Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Bílastæðasjóður Reykjavíkur
Málaflokkur
Reykjavík, Umferðarmál
Undirritunardagur
21. maí 2015
Útgáfudagur
3. júlí 2015
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 591/2015
21. maí 2015
REGLUR
um bílastæðakort íbúa í Reykjavík.
Borgarráð samþykkti eftirfarandi nýjar reglur um bílastæðakort íbúa með tilheyrandi yfirlitskorti yfir bílastæðasvæði á fundi sínum þann 21. maí 2015 með tilvísun til 2. mgr. 83. gr. umferðarlaga nr. 50/1987:
- Íbúar með lögheimili á ákveðnum svæðum í Reykjavík, sbr. 2. lið, þar sem ekki er bílastæði á lóð, geta sótt um að fá keypt bílastæðakort íbúa (hér eftir nefnt íbúakort) hjá Bílastæðasjóði Reykjavíkur. Umsækjandi þarf að vera eigandi fasteignarinnar, maki skv. þjóðskrá, ættingi eða leigjandi með þinglýstan húsaleigusamning. Ættingi telst vera barn, foreldri, systkini eða barnabarn. Ef umsækjandi er leigjandi íbúðar skal framvísa þinglýstum húsaleigusamningi með umsókn en ávallt skal skila inn samþykki eiganda íbúðar ef umsækjandi er ekki þinglýstur eigandi.
- Íbúakort veitir heimild til að leggja bifreið án endurgjalds í gjaldskyld bílastæði innan þess svæðis, sem íbúakortið tekur til. Íbúakortið gildir á svæðinu þar sem umsækjandi býr, en þó ekki á gjaldsvæði 4 og á tilgreindum götum og svæðum á gjaldsvæði 1 (sjá nánar um gjaldsvæði á heimasíðu Bílastæðasjóðs). Íbúar á gjaldsvæðum geta fengið íbúakort sem gildir á því svæði sem liggur næst þeirra lögheimili. Gildissvæði íbúakorta eru nánar tilgreind á sérstöku yfirlitskorti sem fylgir þessum reglum.
-
Fjöldi
bílastæða
á
lóð
skal
ákvarðaður
í
deiliskipulagi,
sé
tilskildum
fjölda
bílastæða
ekki
komið
fyrir
á
lóð
er
Reykjavíkurborg
heimilt
að
innheimta
bílastæðagjald
fyrir
þann
fjölda
sem
á
vantar.
Óheimilt
er
að
gefa
út
fleiri
íbúakort
til
íbúa
viðkomandi
lóða
en
vegna
þeirra
stæða
sem
greitt
hefur
verið
fyrir.
Sé ekki gerð krafa um bílastæði á lóð nýbyggingar í deiliskipulagi er óheimilt að gefa út íbúakort til íbúa viðkomandi lóða.
Þar sem stæði á lóð eru í sameign allra er óheimilt að gefa út íbúakort til íbúa viðkomandi lóðar nema fyrir liggi eignaskiptayfirlýsing eða afnotaskipting stæða undirrituð af öllum eigendum lóðarinnar. - Umsækjandi þarf að vera skráður eigandi eða umráðamaður bifreiðarinnar sem sótt er um íbúakort fyrir samkvæmt ökutækjaskrá. Skal bifreiðin vera á íslenskum skráningarnúmerum. Sé umsækjandi meðeigandi eða umráðamaður bifreiðar sem sótt er um íbúakort fyrir þurfa aðrir meðeigendur og umráðamenn að eiga sama lögheimili og umsækjandinn, að undanskildum bifreiðum sem fjármagnaðar eru af fjármögnunarfyrirtækjum eða eru í langtímaleigu. Íbúakort eru ekki ætluð bifreiðum sem eru, hvort heldur sem er, lengri en 5,3 metrar eða breiðari en 2,0 metrar.
- Heimilt er að gefa út eitt íbúakort fyrir hverja íbúð. Umsækjandi skal vera skuldlaus við Bílastæðasjóð. Óheimilt er að gefa út fleiri en eitt íbúakort á hverja kennitölu. Það á jafnframt við þó umsækjandi sé skráður eigandi fleiri en einnar íbúðar eða fleiri en eins ökutækis. Upplýsingar um íbúð skulu vera samhljóða skráningu hjá Fasteignaskrá Íslands. Óheimilt er að framselja íbúakort eða nota fyrir aðra bifreið. Bílastæðasjóður hefur heimild til að afturkalla íbúakort.
- Bílnúmer, gildistími og raðtala korthafa er skráð á íbúakortið. Íbúakortinu skal komið fyrir á innanverðri framrúðu bifreiðar bílstjóramegin þannig að það sé læsilegt utan frá.
- Sótt er um íbúakort á heimasíðu Bílastæðasjóðs Reykjavíkur en þar er hægt að nálgast helstu upplýsingar um íbúakort.
- Íbúakort er gefið út í eitt ár í senn. Íbúakort gildir þó aldrei lengur en húsaleigusamningur, sbr. 1. lið. Íbúakort skal greitt fyrirfram. Sama gildir um endurnýjun korta. Til frádráttar getur komið ef um er að ræða endurútgáfu vegna breytinga á bílnúmeri og skal þá árgjald kortsins lækka fyrir hvern heilan mánuð sem eftir er af gildistíma eldra korts, að hámarki 8 mánuði. Breytist aðstæður korthafa, svo sem vegna flutnings, sölu bifreiðar eða af öðrum ástæðum sem valda því að skilyrði til útgáfu íbúakorts eru ekki lengur uppfyllt ber að skila kortinu til Bílastæðasjóðs Reykjavíkur. Íbúakort eru ekki endurgreidd.
- Misnotkun íbúakorts varðar missi kortsins án endurgreiðslu eftirstandandi gildistíma. Handhafi kortsins hefur þá fyrirgert rétti sínum til að fá úthlutað íbúakorti í 2 ár.
Reglur þessar taka gildi við birtingu í Stjórnartíðindum og falla þá úr gildi eldri reglur, sbr. auglýsingu nr. 537/2010.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 21. maí 2015.
Dagur B. Eggertsson.
Fylgiskjal.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 3. júlí 2015