Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Vestmannaeyjabær
Málaflokkur
Skipulagsmál, Vestmannaeyjar
Undirritunardagur
4. mars 2026
Útgáfudagur
6. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 229/2026
4. mars 2026
AUGLÝSING
um breytt deiliskipulag í Vestmannaeyjabæ.
Deiliskipulag Vesturbæjar – Goðahraun 28-34.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi Vesturbæjar vegna breytinga á fyrirkomulagi lóða við Goðahraun 28-34 var grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og afgreidd á 20. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. febrúar 2026.
Tillagan felur í sér að lóðum við Goðahraun 28–34 er fækkað úr fjórum lóðum í þrjár lóðir. Stærð á lóðum og byggingarreitum er breytt þannig að það samsvari breyttum lóðarmörkum.
Deiliskipulagið hefur hlotið málsmeðferð skv. ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Vestmannaeyjum, 4. mars 2026.
F.h. Vestmannaeyjabæjar,
Dagný Hauksdóttir, skipulags- og umhverfisfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 6. mars 2026