Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Rangárþing eystra

Málaflokkur

Skipulagsmál, Rangárþing eystra

Undirritunardagur

4. júní 2026

Útgáfudagur

5. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 638/2026

4. júní 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Rangárþingi eystra.

Austurvegur 16 – breyting á deiliskipulagi.

Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti 7. maí 2025 breytingu á deiliskipulagi við Austurveg 16 á Hvolsvelli. Með deiliskipulagsbreytingunni er verið heimila að reisa 150 m² rofahús og hámarkshæð verður 7 m frá gólfi jarðhæðar á breyttum byggingarreit. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Einars-, Oddgeirs- og Símonarsel – breyting á deiliskipulagi.

Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti 12. mars 2026 óverulega breytingu á deiliskipulagi við Einars-, Oddgeirs- og Símonarsel. Með deiliskipulagsbreytingunni er verið að leiðrétta skilmála um sorphirðu. Í tillögunni kemur fram að lóðarhafi skuli koma sorpi á Hvolsvöll sem er þvert á samþykktir sveitarfélagsins. Eftir breytinguna verður sorphirða samkvæmt samþykkt Rangárþings eystra um sorphirðu hverju sinni. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Hvolsvelli, 4. júní 2026.

F.h. sveitarstjórnar Rangárþings eystra,

Þóra Björg Ragnarsdóttir, skipulags- og byggingarfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 5. júní 2026

Tengd mál