Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Reykjavíkurborg
Málaflokkur
Reykjavík, Byggingarmál, Mannvirki
Undirritunardagur
21. desember 2021
Útgáfudagur
27. desember 2021
Leiðréttingar
10. janúar 2022
HTML-texti og PDF-skjal: Í stað fjárhæðarinnar „4.100 kr.“ í b) í 1. gr. komi: 44.100 kr.
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1550/2021
21. desember 2021
GJALDSKRÁ
fyrir byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar.
Fyrir þjónustu sem byggingarfulltrúinn í Reykjavík innir af hendi skal innheimta gjöld sem hér segir:
1. gr. Úttektir samkvæmt ákvæðum byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
| Áfangaúttekt | 12.600 kr. | |
| Stöðuúttekt | 22.100 kr. | |
| Lokaúttekt: | ||
| a) | Lítið umfang, s.s. minniháttar breytingar á mannvirki og lóð með breytingum á útliti eða fyrirkomulagi, svalaskýli, kvistir, bílskúr, klæðingar húss o.þ.h. | 25.200 kr. |
| b) | Meðal umfang, s.s. minni viðbygging eða nýbygging einbýlis, par- og raðhúss og minni fjölbýlishúss eða breytingar á fyrirkomulagi | 4.100 kr. |
| c) | Mikið umfang, s.s. nýbygging stærri mannvirkja, umfangsmeiri breytingar á fyrirkomulagi | 63.000 kr. |
| Úrtaksskoðun vegna áfangaúttekta | 12.600 kr. | |
| Úttekt byggingarstjóraskipta | 25.200 kr. | |
| Íbúðarskoðun | 25.200 kr. | |
2. gr. Útgáfa vottorða.
| Fokheldisvottorð | 31.500 kr. |
| Vottorð um stöðuúttekt | 22.100 kr. |
| Lokaúttektarvottorð | 22.100 kr. |
| Stöðuleyfi | 20.200 kr. |
3. gr. Byggingarleyfisgjöld.
| Lágmarksgjald við móttöku umsóknar | 12.600 kr. | |
| Hver aðaluppdráttur með umsókn: | ||
| a) | Lítið umfang, s.s. minniháttar breytingar á mannvirki og lóð með breytingum á útliti eða fyrirkomulagi, svalaskýli, svalir, kvistir, klæðingar húss o.þ.h. | 3.200 kr. |
| b) | Meðal umfang, s.s. minni viðbygging eða nýbygging einbýlis, par- og raðhúss og minni fjölbýlishúss ásamt skráningartöflu eða breytingar á fyrirkomulagi | 6.300 kr. |
| c) | Mikið umfang, s.s. nýbygging stærri mannvirkja, umfangsmeiri breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsa eða stærri framkvæmdir sem krefjast einnig skoðunar skipulagsfulltrúa enda falli framkvæmd ekki undir a- eða b-lið | 12.600 kr. |
| Endurumsókn útrunnins byggingarleyfis | 12.600 kr. | |
| Aukagjald fyrir hverja þriðju umfjöllun | 12.600 kr. | |
4. gr. Skoðunargjöld vegna yfirferðar séruppdrátta.
| Einbýlis, par- og raðhús og fjölbýlishús allt að 2.000 m³ | 94.500 kr. | |
| Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús allt að 2.000 m³ | 132.300 kr. | |
| Af hverjum 1.000 m³ byggingar umfram 2.000 m³: | ||
| a) | Einföld bygging, s.s. skemmur, skýli, lager, íþróttahús, gripahús o.þ.h. | 18.900 kr. |
| b) | Hefðbundin bygging, s.s. verslun og skrifstofur, fjölbýlishús, hótel o.þ.h. | 31.500 kr. |
| c) | Sérhæfð bygging, s.s. heilsuverndarhús, menningar- eða rannsóknarhús o.þ.h. | 44.100 kr. |
| Aðrar minni byggingar, s.s. viðbygging, bílgeymsla, anddyri, sólstofa o.fl. | 31.500 kr. | |
| Umfangslitlar breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis | 50.400 kr. | |
| Umfangsmiklar breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis | 100.800 kr. | |
| Breytingar á innra skipulagi sérhúss, klæðning húss, svalaskýli, lóð o.fl. | 18.900 kr. | |
5. gr. Skoðunargjöld vegna yfirlesturs eignaskiptayfirlýsingar.
Eignaskiptayfirlýsing:
| a) | 2-5 eignir | 37.800 kr. |
| b) | 5-15 eignir | 50.400 kr. |
| c) | 15-50 eignir | 63.000 kr. |
| d) | 50 eignir og fleiri | 75.600 kr. |
| Aukagjald fyrir hvern þriðja yfirlestur | 12.600 kr. | |
6. gr. Skoðunargjöld vegna yfirferðar raflagnauppdrátta.
| Íbúðarhúsnæði: | |
| Einbýlis, par- og raðhús 1 x 63A | 17.000 kr. |
| Fjölbýlishús með allt að 10 íbúðum: | |
| Heimtaug 3 x 63A, grunngjald | 17.000 kr. |
| Á hverja íbúð | 900 kr. |
| Stærri fjölbýlishús: | |
| Heimtaug 3 x 100-200A, grunngjald | 17.000 kr. |
| Á hverja íbúð | 2.150 kr. |
| Atvinnuhúsnæði: | |
| Heimtaug 3 x 63A | 25.200 kr. |
| Heimtaug 3 x 100-200A | 67.600 kr. |
| Heimtaug 3 x 315A og stærri | 112.600 kr. |
7. gr.
Sé hönnun mannvirkis sérstaklega vandasöm og/eða umfangsmikil getur byggingarfulltrúi við meðferð byggingarleyfisumsóknar ákveðið að skoðunarstofa annist yfirferð hönnunargagna og úttektir á kostnað eiganda vegna framkvæmdar í heild eða að hluta, sbr. ákvæði í gr. 3.3.1 og 3.3.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
8. gr.
Gjaldskrá þessi sem er sett með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 með síðari breytingum var staðfest í borgarstjórn Reykjavíkur 3. nóvember 2021 og tekur gildi við birtingu.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 21. desember 2021.
Dagur B. Eggertsson.
B deild - Útgáfud.: 27. desember 2021