Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Upplýsingar

Undirritunardagur

1. júlí 2022

Útgáfudagur

18. júlí 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 862/2022

1. júlí 2022

AUGLÝSING

um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlutaðeigandi ráðherra, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþága hvers þeirra endurskoðuð eigi síðar en 1. júlí 2025:

  1. Landsbankinn hf.
  2. Orkusalan ehf.
  3. Landsvirkjun sf.

2. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 1. júlí 2022.

Katrín Jakobsdóttir.

Erna Sigríður Sigurðardóttir.

B deild - Útgáfud.: 18. júlí 2022

Tengd mál