Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Birting laga og stjórnvaldaerinda
Undirritunardagur
24. maí 2012
Útgáfudagur
25. maí 2012
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 38/2012
24. maí 2012
LÖG
um breyting á lögum um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, með síðari breytingum (lagasafn).
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
1. gr. Lagasafn.
Á eftir 8. gr. laganna kemur ný grein, svohljóðandi, ásamt fyrirsögn:Ráðherra sér um útgáfu lagasafns. Útgáfa lagasafns getur verið í rafrænu eða prentuðuformi. Ráðherra er heimilt að fela öðrum að sjá um útgáfu lagasafns. Komi fram misræmimilli texta í útgáfu lagasafns og þess texta sem birtur er í A-deild Stjórnartíðinda gildir textiStjórnartíðinda, sbr. 2. gr.Með ábyrgð og umsjón á útgáfu lagasafns fer sérstök þriggja manna ritstjórn sem ráðherraskipar til fimm ára í senn. Skal einn tilnefndur af forseta Alþingis, en tvo skipar ráðherra ántilnefningar og skal annar þeirra vera ritstjóri og fullnægja skilyrðum til að gegna embættihéraðsdómara, að undanskildu skilyrði 4. mgr. 31. gr. laga um dómstóla.
Ráðherra tekur ákvörðun um útgáfu lagasafns í prentuðu formi, að fenginni tillögu ritstjórnar.
Heimilt er að selja prentuð eintök af lagasafni gegn gjaldi sem nemur kostnaði við vinnu,undirbúning og umsjón með útgáfu þess, prentun og sölu. Skal gjaldið renna til greiðslukostnaðar af prentuðu útgáfunni.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi lög um laganefnd, nr. 48/1929.Ákvæði til bráðabirgða. Gjört í Reykjavík, 24. maí 2012.
Ritstjórn lagasafnsins sem skipuð var 16. mars 2011 heldur áfram störfum þar til ný ritstjórn hefur verið skipuð samkvæmt lögum þessum.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Ögmundur Jónasson.
A deild - Útgáfud.: 25. maí 2012