Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
21. nóvember 2024
Útgáfudagur
29. nóvember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1362/2024
21. nóvember 2024
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um flugreglur nr. 770/2010.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/666 frá 22. apríl 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 923/2012 að því er varðar kröfur fyrir mannað flug í U-rýmis loftrými samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62, frá 31. ágúst 2023, bls. 969–970.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 188. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 21. nóvember 2024.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2024