Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hafnarfjarðarkaupstaður

Málaflokkur

Skipulagsmál, Hafnarfjörður

Undirritunardagur

21. maí 2026

Útgáfudagur

5. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 636/2026

21. maí 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.

Óveruleg breyting á deiliskipulagi Golfklúbbsins Keilis.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa 20. maí 2026 í samræmi við heimildir til embættismannaafgreiðslu, að málsmeðferð breytingarinnar fari skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.

Fallið var frá grenndarkynningu þar sem sýnt var að breytingin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.

Breytingin felst í að byggingarreitur er stækkaður til suðurs um 150 fm til að koma fyrir geymsluhúsi í kjallara.

Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Hafnarfirði, 21. maí 2026.

F.h. skipulagsfulltrúa,

Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt.

B deild — Útgáfudagur: 5. júní 2026

Tengd mál