Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Umferðarmál

Undirritunardagur

14. september 2020

Útgáfudagur

16. september 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 901/2020

14. september 2020

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 929/2006 um ökuferilsskrá og punktakerfi vegna umferðarlagabrota.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Aftan við fyrirsögn greinarinnar bætast orðin: og akstursbann.
  2. Aftan við 2. mgr. greinarinnar bætast orðin: Lögreglustjóri skal banna byrjanda með bráðabirgðaskírteini að aka hafi hann fengið 4 til 6 punkta samkvæmt punktakerfi vegna umferðarlagabrota áður en bráðabirgðaskírteinið er endurnýjað í fullnaðarskírteini. Akstursbanni skal eingöngu beitt einu sinni á gildistíma bráðabirgðaskírteinis.
  3. Á eftir orðunum „Svipting ökuréttar“ og á undan orðunum „skv. 1. og 2. mgr.“ í 3. mgr. greinarinnar koma orðin: eða akstursbann.

2. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 14. september 2020.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 16. september 2020

Tengd mál