Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Kópavogsbær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Kópavogur

Undirritunardagur

1. júní 2026

Útgáfudagur

2. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 620/2026

1. júní 2026

AUGLÝSING

um afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogsbæjar á tillögu að breyttu deiliskipulagi.

Bakkabraut 9-23. Breytt deiliskipulag.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Kópavogs 27. janúar 2026 breytingu á deiliskipulagi Kársneshafnar fyrir lóðina nr. 9-23 við Bakkabraut, svæði 8 á þróunarsvæðinu á Kársnesi (ÞR-1). Í breytingunni felst breytt aðkoma að lóðinni, breytt fyrirkomulag bílastæða og djúpgáma.

Að öðru leyti er vísað í gildandi skilmála.

Málsmeðferð var skv. 1. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.

Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um.

Skipulagið öðlast þegar gildi.

Kópavogi, 1. júní 2026.

Auður D. Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 2. júní 2026

Tengd mál