Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
22. janúar 2016
Útgáfudagur
5. febrúar 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 97/2016
22. janúar 2016
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 792/2015.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 792/2015.
| 1.10 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/2053 frá 16. nóvember 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.10. | |
| 2.7 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/2044 frá 16. nóvember 2015 um framkvæmd 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.7. |
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 22. janúar 2016.
Gunnar Bragi Sveinsson.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 5. febrúar 2016