Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskólinn á Akureyri

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

21. mars 2024

Útgáfudagur

18. apríl 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 475/2024

21. mars 2024

REGLUR

um breytingu á reglum um doktorsnám og doktorspróf við Háskólans á Akureyri nr. 822/2022.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglnanna:

  1. Í stað orðanna „skrifstofu rektors“ í 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. kemur: rektor.
  2. Orðin „og setur honum erindisbréf“ í 1. málsl. 2. mgr. 3. gr. falla brott.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:

  1. Á eftir orðinu „rannsóknaráætlun“ í 1. málsl. a-liðar 2. mgr. 5. gr. bætast við orðin: fjárhagsáætlun og.
  2. Í stað orðsins „hann“ í 2. málsl. b-liðar 2. mgr. 5. gr. kemur: hún.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglnanna:

  1. Á undan orðinu „eða“ í 3. málsl. a-liðar 1. mgr. 7. gr. bætist við: og/.
  2. Í stað orðanna „hafa lokið doktorsprófi“ í 6. málsl. a-liðar 1. mgr. 7. gr. kemur: uppfylla ofangreindar kröfur.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglnanna:

  1. Orðin „á þar til gerðum eyðublöðum“ í 4. málsl. 2. mgr. 9. gr. falla brott.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglnanna:

  1. Á eftir orðinu „skriflega“ í 1. málsl. 2. mgr. 10. gr. bætast við orðin: beiðni um.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. reglnanna:

  1. 3. málsl. 1. mgr. 13. gr. „Viðmið eru birt í Handbók doktorsnáms“ fellur brott.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. reglnanna:

  1. Orðin „á þar til gerðu eyðublaði“ í 1. málsl. 1. mgr. 14. gr. falla brott.

8. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. reglnanna:

  1. Orðin „og a.m.k. annar þeirra við viðurkenndan háskóla erlendis“ í 2. málsl. 1. mgr. 15. gr. falla brott.

9. gr.

Reglur þessar sem samþykktar voru í háskólaráði 21. mars 2024 eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskólanum á Akureyri, 21. mars 2024.

Eyjólfur Guðmundsson rektor.

B deild - Útgáfud.: 18. apríl 2024

Tengd mál