Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Akureyrarkaupstaður

Málaflokkur

Skipulagsmál, Akureyri

Undirritunardagur

10. október 2018

Útgáfudagur

26. október 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 941/2018

10. október 2018

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað.

Breyting á deiliskipulagi verksmiðjusvæðisins á Gleráreyrum – framhjáhlaup á Þórunnarstræti.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 2. október 2018 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir verksmiðjusvæðið á Gleráreyrum.
Breytingin felur í sér að gert er ráð fyrir framhjáhlaupi á Þórunnarstræti til suðurs (til hægri) inn á Glerárgötu auk breytinga á göngustígum, gangbrautum og umferðareyjum. Þá eru skipulagsmörk einnig aðlöguð að deiliskipulagi Norður-Brekku og deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 10. október 2018,

Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 26. október 2018

Tengd mál