Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Fóður

Undirritunardagur

15. maí 2026

Útgáfudagur

20. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 517/2026

15. maí 2026

REGLUGERÐ

um (22.) breytingu á reglugerð nr. 1205/2021 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003 um aukefni í fóðri.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætast tuttugu og einn nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2046 frá 10. október 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1486 að því er varðar skilmála leyfisins fyrir kantaxantíni sem fóðuraukefni fyrir tiltekna flokka alifugla, skrautfiska og skrautfugla. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 161.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1254 frá 25. júní 2025 um leyfi fyrir ríbóflavíni, sem er framleitt úr Eremothecium ashbyi CCTCCM 2019833, í formi þurrkaðrar óvirkjaðrar gerjunarafurðar, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 5/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 167.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1776 frá 8. september 2025 um leyfi fyrir blöndu með Bifidobacterium longum CNCM I-5642 sem fóðuraukefni fyrir hunda (leyfishafi er Nestlé Enterprises S.A. – Division Nestlé Purina Petcare Europe, fulltrúi í ESB er Centres de Recherche et Développement Nestlé S.A.S). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 171.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1782 frá 9. september 2025 um leyfi fyrir blöndu með krómklósambandi af DL-meþíóníni sem fóðuraukefni fyrir laxfiska (leyfishafi er Zinpro Animal Nutrition Europe, Inc.) Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 174.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1787 frá 8. september 2025 um leyfi fyrir L-arginíni, sem er framleitt með Corynebacterium glutamicum KCCM 80387, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 7/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 179.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1784 frá 9. september 2025 um leyfi fyrir kapsaísíni sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 7/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 184.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1795 frá 9. september 2025 um leyfi fyrir ríbóflavíni (B2-vítamíni), sem er framleitt með Bacillus subtilis CGMCC 7.449, og blöndu með ríbóflavíni, sem er framleitt með Bacillus subtilis CGMCC 7.449, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 7/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 187.
  8. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2171 frá 29. október 2025 um endurnýjun á leyfi fyrir kalsíum-D-pantótenati (B5-vítamíni) og D-pantenóli (B5-vítamíni) sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 669/2014. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 7/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 191.
  9. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2175 frá 29. október 2025 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með Lactiplantibacillus plantarum CECT 4528 sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 399/2014. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 8/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 196.
  10. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2183 frá 29. október 2025 um endurnýjun á leyfi fyrir L-valíni, sem er framleitt með Corynebacterium glutamicum KCCM 80058, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 848/2014. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 8/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 199.
  11. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2186 frá 29. október 2025 um endurnýjun á leyfi fyrir própansýru, natríumprópíónati og ammóníumprópíónati sem fóðuraukefni fyrir allar landdýrategundir og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 1222/2013 og (ESB) nr. 305/2014. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 8/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 203.
  12. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2176 frá 29. október 2025 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndum með Pediococcus acidilactici NCIMB 30005, Lacticaseibacillus paracasei NCIMB 30151 og Lactiplantibacillus plantarum DSM 16627 sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 849/2014. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 61/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 39.
  13. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2491 frá 10. desember 2025 um leyfi fyrir blöndu með 25-hýdroxýkólekalsíferóli, sem er framleitt með Saccharomyces cerevisiae CBS 146008, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir, að undanskildum alifuglum, svínum og jórturdýrum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 45.
  14. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2497 frá 10. desember 2025 um leyfi fyrir blöndum með Enterococcus faecium DSM 33761, Pediococcus acidilactici DSM 33758, Bifidobacterium animalis DSM 16284, Limosilactobacillus reuteri DSM 33751 og Ligilactobacillus salivarius DSM 16351 sem fóðuraukefni fyrir alifugla til eldis og sem eru aldir til varps eða undaneldis (leyfishafi er Biomin GmbH). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 49.
  15. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2500 frá 11. desember 2025 um leyfi fyrir blöndu með Bacillus velezensis NRRL B-67647, Bacillus pumilus NRRL B-67648 og Bacillus licheniformis NRRL B-67649 sem fóðuraukefni fyrir alifugla til eldis og skrautfugla (leyfishafi er S.I.Lesaffre). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 57.
  16. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2502 frá 11. desember 2025 um leyfi fyrir blöndu með próteasa, sem er framleiddur með Bacillus subtilis CBS 148232 og lífvænlegum gróum Bacillus velezensis NRRL B-50508, Bacillus velezensis NRRL B-50509 og Bacillus subtilis NRRL B-50510, sem fóðuraukefni fyrir eldissvín af öllum svínategundum og fráfærugrísi af aukategundum svína (leyfishafi er Genencor International B.V.). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 61.
  17. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2503 frá 11. desember 2025 um leyfi fyrir blöndu með endó-1,4-betaxýlanasa, endó-1,4-betaglúkanasa og xýlóglúkansértækum endó-beta-1,4-glúkanasa, sem eru framleiddir með Trichoderma citrinoviride DSM 33578, sem fóðuraukefni fyrir alifugla, aðra en alifugla til eldis, alifugla sem eru aldir til varps og til undaneldis og fyrir svínategundir, aðrar en gyltur af öllum svínategundum (leyfishafi er Huvepharma EOOD). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 65.
  18. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2505 frá 11. desember 2025 um leyfi fyrir gúanidínediksýru og blöndu með gúanidínediksýru sem fóðuraukefni í drykkjarvatn fyrir fráfærugrísi og eldissvín og í fóður og drykkjarvatn fyrir eldiskalkúna og kalkúna sem eru aldir til undaneldis (leyfishafi er Alzchem Trostberg GmbH) og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/2628. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 70.
  19. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2513 frá 11. desember 2025 um leyfi fyrir kopar(II)betaínflóka sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 83.
  20. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2543 frá 11. desember 2025 að því er varðar synjun um endurnýjun á leyfi fyrir patentbláu V sem fóðuraukefni fyrir dýr sem gefa ekki af sér afurðir til manneldis og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 643/2013. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 88.
  21. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2498 frá 11. desember 2025 um leyfi fyrir 4-hýdroxý-2,5-dímetýlfúran-3(2H)-óni sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir, að undanskildum köttum og hundum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 91.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 15. maí 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Donika Kolica.

B deild — Útgáfudagur: 20. maí 2026

Tengd mál