Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

2. mars 2018

Útgáfudagur

16. mars 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 284/2018

2. mars 2018

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða á eftir 4. mgr. 57. gr. reglnanna:

  1. Í stað ártalanna „2016-2017 og 2017-2018“ í 1. málslið 1. mgr. kemur: 2018-2019 og 2019‑2020.
  2. 3. og síðasti málsliður 1. mgr. fellur brott.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 130. gr. reglnanna:

  1. Í stað orðanna „mekatróník hátæknifræði og iðntæknifræði“ í b-lið 1. mgr. kemur: tæknifræði.
  2. 6. mgr. orðast svo:
    Til BS-prófs í tæknifræði er krafist minnst 210 eininga. Nám í tæknifræði er aðgreint frá námi í rafmagns- og tölvuverkfræði og fer fram á öðrum vettvangi.

3. gr.

3. málsliður 1. mgr. 131. gr. reglnanna orðast svo: Kennslu til BS-prófs í tæknifræði skal haga þannig að stúdent geti lokið 210 eininga námi á þremur og hálfu ári.

4. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 2. mars 2018.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 16. mars 2018

Tengd mál