Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjavík

Undirritunardagur

27. febrúar 2017

Útgáfudagur

13. mars 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 204/2017

27. febrúar 2017

AUGLÝSING

um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.

Austurbakki 2, reitir 1, 2 og 11.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs þann 1. febrúar 2017, breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna reita nr. 1, 2 og 11 við Austurbakka 2. Breytingin gengur út á að auka leyfilegt byggingarmagni neðanjarðar á reit 1 og 2. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Hestháls 12.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 17. febrúar 2017, breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 12 við Hestháls. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit til norðurs um 7 metra á 21 metra löngum kafla frá norðvesturhorni byggingarreits í átt að lóðarmörkum Hestháls 10. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar, 27. febrúar 2017.

Björn Axelsson.

B deild - Útgáfud.: 13. mars 2017

Tengd mál