Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Orkumál
Undirritunardagur
26. mars 2019
Útgáfudagur
29. mars 2019
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 295/2019
26. mars 2019
AUGLÝSING
um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
Í samræmi við 6. gr. laga nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, með síðari breytingu, og fjárlög fyrir árið 2019 hefur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra ákveðið fjárhæð niðurgreiðslna sem hér segir:
| a) | Niðurgreiðsla á raforku til húshitunar: | ||
| á veitusvæði HS Veitna | 5,68 kr./kWst., | ||
| á veitusvæði Orkubús Vestfjarða í dreifbýli | 8,95 kr./kWst., | ||
| á veitusvæði Orkubús Vestfjarða í þéttbýli | 6,20 kr./kWst., | ||
| á veitusvæði Rafveitu Reyðarfjarðar | 5,12 kr./kWst., | ||
| á veitusvæði RARIK í dreifbýli | 8,76 kr./kWst., | ||
| á veitusvæði RARIK í þéttbýli | 5,37 kr./kWst., | ||
| á veitusvæði Veitna ohf., | 5,55 kr./kWst., | ||
| á veitusvæði Norðurorku | 5,66 kr./kWst. | ||
| b) | Niðurgreiðsla á vatni frá kyntum hitaveitum: | ||
| RARIK | 4,35 kr./kWst., | ||
| Orkubú Vestfjarða | 4,48 kr./kWst., | ||
| HS Veitur | 144,20 kr./m³ (3,19 kr./kWst.). | ||
| c) | Niðurgreiðsla á olíu til húshitunar. | ||
| Niðurgreiðsla á olíu til húshitunar tekur mið af meðaltali niðurgreidds raforkuverðs til húshitunar í dreifbýli, nýtni olíuhitunarkerfis og olíuverðs á hverjum ársfjórðungi samkvæmt útreikningum Orkustofnunar. | |||
| d) | Niðurgreiðsla á framleiðslu raforku til húshitunar utan almenns dreifikerfis. | ||
| Niðurgreiðsla á framleiðslu raforku til húshitunar utan almenns dreifikerfis skal vera 2,0 kr./kWst. | |||
Í samræmi við 6. gr. laga nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, og fjárlög fyrir árið 2019, hefur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra ákveðið að hámarksfjöldi niðurgreiddra kWst./ári til hitunar verði 40.000 kWst. sem svarar til 888 m³/ári hjá kyntum hitaveitum og 4.480 lítrar af olíu á ári hjá þeim sem hita með olíu.
Fjárhæðir niðurgreiðslna til húshitunar í þéttbýli og dreifbýli, samkvæmt auglýsingu þessari, taka gildi frá og með 1. apríl 2019.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. mars 2019.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Ingvi Már Pálsson.
Hreinn Hrafnkelsson.
B deild - Útgáfud.: 29. mars 2019