Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
22. janúar 2026
Útgáfudagur
23. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 38/2026
22. janúar 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Bláskógabyggð.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulag, þjóðgarðurinn á Þingvöllum, frá Haki að Leirum.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag ásamt óverulegri breytingu á núverandi deiliskipulagi sem tekur til þjóðgarðsins á Þingvöllum eftir auglýsingu. Deiliskipulagið felur í sér að skilgreina fyrirkomulag vega, bílastæða, útivistar- og almenningssvæða, göngustíga og gangstétta ásamt mögulegri uppbyggingu svæðisins til framtíðar. Þá verður gerð grein fyrir lóðarmörkum, byggingarreitum, nýtingarhlutfalli og öðrum þeim ákvæðum sem ástæða er til að skilgreina í deiliskipulagi. Helstu markmið skipulagsins eru að tryggja vernd einstakrar náttúru og menningarminja Þingvalla og bæta aðgengi að og um vesturhluta þjóðgarðsins og auka þjónustu við gesti hans. Samhliða vinnu við deiliskipulag er gerð breyting á gildandi deiliskipulagi sem felst í því að sá hluti deiliskipulagsins sem nær til svæðis austan við Þingvallaveg ásamt svæði sem nær til bílastæða á bökkum Hrútagilslækjar vestan Þingvallavegar er felldur úr gildi auk deiliskipulags sem tekur til Valhallar- og þingplans. Niðurfelling þessara hluta skipulagsáætlana svæðisins er gerð samhliða samþykkt þessa deiliskipulags en þeir skilmálar sem við eiga eru nýttir innan nýs deiliskipulags. Skipulagstillagan er lögð fram í formi greinargerðar og yfirlitsuppdráttar auk þess sem lagðir eru fram þrír deiliskipulagsuppdrættir af hverju svæði fyrir sig sem skiptast í suðurhluta, miðhluta og norðurhluta. Umsagnir og athugasemdir bárust við tillöguna og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum og viðbrögðum umsækjanda.
Samþykkt í sveitarstjórn 21. janúar 2026.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 22. janúar 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 23. janúar 2026