Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Dalvíkurbyggð

Undirritunardagur

21. janúar 2026

Útgáfudagur

4. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 101/2026

21. janúar 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna sjólagnar á Hauganesi.

Skipulagsstofnun staðfesti 21. janúar 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. nóvember 2025.

Í breytingunni felst að gerð er grein fyrir lagnaleið nýrrar sjólagnar á Hauganesi frá dælubrunnum í fjöruborði innan hafnarsvæðisins og rúmlega 900 metra út í sjó til norðausturs frá höfninni.

Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsstofnun, 21. janúar 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 4. febrúar 2026

Tengd mál