæjarráði við afgreiðslu þess, bíður frekari vinnsla þess afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessari grein og skal við þá ákvörðun gæta að málsmeðferð skv. 24. gr. stjórnsýslulaga.
Í sumarleyfi bæjarstjórnar annast bæjarráð fullnaðarafgreiðslu þeirra mála sem berast kunna frá ráðum og nefndum.
Bæjarstjórn setur bæjarráði erindisbréf.
Mennta- og menningarráð.
52. gr.Kosning mennta- og menningarráðs.
Bæjarstjórn skal á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá fulltrúa í mennta- og menningarráð til eins árs og jafnmarga til vara.
Kosningar í mennta- og menningarráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess.
Framboð sem hefur fulltrúa í bæjarstjórn og á ekki kjörinn fulltrúa í mennta- og menningarráð skal hafa einn áheyrnarfulltrúa í ráðinu og annan til vara.
Bæjarstjórn kýs formann og varaformann mennta- og menningarráðs úr hópi kjörinna bæjarfulltrúa og um kosningu og kjörgengi í ráðið fer samkvæmt 28. gr. samþykktar þessarar.
53. gr.Fundartími.
Mennta- og menningarráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma og eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda eftir þörfum að ákvörðun formanns eða ef sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs, bæjarstjóri, formaður ráðsins eða a.m.k. tveir ráðsmenn óska þess.
54. gr.Boðun funda.
Sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs undirbýr ráðsfundi í samráði við formann ráðsins. Hann sér um að mennta- og menningarsvið sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti ráðsmaður ekki sótt fund, tilkynnir hann forföll til sviðsstjóra mennta- og menningarsviðs og óskar eftir því að varamaður verði boðaður.
55. gr.Stjórnun mennta- og menningarráðs.
Formaður mennta- og menningarráðs stjórnar fundum ráðsins og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar ráðsins.
Heimilt er að taka mál til meðferðar í mennta- og menningarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver ráðsmanna óskar þess.
Sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs annast ritun fundargerða mennta- og menningarráðs eða sér til þess að það sé gert. Um ritun fundargerða mennta- og menningarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 16. gr.
Mennta- og menningarráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum.
56. gr.Verkefni mennta- og menningarráðs.
Mennta- og menningarráð fer með umsjón og eftirlit með málum sem heyra undir framkvæmd eftirfarandi laga og reglugerða byggðra á þeim, eins og þau eru á hverjum tíma og að því marki sem lögin leggja sveitarfélögum skyldur á herðar:
- Forvarnir, sbr. lög um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007.
- Æskulýðs-, tómstunda- og íþróttamál, sbr. lög nr. 64/1998 og lög nr. 70/2007.
- Grunnskóla, sbr. lög nr. 91/2008.
- Leikskóla, sbr. lög nr. 90/2008 og reglugerð um starfsumhverfi leikskóla nr. 655/2009.
- Tónlistarskóla, sbr. lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985.
- Daggæslu barna, sbr. reglugerð nr. 907/2005 um daggæslu barna í heimahúsum.
- Aðrar lagasetningar Alþingis sem á hverjum tíma tengjast verkefnum ráðsins.
- Rekstur og starfsemi menningar- og safnamála utan verkefna sem varða viðburðahald.
57. gr.Nefndir og stjórnir.
Eftirtaldar nefndir og stjórnir heyra undir stjórnsýslu mennta- og menningarráðs:
- Menningar- og safnanefnd.
- Fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands.
58. gr.Heimild mennta- og menningarráðs til fullnaðarákvörðunar og endurupptöku.
Mennta- og menningarráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála, sbr. 30. gr., á grundvelli erindisbréfs skv. 10. tl. 5. gr. og samkvæmt sérstökum viðauka við samþykkt þessa, án staðfestingar bæjarstjórnar ef:
- Lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því.
- Þau varða ekki fjárhag bæjarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun eða öðrum almennum og bindandi reglum eða áætlunum sem bæjarstjórn hefur sett.
- Þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum.
Þegar um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skal koma fram í afgreiðslu málsins að um fullnaðarafgreiðslu sé að ræða á grundvelli heimildar í 42. gr. sveitarstjórnarlaga og samþykktar þessarar. Að öðru leyti skal gæta að ákvæðum 20. gr. stjórnsýslulaga.
Sá aðili sem hefur fengið framselt vald til fullnaðarafgreiðslu, eða þriðjungur fulltrúa ef um nefnd eða ráð er að ræða, getur ávallt óskað eftir því að bæjarstjórn, taki ákvörðun í máli.
Mál sem hafa í för með sér fjárútlát umfram samþykktar heimildir eða fjárhagsáætlun skulu ávallt lögð fyrir bæjarráð.
Mennta- og menningarráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála sem falla undir verkefnasvið þess og skal við þá ákvörðun gæta að málsmeðferð skv. 24. gr. stjórnsýslulaga. Bæjarstjórn setur mennta- og menningarráði erindisbréf.
Velferðar- og mannréttindaráð.
59. gr.Kosning velferðar- og mannréttindaráðs.
Bæjarstjórn skal á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá fulltrúa í velferðar- og mannréttindaráð til eins árs og jafnmarga til vara.
Kosningar í velferðar- og mannréttindaráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess.
Framboð sem hefur fulltrúa í bæjarstjórn og á ekki kjörinn fulltrúa í velferðar- og mannréttindaráði skal hafa einn áheyrnarfulltrúa í ráðinu og annan til vara.
Bæjarstjórn kýs formann og varaformann velferðar- og mannréttindaráðs úr hópi kjörinna bæjarfulltrúa og um kosningu og kjörgengi í ráðið fer samkvæmt 27. gr. samþykktar þessarar.
60. gr.Fundartími.
Velferðar- og mannréttindaráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma og eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda eftir þörfum að ákvörðun formanns eða ef sviðsstjóri velferðar- og mannréttindaráðs, bæjarstjóri, formaður ráðsins eða a.m.k. tveir ráðsmenn óska þess.
61. gr.Boðun funda.
Sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs undirbýr ráðsfundi í samráði við formann ráðsins. Hann sér um að velferðar- og mannréttindaráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti ráðsmaður ekki sótt fund, tilkynnir hann forföll til sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs og óskar eftir því að varamaður verði boðaður.
62. gr.Stjórnun velferðar- og mannréttindaráðs.
Formaður velferðar- og mannréttindaráðs stjórnar fundum ráðsins og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar ráðsins.
Heimilt er að taka mál til meðferðar í velferðar- og mannréttindaráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver ráðsmanna óskar þess.
Sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs annast ritun fundargerða velferðar- og mannréttindaráðs eða sér til þess að það sé gert. Um ritun fundargerða velferðar- og mannréttindaráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 16. gr.
Velferðar- og mannréttindaráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum.
63. gr.Verkefni velferðar- og mannréttindaráðs.
Velferðar- og mannréttindaráð fer með umsjón og eftirlit með málum sem heyra undir framkvæmd eftirfarandi laga og reglugerða byggðra á þeim, eins og þau eru á hverjum tíma og að því marki sem lögin leggja sveitarfélögum skyldur á herðar:
- Félagsmál, sbr. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
- Farsæld barna, sbr. lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021.
- Barnaverndarþjónustu, sbr. barnaverndarlög nr. 80/2002, barnalög nr. 76/2003 og lög nr. 19/2013 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og barnasáttmála sameinuðu þjóðanna.
- Húsnæðismál, sbr. lög nr. 44/1998.
- Málefni fatlaðra, sbr. lög nr. 38/2018.
- Málefni aldraðra, sbr. lög nr. 125/1999.
- Heilbrigðismál, sbr. lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007.
- Mannréttindamál.
- Aðrar lagasetningar Alþingis sem á hverjum tíma tengjast verkefnum ráðsins.
64. gr.Nefndir og stjórnir.
Eftirtaldar nefndir og stjórnir heyra undir stjórnsýslu velferðar- og mannréttindaráðs:
- Öldungaráð.
- Notendaráð um málefni fatlaðs fólks.
- Umdæmisráð barnaverndar. Bæjarstjórn skipar í umdæmisráð barnaverndar skv. 14. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002.
65. gr.Heimild velferðar- og mannréttindaráðs
til fullnaðarákvörðunar og endurupptöku.
Velferðar- og mannréttindaráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála, sbr. 30. gr., á grundvelli erindisbréfs skv. 10. tl. 5. gr. og samkvæmt sérstökum viðauka við samþykkt þessa, án staðfestingar bæjarstjórnar ef:
- Lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því.
- Þau varða ekki fjárhag bæjarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun eða öðrum almennum og bindandi reglum eða áætlunum sem bæjarstjórn hefur sett.
- Þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum.
Þegar um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skal koma fram í afgreiðslu málsins að um fullnaðarafgreiðslu sé að ræða á grundvelli heimildar í 42. gr. sveitarstjórnarlaga og samþykktar þessarar. Að öðru leyti skal gæta að ákvæðum 20. gr. stjórnsýslulaga.
Sá aðili sem hefur fengið framselt vald til fullnaðarafgreiðslu, eða þriðjungur fulltrúa ef um nefnd eða ráð er að ræða, getur ávallt óskað eftir því að bæjarstjórn taki ákvörðun í máli.
Mál sem hafa í för með sér fjárútlát umfram samþykktar heimildir eða fjárhagsáætlun skulu ávallt lögð fyrir bæjarráð.
Velferðar- og mannréttindaráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála sem falla undir verkefnasvið þess og skal við þá ákvörðun gæta að málsmeðferð skv. 24. gr. stjórnsýslulaga.
Bæjarstjórn setur velferðar- og mannréttindaráði erindisbréf.
Skipulags- og umhverfisráð.
66. gr.Kosning skipulags- og umhverfisráðs.
Bæjarstjórn skal á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá fulltrúa í skipulags- og umhverfisráð til eins árs og jafnmarga til vara.
Kosningar í skipulags- og umhverfisráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess.
Framboð sem hefur fulltrúa í bæjarstjórn og á ekki kjörinn fulltrúa í skipulags- og umhverfisráði skal hafa einn áheyrnarfulltrúa í ráðinu og annan til vara.
Bæjarstjórn kýs formann og varaformann skipulags- og umhverfisráðs úr hópi kjörinna bæjarfulltrúa og um kosningu og kjörgengi í ráðið fer samkvæmt 27. gr. samþykktar þessarar.
67. gr.Fundartími.
Skipulags- og umhverfisráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma og eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda eftir þörfum að ákvörðun formanns eða ef sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, bæjarstjóri, formaður ráðsins eða a.m.k. tveir ráðsmenn óska þess.
68. gr.Boðun funda.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs undirbýr ráðsfundi í samráði við formann ráðsins. Hann sér um að skipulags- og umhverfisráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti ráðsmaður ekki sótt fund, tilkynnir hann forföll til sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og boðar varamann sinn.
69. gr.Stjórnun skipulags- og umhverfisráðs.
Formaður skipulags- og umhverfisráðs stjórnar fundum ráðsins og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar ráðsins.
Heimilt er að taka mál til meðferðar í skipulags- og umhverfisráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver ráðsmanna óskar þess.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs annast ritun fundargerða skipulags- og umhverfisráðs eða sér til þess að það sé gert. Um ritun fundargerða skipulags- og umhverfisráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 16. gr.
Skipulags- og umhverfisráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum.
70. gr.Verkefni skipulags- og umhverfisráðs.
Skipulags- og umhverfisráð annast undirbúning og rekstur á málaflokkum er falla undir skipulags- og byggingarmál, brunamál, dýraeftirlit og samgöngumál. Þetta felur m.a. í sér að hafa forgöngu um breytingar á skipulagsáætlunum og fjalla um skipulagstilllögur, yfirfara afgreiðslur vegna byggingarmála, vera eftirlitsaðili þeirra svæða sveitarfélagsins sem eru á náttúruminjaskrá, stuðla að merkingu og kynningu á náttúruminjum svo og þeim stöðum öðrum sem hafa sérstakt útvistargildi eða sögulegt gildi, stuðla að fegrun sveitarfélagsins og snyrtilegri umgengni, skipulagi almenningssamgangna, endurskoðun brunavarnaráætlunar fyrir sveitarfélagið og endurskoðun samþykkta er lúta að dýraeftirliti.
Skipulags- og umhverfisráð annast stefnumótun og eftirlit með framkvæmdum, rekstri fasteigna og annarra mannvirkja Akraneskaupstaðar.
Skipulags- og umhverfisráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um stefnu í málefnum sem tengjast verklegum framkvæmdum á vegum bæjarins.
Skipulags- og umhverfisráð fjallar um eftirtalin verkefni skipulags- og umhverfissviðs sem sér m.a. um undirbúning allra framkvæmda, s.s. framkvæmdir við fasteignir, götur, gangstéttir og stíga, jarðeignir og lönd, gatnahreinsun, leiksvæði og opin svæði, tjaldstæði, eignaumsýslu, ásamt innkaupum og útboðum vegna framangreindra þátta.
Skipulags- og umhverfisráð fer með stjórn Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar ehf. og þeirra verkefna sem félögunum eru falin. Skipulags- og umhverfisráð fer með yfirumsjón með rekstri, viðhaldi og endurbótum fasteigna Akraneskaupstaðar.
71. gr.Nefndir og stjórnir.
Samkvæmt samþykktum Fasteignafélags Akraneskaupstaðar ehf. og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. fer skipulags- og umhverfisráð með stjórn félaganna.
72. gr.Heimild skipulags- og umhverfisráðs
til fullnaðarákvörðunar og endurupptöku.
Skipulags- og umhverfisráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála, sbr. 30. gr., á grundvelli erindisbréfs skv. 10. tl. 5. gr. og samkvæmt sérstökum viðauka við samþykkt þessa, án staðfestingar bæjarstjórnar ef:
- Lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því.
- Þau varða ekki fjárhag bæjarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun eða öðrum almennum og bindandi reglum eða áætlunum sem bæjarstjórn hefur sett.
- Þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum.
Þegar um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skal koma fram í afgreiðslu málsins að um fullnaðarafgreiðslu sé að ræða á grundvelli heimildar í 42. gr. sveitarstjórnarlaga og samþykktar þessarar. Að öðru leyti skal gæta að ákvæðum 20. gr. stjórnsýslulaga.
Sá aðili sem hefur fengið framselt vald til fullnaðarafgreiðslu, eða þriðjungur fulltrúa ef um nefnd eða ráð er að ræða, getur ávallt óskað eftir því að bæjarstjórn, taki ákvörðun í máli.
Mál sem hafa í för með sér fjárútlát umfram samþykktar heimildir eða fjárhagsáætlun skulu ávallt lögð fyrir bæjarráð.
Skipulags- og umhverfisráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála sem falla undir verkefnasvið þess og skal við þá ákvörðun gæta að málsmeðferð skv. 24. gr. stjórnsýslulaga.
Bæjarstjórn setur skipulags- og umhverfisráði erindisbréf.
VII. KAFLIFramkvæmdastjóri og aðrir starfsmenn bæjarfélagsins.
73. gr.Ráðning bæjarstjóra.
Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og verkefni bæjarfélagsins. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningartími bæjarstjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil bæjarstjórnar. Ráðningarsamningur skal staðfestur af bæjarstjórn.
74. gr.Helstu verkefni bæjarstjóra.
Bæjarstjóri undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrár og boðar til funda. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt, nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarráð og bæjarstjórn. Hann hefur og rétt til setu á fundum ráða, stjórna og nefnda bæjarfélagsins með sömu réttindum.
Bæjarstjórinn hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og málefna bæjarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórnin ákveður ekki annað.
Hann skal sjá um að stjórnsýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.
Bæjarstjóri fer m.a. með framkvæmdastjórn bæjarskrifstofu og sérverkefna.
Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnarinnar þarf til.
Bæjarstjórinn er prókúruhafi bæjarsjóðs. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarráðs að veita öðrum starfsmönnum bæjarins prókúru. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.
Bæjarstjórinn er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarfélagsins og ræður forstöðumenn stofnana Akraneskaupstaðar að höfðu samráði við sviðsstjóra viðkomandi fagsviðs.
Sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs er staðgengill bæjarstjóra nema bæjarstjórn ákveði annað.
75. gr.Ráðning starfsmanna.
Bæjarstjórn ræður sviðsstjóra og stjórnendur fyrirtækja hjá bæjarfélaginu að fenginni umsögn viðkomandi fagráðs og veitir þeim lausn frá störfum.
Sviðsstjórar og stjórnendur fyrirtækja skulu ráðnir til fimm ára og heimil skal endurráðning án auglýsingar. Tilkynna skal eigi síðar en sex mánuðum áður en ráðningartíminn rennur út hvort starfið verði auglýst laust til umsóknar. Sé það ekki gert framlengist ráðningin sjálfkrafa um fimm ár nema viðkomandi óski sjálfur eftir að láta af störfum.
Sviðsstjórar og forstöðumenn stofnana ráða aðra starfsmenn innan viðkomandi starfseiningar í samræmi við stjórnunarheimildir sínar.
Heimild bæjarráðs þarf fyrir ráðningu í öll ný stöðugildi.
76. gr.Valdsvið embættismanna og framsal bæjarstjórnar til embættismanna
á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð er bæjarstjórn heimilt að fela tilteknum embættismönnum fullnaðarafgreiðslu mála á sama hátt og með sömu skilyrðum og nefnd eru í 30. gr.:
- Sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs.
- Sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs.
- Sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs.
- Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
- Skipulagsfulltrúi.
- Byggingarfulltrúi.
- Fjármálastjóri.
- Mannauðsstjóri.
- Persónuverndarfulltrúi.
Bæjarstjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu embættismanna og skulu heimildir embættismanna til fullnaðarafgreiðslu koma fram í sérstökum viðaukum við samþykkt þessa. Hlutaðeigandi ráð hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt viðaukunum og kalla reglulega eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra. Embættismanni er alltaf heimilt að vísa ákvörðun skv. 1. mgr. til viðkomandi ráðs til fullnaðarafgreiðslu. Mál sem starfsmenn afgreiða skulu kynnt í viðkomandi ráði með skriflegri skýrslu að lágmarki ársfjórðungslega.
Þegar um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skal koma fram í afgreiðslu málsins að um fullnaðarafgreiðslu sé að ræða á grundvelli heimildar í 42. gr. sveitarstjórnarlaga og samþykktar þessarar. Að öðru leyti skal gæta að ákvæðum 20. gr. stjórnsýslulaga.
77. gr.Endurupptaka máls.
Mál sem embættismanni er heimilt að afgreiða eða sem hefur fengið afgreiðslu í ráði getur komið til ákvörðunar bæjarstjórnar með tvennum hætti:
- Ráði er skylt að vísa afgreiðslu máls til bæjarstjórnar ef a.m.k. þriðjungur ráðsmanna óskar eftir því með bókun á ráðsfundi.
- Bæjarfulltrúi getur með formlegri og rökstuddri tillögu óskað þess að ákvörðun ráðs eða embættismanns, sbr. 30. og 76. gr., verði tekin á dagskrá bæjarstjórnar. Þetta gildir þó ekki ef ákvörðun hefur verið tilkynnt málsaðila og hagsmunir hans mæla gegn því að mál verði tekið upp að nýju.
78. gr.Endurupptökuskilyrði.
Aðili máls á rétt á að mál hans sé tekið til meðferðar á ný eftir fullnaðarafgreiðslu þess ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun hefur verið tekin. Beiðni um endurupptöku máls skal beina til viðkomandi ráðs og verður að jafnaði að koma fram áður en þrír mánuðir eru liðnir frá því að málsaðila er tilkynnt um afgreiðslu.
Ef endurupptökuskilyrði eru fyrir hendi tekur viðkomandi ráð ákvörðun um málsmeðferð.
Framangreint gildir einnig um bæjarstjórn ef fullnaðarákvörðun máls er tekin þar.
79. gr.Þagnarskylda starfsmanna.
Starfsmenn Akraneskaupstaðar og aðrir sem bæjarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
80. gr.Um starfskjör og réttindi starfsmanna.
Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga, starfsmannastefnu, jafnlaunastefnu og jafnréttisáætlun.
VIII. KAFLIFjármál bæjarfélagsins.
81. gr.Fjárstjórnarvald bæjarstjórnar.
Einvörðungu bæjarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál bæjarfélagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undantekningar þar á með lögum:
- Staðfestingu ársreiknings.
- Fjárhagsáætlun næstkomandi árs.
- Fjárhagsáætlun til fjögurra ára.
- Viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölulið.
- Lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar bæjarfélagsins.
- Sölu eigna bæjarfélagsins og annarra réttinda þess.
- Álagningu skatta og gjalda.
- Ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.
82. gr.Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.
Bæjarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Bæjarráð, leggur samkvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Bæjarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu bæjarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.
Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri bæjarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir bæjarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs og stofnana bæjarfélagsins við upphaf áætlunartímabilsins.
Bæjarstjórn skal senda því ráðuneyti sem fer með málefni sveitarfélaga fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhagsáætlun.
83. gr.Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.
Ákvörðun sem bæjarstjórn tekur skv. 74. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitarstjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu bæjarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu bæjarfélagsins á fjárhagsáætlunum.
Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.
Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar bæjarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi bæjarstjórnarinnar.
84. gr.Fjármálareglur og viðmið um afkomu bæjarfélagsins.
Bæjarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að bæjarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og ákvæði reglugerðar nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.
85. gr.Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.
Bæjarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna bæjarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.
Áður en bæjarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum bæjarfélagsins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag bæjarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga.
Um heimildir Akraneskaupstaðar til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.
86. gr.Ársreikningur.
Gera skal ársreikning fyrir bæjarsjóð, stofnanir bæjarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir bæjarfélagið, þ.e. bæjarsjóð, stofnanir hans og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reikningsskilavenju.
Ársreikningur bæjarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af bæjarráði og bæjarstjóra og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.
Bæjarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings bæjarfélagsins, stofnana og fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.
Ársreikning bæjarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála og Þjóðskrá ekki síðar en 20. maí ár hvert.
87. gr.Endurskoðun ársreikninga.
Bæjarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun ársreikninga hjá bæjarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endurskoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrirmælum 72. og 73. gr. sveitarstjórnarlaga.
IX. KAFLISamráð við íbúa – Þátttökulýðræði.
88. gr.Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.
Ef 20% þeirra sem kosningarrétt eiga í bæjarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal bæjarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.
Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk bæjarstjórnar og framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu fer skv. 107. gr. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
X. KAFLIGildistökuákvæði.
89. gr.Viðaukar um fullnaðarafgreiðslu ráða og embættismanna.
Samþykkt þessari fylgja viðaukar um fullnaðarafgreiðslur ráða og embættismanna í samræmi við heimildir 30. og 76. gr. samþykktarinnar, sbr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga.
90. gr.Gildistaka.
Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Akraness hefur sett, samkvæmt ákvæðum 9. gr. og 18. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar nr. 696/2013.
Innviðaráðuneytinu, 18. maí 2026.
F. h. r.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
Ólöf Sunna Jónsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 9. júní 2026