Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Þjóðgarðar, Þingvellir

Undirritunardagur

29. júní 2018

Útgáfudagur

29. júní 2018

Leiðréttingar

2. júlí 2018

PDF-skjal: Í stað „Hópferðabílar fyrir 10 farþega eða fleiri, kr. 3.500“ í d-lið 5. mgr. 1. gr. fylgiskjals komi: Hópferðabílar fyrir 20 farþega eða fleiri, kr. 3.500.

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 659/2018

29. júní 2018

AUGLÝSING

um staðfestingu reglna Þingvallanefndar um gestagjöld innan þjóðgarðsins á Þingvöllum fyrir veitta þjónustu og dvöl þar.

Með vísan til 1. mgr. 7. gr. laga nr. 47/2004, um þjóðgarðinn á Þingvöllum, sbr. e-lið 6. gr. reglugerðar nr. 848/2005, hefur umhverfis- og auðlindaráðherra staðfest reglur Þingvallanefndar um gestagjöld innan þjóðgarðsins á Þingvöllum fyrir veitta þjónustu og dvöl þar sem birtar eru sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Auglýsingin öðlast gildi 1. júlí 2018. Frá sama tíma falla úr gildi auglýsing nr. 184/2013 um staðfestingu reglna Þingvallanefndar um gestagjöld vegna köfunar og fyrir yfirborðsköfun í Silfru innan þjóðgarðsins á Þingvöllum og auglýsing nr. 620/2015 um staðfestingu reglna Þingvallanefndar um gestagjöld vegna afmarkaðra bílastæða innan þjóðgarðsins á Þingvöllum.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 29. júní 2018.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Stefán Guðmundsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 29. júní 2018

Tengd mál