Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Mosfellsbær

Málaflokkur

Sorphreinsun, Mosfellsbær

Undirritunardagur

4. desember 2024

Útgáfudagur

19. desember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1553/2024

4. desember 2024

GJALDSKRÁ

fyrir meðhöndlun heimilisúrgangs í Mosfellsbæ.

1. gr.

Innheimt er gjald fyrir meðhöndlun úrgangs frá heimilum í Mosfellsbæ eins og nánar er kveðið á um í gjaldskrá þessari.

2. gr.

Gjöldin samanstanda af breytilegum og föstum kostnaði vegna hirðu og losunar sveitarfélagsins og er ætlað að standa undir öllum kostnaði tengdum meðhöndlun heimilisúrgangs.

Breytilegu gjaldi, byggt á lítrafjölda hvers íláts, er ætlað að standa undir kostnaði við hirðu, förgun og öðrum kostnaði í tengslum við sorphirðuna.

Fast gjald er gjald vegna reksturs grenndar- og endurvinnslustöðva sem er ætlað að standa undir kostnaðarhlutdeild sveitarfélagsins í rekstri grenndar- og endurvinnslustöðva SORPU bs.

3. gr.

Gjald fyrir blandaðan úrgang – hirðutíðni á 14 daga fresti
Gjaldaflokkur nr. Tegund íláta Gjald kr./ílát á ári
1B 240 l tunna 57.710
1E 660 l kar 158.701
1F 2.000 l djúpgámur 480.913
1G 4.000 l djúpgámur 961.825
1H 5.000 l djúpgámur 1.202.281
Gjald fyrir matarleifar (lífúrgang) – hirðutíðni á 14 daga fresti
Gjaldaflokkur nr. Tegund íláta Gjald kr./ílát á ári
2A 140 l tunna 16.039
2F 2.000 l djúpgámur 229.134
Gjald fyrir tvískipta tunnu blandaðs úrgangs og matarleifa – hirðutíðni á 14 daga fresti
Gjaldaflokkur nr. Tegund íláta Gjald kr./ílát á ári
3C 240 l tvískipt tunna 45.624
Gjald fyrir pappír/pappa – hirðutíðni á 21 dags fresti
Gjaldaflokkur nr. Tegund íláta Gjald kr/ílát á ári
4B 240 l tunna 6.979
4E 660 l kar 19.193
4F 2.000 l djúpgámur 58.161
4G 4.000 l djúpgámur 116.321
4H 5.000 l djúpgámur 145.402
Gjald fyrir plastumbúðir – hirðutíðni á 21 dags fresti
Gjaldaflokkur nr. Tegund íláta Gjald kr./ílát á ári
5B 240 l tunna
5E 660 l kar 7.074
5F 2.000 l djúpgámur 19.454
5G 4.000 l djúpgámur 58.950
5H 5.000 l djúpgámur 117.901
147.376
Gjald fyrir tvískipta tunnu pappír/pappa og plastumbúðir* – hirðutíðni á 21 dags fresti
Gjaldaflokkur nr. Tegund íláta Gjald kr./ílát á ári
6C 240 l tvískipt tunna 7.017
*Ath. aðeins í boði fyrir fámenn sérbýli (1-2 íbúa)
Gjald vegna reksturs grenndar- og endurvinnslustöðva
Gjaldaflokkur nr. Tegund þjónustu Fast gjald kr. á íbúð
7 Rekstur grenndar- og endurvinnslustöðva 25.353
Aðrir gjaldaliðir
Umsýslugjald fyrir breytta samsetningu íláta
Gjaldaflokkur nr. Tegund þjónustu Gjald kr./skipti
8 Breyting á samsetningu íláta vegna sorphirðu 3.300

4. gr.

Aukalosun er á ábyrgð heimilanna. Íbúum er bent á að leita til þjónustuaðila ef óskað er eftir losun á milli sorphirðudaga.

5. gr.

Í fjöleignarhúsum, með sameiginleg ílát fyrir úrgang, er gjöldum vegna meðhöndlunar heimilisúrgangs skipt eftir hlutfallstölum, þ.e. þeim eignarhluta sem viðkomandi íbúðareigandi á í heildarhúseigninni, sbr. lög um fjöleignarhús.

6. gr.

Gjöld skv. 3 gr. eru innheimt samhliða fasteignagjöldum. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar. Sorphirðugjald skal tryggt með lögveði í viðkomandi fasteign í tvö ár frá gjalddaga. Sveitarfélagið annast innheimtu gjalda samkvæmt þessari gjaldskrá.

7. gr.

Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar á 862. fundi 4. desember 2024 með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og 2. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, og öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá um sama efni nr. 1491/2023.

Mosfellsbæ, 4. desember 2024.

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 19. desember 2024

Tengd mál