Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Mosfellsbær, Náttúrurannsóknir - náttúruvernd

Undirritunardagur

25. apríl 2013

Útgáfudagur

16. maí 2013

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 462/2013

25. apríl 2013

AUGLÝSING

um náttúruvættið Tungufoss í Köldukvísl í Mosfellsbæ.

1. gr.

Um friðlýsinguna.

Umhverfisráðherra hefur að tillögu sveitarfélagsins Mosfellsbæjar og að fengnu áliti Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands ákveðið að friðlýsa Tungufoss og nánasta umhverfi hans. Landsvæðið er friðlýst sem náttúruvætti, skv. 2. tölul. 1. mgr. 53. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999.

Tungufoss er fallegur foss neðarlega í Köldukvísl í Mosfellsbæ, á móts við Leirvogstungu og dregur fossinn nafn sitt af bæjarnafninu. Við Tungufoss má sjá leifar af heimarafstöð sem var reist árið 1930 af bóndanum í Leirvogstungu og bræðrum hans og framleiddi stöðin rafmagn fyrir bæinn fram til ársins 1958. Tveir fallegir hylir eru neðan við Tungufoss: Kerið, sem er beint fyrir neðan fossinn, og Klapparhylur litlu neðar. Nærsvæði fossins er vinsælt til útivistar en hið friðlýsta svæði er 1,4 hektarar að stærð.

2. gr.

Markmið friðlýsingarinnar.

Markmiðið með friðlýsingu Tungufoss sem náttúruvættis er að vernda fossinn sjálfan sem og menningarminjar innan þess. Svæðið hefur mikið útivistargildi enda fjölsótt bæði af bæjarbúum og öðrum gestum og mikilvægt að treysta útivistar- og fræðslugildi þess.

3. gr.

Mörk náttúruvættisins.

Mörk svæðisins liggja frá upphafspunkti sem er um 100 metra ofan við göngubrú yfir Köldukvísl. Markalínan liggur í um 200 metra í norðausturátt meðfram Köldukvísl að vestanverðu, en um 50 metra ofan við Tungufoss liggur hún þvert yfir Köldukvísl og í brún klettabeltis austan við ána. Línan fylgir brúninni u.þ.b. 250 metra niður með ánni að horni sem er um 100 metra frá áðurnefndri göngubrú. Þaðan liggja mörkin þvert yfir Köldukvísl í upphafspunkt.

Mörk svæðisins eru nánar skilgreind í hnitatöflu (ISN93) og á meðfylgjandi uppdrætti í fylgiskjali.

Nr. X Y
101 369610,278 411126,472
102 369632,804 411089,479
103 369683,245 411116,727
104 369707,300 411135,339
105 369716,606 411147,630
106 369718,362 411160,974
107 369725,210 411172,036
108 369734,516 411181,517
109 369742,944 411201,939
110 369735,311 411236,625
111 369749,777 411252,745
112 369754,944 411282,505
113 369714,851 411297,612
114 369684,264 411253,985

4. gr.

Verndun gróðurs og landslags.

Óheimilt er að spilla jarðmyndunum og gróðri innan náttúruvættisins. Ræktun og dreifing framandi plöntutegunda er óheimil innan marka þess, í samræmi við reglugerð um innflutning, ræktun og dreifingu erlendra plöntutegunda nr. 583/2000. Umsjónaraðila, í samráði við Umhverfisstofnun, er heimilt að uppræta framandi tegundir svo sem alaskalúpínu (Lupinus nootkatensis), skógarkerfil (Anthriscus sylvestris) og spánarkerfil (Myrrhis odorata).

5. gr.

Veiði og notkun skotvopna.

Notkun skotvopna er bönnuð innan marka náttúruvættisins.

Landeigendum og öðrum rétthöfum er heimil stangveiði í ánni eins og verið hefur í samræmi við ákvæði laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði.

6. gr.

Umferð og umgengni um náttúruvættið.

Almenningi er heimil för um náttúruvættið en fylgja skal merktum stígum og leiðum í samræmi við fyrirmæli hverju sinni. Öllum er skylt að ganga vel og snyrtilega um svæðið. Óheimilt er að urða eða henda rusli og úrgangi innan náttúruvættisins.

Umferð vélknúinna farartækja og lausaganga hunda er óheimil innan marka þess.

7. gr.

Umsjón með náttúruvættinu.

Umsjón og rekstur náttúruvættisins skal vera í höndum Mosfellsbæjar samkvæmt sérstökum samningi milli sveitarfélagsins og Umhverfisstofnunar sem umhverfisráðherra staðfestir.

Í samningnum skal meðal annars kveðið á um réttindi og skyldur samningsaðila, reglulegt eftirlit og fræðslu.

8. gr.

Verndar- og stjórnunaráætlun.

Umhverfisstofnun skal sjá um gerð verndar- og stjórnunaráætlunar fyrir náttúruvættið Tungufoss í Köldukvísl í samráði við Mosfellsbæ, sbr. d-lið 2. mgr. 6. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999.

Í verndar- og stjórnunaráætluninni skal fjallað um nauðsynlegar verndaraðgerðir, landvörslu og landnýtingu, s.s. aðgengi ferðamanna að svæðinu, stígagerð og uppbyggingu þjónustumannvirkja.

9. gr.

Landnotkun og mannvirkjagerð.

Mannvirkjagerð, jarðrask og aðrar breytingar á landi innan marka náttúruvættisins eru óheimilar, nema með leyfi Umhverfisstofnunar og Mosfellsbæjar og að teknu tilliti til ákvæða laga nr. 160/2010 um mannvirki og skipulagslaga nr. 123/2010. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við gildandi skipulagsáætlun og verndar- og stjórnunaráætlun.

10. gr.

Refsiákvæði.

Brot gegn friðlýsingu þessari varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, sbr. 75. og 76. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999.

11. gr.

Gildistaka.

Friðlýsingin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 25. apríl 2013.

Svandís Svavarsdóttir.

Guðríður Þorvarðardóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 16. maí 2013

Tengd mál