Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Velferðarráðuneytið (2011-2018)
Málaflokkur
Félagsmál
Undirritunardagur
10. júlí 2015
Útgáfudagur
23. júlí 2015
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 85/2015
10. júlí 2015
LÖG
um úrskurðarnefnd velferðarmála.
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI Hlutverk, skipan og starfshættir.
1. gr. Hlutverk.
Úrskurðarnefnd velferðarmála skal úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Úrskurðarnefndin er sjálfstæð og óháð í störfum sínum.
2. gr. Nefndarskipan.
Nefndin skal skipuð tólf nefndarmönnum sem skipaðir skulu þannig:
- Ráðherra skipar formann úrskurðarnefndar velferðarmála og þrjá nefndarmenn í fullt starf til fimm ára að undangenginni auglýsingu samkvæmt ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins um embættismenn og að fenginni umsögn matsnefndar skv. 2. tölul. Þeir skulu uppfylla skilyrði um embættisgengi héraðsdómara. Um réttindi þeirra og skyldur fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Laun og starfskjör þeirra skulu ákveðin af kjararáði.
- Ráðherra skal skipa þrjá menn í matsnefnd sem meta skal hæfni umsækjenda um embætti nefndarmanna í úrskurðarnefnd velferðarmála. Tveir nefndarmanna í matsnefnd skulu tilnefndir af Hæstarétti og skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar. Matsnefndin skal láta ráðherra í té skriflega rökstudda umsögn um umsækjendur.
- Ráðherra skipar átta aðra nefndarmenn og jafnmarga til vara til fjögurra ára í senn. Þrír þeirra skulu hafa embættis- eða meistarapróf í lögfræði, einn skal vera læknir og einn skal hafa sérþekkingu á sviði barnaverndarmála. Þess skal gætt að innan nefndarinnar sé jafnan nauðsynleg sérþekking á þeim sviðum sem fjallað er um í nefndinni. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti og uppfylla sömu hæfisskilyrði og aðalmenn.
3. gr. Starfshættir.
Formaður
nefndarinnar
gegnir
jafnframt
embætti
forstöðumanns
úrskurðarnefndarinnar,
hefur
yfirstjórn
hennar
með
höndum
og
ber
ábyrgð
á
fjárhag
hennar
og
daglegum
rekstri.
Hann
fer
með
fyrirsvar
nefndarinnar
út
á
við.
Forstöðumaður
ræður
starfsfólk
nefndarinnar.
Úrskurðarnefndin
skal
starfa
í
fjórum
þriggja
manna
deildum.
Ef
mál
er
viðamikið
eða
fordæmisgefandi
getur
formaður
ákveðið
að
fimm
menn
eigi
sæti
í
nefndinni
við
umfjöllun
um
það.
Formaður
ákvarðar
hvernig
nefndin
er
skipuð
í
hverju
máli.
Hann
skal
gæta
þess
að
í
nefndinni
eigi
hverju
sinni
sæti
þeir
sem
bestu
þekkingu
hafa
til
úrlausnar
málsins.
Formaður
eða
nefndarmaður
sem
skipaður
er
í
fullt
starf
skv.
1.
tölul.
2.
gr.
stýrir
störfum
nefndarinnar
við
umfjöllun
máls.
Þegar
nefndarmenn
eru
ekki
sammála
ræður
meiri
hluti
niðurstöðu
máls.
Nefndinni
er
heimilt
að
kveðja
sér
til
ráðgjafar
og
aðstoðar
sérfróða
menn
við
meðferð
einstakra
mála.
Skulu
þeir
starfa
með
nefndinni
við
undirbúning
og
meðferð
máls
eftir
ákvörðun
formanns.
4. gr. Vernd persónuupplýsinga.
Um
vinnslu
nefndarmanna
og
starfsmanna
og
ráðgjafa
nefndarinnar
á
persónuupplýsingum
fer
samkvæmt
lögum
um
persónuvernd
og
meðferð
persónuupplýsinga.
Nefndarmönnum,
starfsmönnum
og
ráðgjöfum
nefndarinnar
er
óheimilt
að
viðlagðri
ábyrgð
eftir
ákvæðum
almennra
hegningarlaga
um
brot
í
opinberu
starfi
að
skýra
óviðkomandi
aðilum
frá
persónuupplýsingum
sem
þeir
komast
að
í
starfi
sínu
og
leynt
eiga
að
fara.
Þagnarskylda
helst
þótt
látið
sé
af
starfi.
II. KAFLI Málsmeðferð.
5. gr. Kærufrestur.
Stjórnsýslukæra skal berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Kæra telst nógu snemma fram komin ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist nefndinni eða verið póstlagt áður en fresturinn er liðinn.
6. gr. Upplýsingaskylda og gagnaöflun.
Stjórnvöldum er skylt að láta úrskurðarnefnd velferðarmála í té öll gögn máls, svo og þær upplýsingar og skýringar sem hún telur nauðsynlegar vegna úrlausnar máls. Um upplýsingaskyldu og gagnaöflun fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum laga sem stjórnsýslukæra byggist á.
7. gr. Málsmeðferð.
Málsmeðferð
fyrir
úrskurðarnefndinni
skal
að
jafnaði
vera
skrifleg.
Nefndin
getur
þó
ákveðið
að
kalla
málsaðila
eða
fulltrúa
þeirra
á
sinn
fund.
Úrskurðarnefndin
skal
tryggja
að
aðili
máls
eigi
þess
kost
að
tjá
sig
um
efni
máls
áður
en
nefndin
kveður
upp
úrskurð
sinn,
enda
telji
nefndin
að
afstaða
hans
og
rök
fyrir
henni
liggi
ekki
fyrir
í
gögnum
málsins
eða
slíkt
sé
augljóslega
óþarft.
Úrskurðarnefndin
skal
kveða
upp
úrskurð
svo
fljótt
sem
kostur
er
og
að
jafnaði
innan
þriggja
mánaða
eftir
að
henni
berst
mál
nema
sérstakar
ástæður
hamli,
og
skal
kærandi
þá
upplýstur
um
ástæður
tafar
og
hvenær
vænta
má
úrskurðar.
Um
afgreiðslutíma
mála
sem
kærð
eru
til
nefndarinnar
samkvæmt
ákvæðum
18.
gr.
laga
um
greiðsluaðlögun
einstaklinga,
nr.
101/2010,
fer
samkvæmt
þeim
lögum.
Úrskurðir
nefndarinnar
eru
endanlegir
á
stjórnsýslustigi
og
verður
ekki
skotið
til
æðra
stjórnvalds.
Að
öðru
leyti
fer
um
málsmeðferð
hjá
nefndinni
samkvæmt
ákvæðum
stjórnsýslulaga
og
ákvæðum
laga
sem
málskotsréttur
til
nefndarinnar
byggist
á
hverju
sinni.
8. gr. Réttaráhrif og aðfararhæfi.
Stjórnsýslukæra
frestar
ekki
réttaráhrifum
kærðrar
ákvörðunar
nema
á
annan
veg
sé
mælt
í
lögum
sem
kæranleg
ákvörðun
byggist
á.
Úrskurðarnefndinni
er
þó
heimilt
að
fresta
réttaráhrifum
kærðrar
ákvörðunar
meðan
kæra
er
til
meðferðar
þar
sem
ástæður
mæla
með
því.
Um
aðfararhæfi
úrskurða
nefndarinnar
fer
samkvæmt
ákvæðum
laga
sem
kæranleg
ákvörðun
byggist
á.
III. KAFLI Ýmis ákvæði.
9. gr. Birting úrskurða. Ársskýrsla.
Nefndin
skal
birta
úrskurði
sína
með
aðgengilegum
og
skipulegum
hætti.
Þeir
skulu
birtir
án
nafna,
kennitalna
og
annarra
persónugreinanlegra
auðkenna.
Heimilt
er
að
undanskilja
úrskurði
birtingu
ef
sérstök
vandkvæði
eru
á
að
tryggja
persónuvernd.
Nefndin
skal
árlega
skila
ráðherra
skýrslu
um
störf
sín
og
helstu
niðurstöður
og
ályktanir
sem
draga
má
af
úrskurðum
nefndarinnar.
10. gr. Kostnaður.
Kostnaður við starfsemi úrskurðarnefndar velferðarmála greiðist úr ríkissjóði. Kostnaður af málum sem kærð eru til nefndarinnar samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar skal þó greiddur úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt ákvæðum þeirra laga.
11. gr. Reglugerð.
Ráðherra
getur
sett
nánari
ákvæði
um
úrskurðarnefndina
í
reglugerð,
þ.m.t.
um
erindi
til
nefndarinnar,
starfshætti,
málsmeðferð,
birtingu
úrskurða
og
efni
ársskýrslu.
Nefndin
getur
sett
sér
verklagsreglur
þar
sem
nánar
verður
kveðið
á
um
störf
nefndarinnar.
Þær
skulu
staðfestar
af
ráðherra.
12. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2016. Ákvæði 2. gr. og ákvæði til bráðabirgða I taka þó þegar gildi.
13. gr. Breytingar á öðrum lögum.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:
-
Barnaverndarlög, nr. 80/2002, með síðari breytingum:
- Í stað orðanna „kærunefnd barnaverndarmála“ í 2. mgr. 3. gr., 2. mgr. 47. gr., 4. mgr. 51. gr. og 1. mgr. 52. gr. laganna kemur: úrskurðarnefnd velferðarmála.
-
6. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Úrskurðarnefnd velferðarmála.
Heimilt er að skjóta úrskurðum og stjórnsýsluákvörðunum barnaverndarnefnda, eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum þessum, til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. lög um úrskurðarnefnd velferðarmála. Enn fremur er unnt að skjóta til nefndarinnar ákvörðunum Barnaverndarstofu skv. 3., 5. og 6. mgr. 15. gr., 66. gr., 3. mgr. 84. gr., 4. mgr. 89. gr. c og 2. mgr. 91. gr.
- Í stað orðanna „kærunefndar barnaverndarmála“ í 7. mgr. 15. gr., 2. mgr. 19. gr., 4. mgr. 21. gr., 1. og 2. mgr. 23. gr., 2. mgr. 25. gr., 3. mgr. 26. gr., 4. mgr. 33. gr., 2. mgr. 49. gr., 1. og 2. mgr. 50. gr., 1. mgr. 51. gr., 4. mgr. 52. gr., 2. mgr. 67. gr. b, 6. og 8. mgr. 74. gr., 2. mgr. 74. gr. a, 3. mgr. 77. gr., 6. og 9. mgr. 81. gr., 6. mgr. 82. gr., 2. mgr. 89. gr. og 4. mgr. 89. gr. c laganna kemur: úrskurðarnefndar velferðarmála.
- Í stað tilvísunarinnar „1. mgr. 6. gr.“ í 1. mgr. 51. gr. laganna kemur: 6. gr.
- Í stað orðsins „Kærunefnd“ í 2. mgr. og tvisvar í 3. mgr. 51. gr. laganna; og í stað orðsins „kærunefndin“ í 4. mgr. sömu greinar kemur: Úrskurðarnefndin; og: úrskurðarnefndin.
- Í stað orðsins „kærunefnd“ tvívegis í 2. mgr.; orðsins „Kærunefnd“ þrívegis í 3. mgr.; og orðsins „kærunefndin“ í 4. mgr. 52. gr. laganna kemur: úrskurðarnefnd; Úrskurðarnefndin; og: úrskurðarnefndin. Jafnframt orðast fyrirsögn sömu greinar svo: Málsmeðferð barnaverndarmála fyrir úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Fyrirsögn IX. kafla laganna verður: Málsmeðferð barnaverndarmála fyrir úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Orðin „störfum kærunefndar barnaverndarmála svo og“ í 1. mgr. 88. gr. laganna falla brott.
-
Lög um greiðsluaðlögun einstaklinga, nr. 101/2010, með síðari breytingum:
- Í stað orðanna „kærunefndar greiðsluaðlögunarmála“ í 2. málsl. 4. mgr. 7. gr., 3. málsl. 1. mgr. 15. gr., 2. málsl. 2. mgr. 18. gr., 2. mgr. 19. gr., 4. málsl. 3. mgr. 24. gr., 5. málsl. 1. mgr. 26. gr. laganna og 3. málsl. 6. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II í lögunum kemur: úrskurðarnefndar velferðarmála.
- Í stað orðsins „kærunefndar“ í 3. málsl. 1. mgr. 15. gr. laganna kemur: úrskurðarnefndar.
- Í stað orðsins „kærunefndin“ í 4. málsl. 2. mgr. 18. gr. laganna kemur: úrskurðarnefndin.
-
32. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Heimilt er að skjóta ákvörðunum samkvæmt ákvæðum laga þessara til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. lög um úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Í stað orðanna „kærunefnd greiðsluaðlögunarmála“ í 4. málsl. 6. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II í lögunum kemur: úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Lög um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum: Í stað orðsins „almannatrygginga“ í 1., 2. og 4. mgr. 36. gr. laganna; og í stað orðsins „almannatryggingar“ í 1. mgr. sömu greinar kemur: velferðarmála; og: úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Lög um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000, með síðari breytingum: Í stað orðsins „almannatrygginga“ í 16. gr. laganna kemur: velferðarmála; og í stað orðsins „almannatryggingar“ í sama ákvæði kemur: úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Lög um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, með síðari breytingum: Í stað orðsins „almannatrygginga“ í 14. gr. laganna kemur: velferðarmála.
-
Lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, með síðari breytingum:
-
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:
- 1., 3. og 4. mgr. falla brott.
-
2.
mgr.
orðast
svo:
Úrskurðarnefnd velferðarmála skal kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. -
6.
mgr.
orðast
svo:
Kostnaður af starfsemi úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ágreiningsmála sem vísað er til nefndarinnar á grundvelli 2. mgr. greiðist úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt ákvörðun ráðherra. - Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Málskot.
-
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:
- 1., 2., 3. og 5. mgr. falla brott.
- Í stað orðsins „stjórnsýslulaga“ í 6. mgr. kemur: laga um úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Málsmeðferð fyrir úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Í stað orðanna „atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða“ í 5. mgr. 39. gr. laganna kemur: velferðarmála.
-
-
Lög
um
vinnumarkaðsaðgerðir,
nr.
55/2006,
með
síðari
breytingum:
9.
gr.
laganna
orðast
svo:
Heimilt er að kæra ákvarðanir Vinnumálastofnunar sem teknar eru á grundvelli laga þessara til úrskurðarnefndar velferðarmála. Um málsmeðferð fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd velferðarmála og lögum um atvinnuleysistryggingar. -
Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, með síðari breytingum:
-
63.
gr.
laganna
orðast
svo:
Málsaðili getur skotið ákvörðun félagsmálanefndar til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. 64. gr. - Í stað orðanna „félagsþjónustu og húsnæðismála“ í 64. gr. laganna kemur: velferðarmála.
- 65. gr. laganna fellur brott.
-
63.
gr.
laganna
orðast
svo:
-
Lög um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum:
-
42. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Málsaðili getur skotið ákvörðun Íbúðalánasjóðs, húsnæðisnefndar eða þeirrar nefndar á vegum sveitarfélags sem falið hefur verið verkefni húsnæðisnefndar til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. lög um úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Í stað orðanna „félagsþjónustu og húsnæðismála“ í 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I í lögunum kemur: velferðarmála.
-
-
Lög um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992, með síðari breytingum: Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. a laganna:
- Í stað orðanna „félagsþjónustu og húsnæðismála, sbr. XVII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga“ í 1. mgr. kemur: velferðarmála, sbr. lög um úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Í stað orðanna „félagsþjónustu og húsnæðismála“ í 2. mgr. kemur: velferðarmála.
- 3. og 4. mgr. falla brott.
-
Við
bætist
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Um málsmeðferð fer að öðru leyti samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Lög um húsaleigubætur, nr. 138/1997, með síðari breytingum: Í stað orðsins „félagsþjónustu“ í 1. málsl. 16. gr. og 5. mgr. 17. gr. laganna kemur: velferðarmála. Jafnframt orðast 2. málsl. 16. gr. laganna svo: Um málsmeðferð fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd velferðarmála.
-
Lög um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum:
-
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
- 1. og 4. mgr. falla brott.
- Í stað orðanna „Hlutverk úrskurðarnefndar er að“ í 2. mgr. kemur: Úrskurðarnefnd velferðarmála skal.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Málskot.
-
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
- 1.–4., 6. og 7. mgr. falla brott.
- Í stað orðsins „nefndinni“ í 5. mgr. kemur: úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Málsmeðferð fyrir úrskurðarnefnd velferðarmála.
- Í stað orðanna „fæðingar- og foreldraorlofsmála“ í 5. mgr. 15. gr. a, 5. mgr. 17. gr. og 3. mgr. 22. gr. laganna kemur: velferðarmála.
-
-
Lög
um
greiðslur
til
foreldra
langveikra
eða
alvarlega
fatlaðra
barna,
nr.
22/2006,
með
síðari
breytingum:
7.
gr.
laganna
orðast
svo:
Heimilt er að kæra ákvarðanir framkvæmdaraðila um réttindi foreldra langveikra barna og alvarlega fatlaðra barna sem teknar eru á grundvelli laga þessara til úrskurðarnefndar velferðarmála. Um málsmeðferð fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd velferðarmála og 6. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof. -
Lög
um
réttindi
lifandi
líffæragjafa
til
tímabundinnar
fjárhagsaðstoðar,
nr.
40/2009,
með
síðari
breytingum:
7.
gr.
laganna
orðast
svo:
Heimilt er að kæra ákvarðanir framkvæmdaraðila um réttindi líffæragjafa sem teknar eru á grundvelli laga þessara til úrskurðarnefndar velferðarmála. Um málsmeðferð fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd velferðarmála. - Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum: Við 1. mgr. 22. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Nefndarmenn í úrskurðarnefnd velferðarmála sem hafa það starf að aðalstarfi.
Ákvæði til bráðabirgða. I.
Starfsmönnum úrskurðarnefndar almannatrygginga og þeim starfsmönnum ráðuneytisins sem haft hafa störf fyrir úrskurðar- og kærunefndir að aðalstarfi skal boðið starf hjá úrskurðarnefnd velferðarmála. Ákvæði 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins gilda ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessu ákvæði.
II.
Málum sem við gildistöku laga þessara hafa verið tekin til efnismeðferðar eða ákvörðunar um framsendingu eða frávísun á fundi úrskurðar- eða kærunefndar skal lokið hjá þeirri nefnd sem hefur þau til meðferðar. Kærunefnd greiðsluaðlögunarmála skal þó ljúka öllum málum sem bárust nefndinni fyrir 1. janúar 2015. Ráðherra er heimilt að framlengja skipunartíma nefndar þar til hún hefur lokið öllum málum sem hún hafði tekið til efnismeðferðar, þó aldrei lengur en í sex mánuði eftir gildistöku laga þessara. Heimilt er þó að framlengja skipunartíma kærunefndar greiðsluaðlögunarmála um allt að tólf mánuði frá gildistöku laga þessara.
Gjört á Bessastöðum, 10. júlí 2015.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Eygló Harðardóttir.
A deild - Útgáfud.: 23. júlí 2015