Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjallabyggð

Málaflokkur

Hafnamál, Fjallabyggð

Undirritunardagur

8. janúar 2015

Útgáfudagur

22. janúar 2015

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 36/2015

8. janúar 2015

GJALDSKRÁ

fyrir Hafnarsjóð Fjallabyggðar.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Fjallabyggðar er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði nr. 1.

Gjaldskráin er við það miðuð að Hafnarsjóður Fjallabyggðar geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri hafna, sbr. 5. tölulið 3. gr. hafnalaga.

II. KAFLI

Um gjaldtöku tengda stærð skipa.

2. gr.

Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.

3. gr.

Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.

Skipagjöld.

4. gr.

Lestargjöld.

Af öllum skipum skal greiða lestargjald, kr. 12,23 á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.

Bryggjugjöld.

Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða kr. 6,12 á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma, sem skip liggur bundið, þó að hámarki 13 sinnum í mánuði.

Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald sem er kr. 75,26 á mælieiningu á mánuði. Þó gilda eftirfarandi lágmörk:

Bátar undir 10 brt, kr. 5.335.
Bátar 10-20 brt, kr. 5.740.
Bátar yfir 20 brt, kr. 8.563.
Farþegabátar hvalaskoðunar og sjóstangveiðibátar yfir 20 tonn greiði tvöfalt viðlegugjald.
Þau skip og bátar sem ekki greiða aflagjald í 6 mánuði samfellt greiði tvöfalt viðlegugjald.

Einnig er heimilt að innheimta bryggjugjöld sem daggjöld af smærri bátum fyrir allt að 10 daga:

Smábátar undir 10 brt, kr. 399 á dag.
Smábátar 10-20 brt, kr. 533 á dag.
Viðlegugjald fyrir fastan bás við flotbryggju N á Siglufirði pr. ár kr. 93.330.
Viðlegugjald fyrir fastan bás við flotbryggju N á Siglufirði pr. 3 mán. kr. 33.332.
Viðlegugjald fyrir fastan bás við flotbryggju S á Siglufirði pr. ár kr. 66.662.
Viðlegugjald fyrir fastan bás við flotbryggju S á Siglufirði pr. 3 mán. kr. 26.667.
Viðlegugjald við flotbryggju án fasts báss á mánuði kr. 6.802.
Legufæragjald á ári kr. 15.129.
Afsláttur ellilífeyrisþega af legufæragjaldi 20%.
Uppsátursgjald kr. 1.667.

Vörugjöld.

5. gr.

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.

6. gr.

Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.

7. gr.

Af vörum, sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft vörugjald.

Af vörum sem koma frá útlöndum og fara eiga áfram til útlanda er heimilt að innheimta fullt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.

8. gr.

Þessar vörur eru undanþegnar vörugjaldi:

a) Umbúðir sem endursendar eru.
b) Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
c) Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
d) Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.

9. gr.

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri, eða afgreiðslumaður skips, skal láta hafnarstarfsmönnum í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarvörðum ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

10. gr.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

Vörugjaldskrá:

1. fl.: Gjald kr. 248,97 fyrir hvert tonn:
Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu og sjávarafurðir.
2. fl.: Gjald kr. 417,12 fyrir hvert tonn:
Lýsi og fiskimjöl.
3. fl.: Gjald kr. 519,21 fyrir hvert tonn:
Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.
4. fl.: Gjald kr. 1.057,46 fyrir hvert tonn:
Allar vörur sem ekki eru tilgreindar í 8. gr. og í 1.-3. flokki.
5. fl.: Aflagjald; 1,6% af vergu aflaverðmæti.
Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum.
Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans. Gjald af fullunnum frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis aflans. Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.
Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Við sölu afla til skyldra aðila skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna skal að lágmarki miðað við skiptaverð Verðlagsstofu skiptaverðs. Heimilt er að semja sérstaklega við stórnotendur. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Seljandi ber skil á greiðslu aflagjalds.
Lágmarksgjald í öllum flokkum er kr. 153,17.
Leiga á gámasvæði, geymsla veiðarfæra.

11. gr.

Leiga fyrir geymslusvæði skal vera eftirfarandi (gáma og báta):

Geymsla á malarsvæði pr. m² kr. 49.
Geymsla á malbikuðu svæði pr. m² kr. 60.
Geymsla á veiðarfærum og öðrum búnaði eða bátum á hafnarköntum er gjaldfrjáls í 5 daga. Þá greiðast kr. 2.435 á hvern hafinn sólarhring.
Geymsla er aðeins heimil með leyfi hafnavarða.

Sorphirða.

12. gr.

Sorphirðugjald atvinnubáta, einstök skipti kr. 1.551.

Sorphirðugjald atvinnubáta, einstök skipti (sérlosun) kr. 8.160.

Sorphirðugjald frístundabáta á mánuði kr. 269.

Sorphirðugjald atvinnubáta undir 20 brt á mánuði kr. 1.551.

Sorphirðugjald atvinnubáta 20-100 brt kr. 2.726.

Sorphirðugjald skipa yfir 100 brt pr. mán. kr. 4.081.

Hafnsögugjöld.

13. gr.

Hafnsögugjöld skulu greidd samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá:

a) Fyrir leiðsögu til hafnarinnar kr. 30.945 fyrir hvert skip, auk kr. 6,57 fyrir hvert brúttótonn. Fyrir leiðsögu frá höfninni greiðist sama gjald.
b) Fari hafnsögumaður um borð í skip utan hafnarmarka greiðist aukalega kr. 20.628.

Festargjöld.

14. gr.

Festargjöld fyrir hverja afgreiðslu þar sem starfsmaður hafnarinnar tekur á móti skipi á dagvinnutíma eru kr. 8.947 á hvern mann. Hafnarverðir meta mönnunarþörf ef óskað er eftir afgreiðslu.

Fyrir hverja afgreiðslu utan dagvinnutíma greiðast kr. 12.837. Sé fleiri en einn maður notaður við afgreiðslu er gjald fyrir hvern aukamann kr. 12.837.

Á stórhátíðum er festargjald 17.117 fyrir hvern mann.

Vatnssala.

15. gr.

Vatnsgjöld: Vatn afgreitt frá bryggju:

Kalt vatn til smábáta er innifalið í viðlegugjaldi.
Kalt vatn kr./m³ til fiskiskipa yfir 30 brt kr. 230.
Kalt vatn kr./m³ til fragtskipa kr. 230.
Lágmarksgjald miðast við 10 tonn.

Vigtargjald.

16. gr.

Grunngjald fyrir vigtun er kr. 1.213, vigtun og kranagjald eru innifalin ef afli er undir 1 tonni.

Almenn vigtun kr. 135 á tonn.

Úrtaksgjald sem ekki er vigtað kr. 80 á tonn.

Stakir bílar kr. 1.455.

Gjald fyrir yfirvinnu við vigtun er kr. 4.978 á klst. á hvern mann. Lágmarksútkall er 2 klst.

Löndunarkranagjald.

17. gr.

Löndun með hafnarkrana kr. 275 pr. tonn. Kranagjald er innifalið í vigtunargjaldi ef aflinn er undir 1 tonni.

Rafmagnssala.

18. gr.

Gámar 40 fet á sólarhring kr. 1.715 eða samkvæmt mæli.

Gámar 20 fet á sólarhring kr. 1.715 eða samkvæmt mæli.

Rafmagnsverð til skipa er samkvæmt taxta rafveitna, með 20% álagi. (14,99 kr. pr. kwst).

Fari tenging fram á dagvinnutíma kr. 3.401.

Fari tenging fram utan dagvinnutíma greiðist tengigjald kr. 6.804.

Fyrir leigu á rafmagnsmæli greiðist kr. 318 á sólarhring.

Rafmagnsgjöld geta tekið breytingum án fyrirvara vegna gjaldskrárbreytinga birgja hafnarinnar hverju sinni.

Móttaka skipa sem falla undir ISPS-kóða.

19. gr.

Öryggisgjald greiðist 1 sinni í mánuði óháð komufjölda kr. 33.946.

Öryggisgjald pr. öryggisvörð í dagvinnu kr. 3.507 á klst.

Öryggisgjald pr. öryggisvörð í yfirvinnu kr. 6.140 á klst.

Farþegagjöld.

20. gr.

Fyrir hvern fullorðinn með farþegabátum og skemmtiferðaskipum kr. 50.

Fyrir hvert barn með farþegabátum og skemmtiferðaskipum kr. 0.

Skemmtiferðaskip skulu skila inn farþegalistum minnst einum sólarhring fyrir komu, en farþegabátar með áætlunarsiglingar til og frá höfnum Fjallabyggðar skila inn gögnum fyrir fjölda farþega mánaðarlega.

Opnunartími hafnavoga.

21. gr.

Hafnarvogin Siglufirði er opin:

a) Á tímabilinu 1. september-30. apríl frá kl. 08.00-18.00 virka daga og frá kl. 16.00-18.00 á laugardögum.
b) Á tímabilinu 1. maí-31. ágúst frá kl. 08.00-21.00 virka daga og frá kl. 16.00-18.00 á laugardögum.

Hafnarvogin Ólafsfirði er opin:

a) Á tímabilinu 1. september-30. apríl frá kl. 08.00-17.00 virka daga.
b) Á tímabilinu 1. maí-31. ágúst frá kl. 08.00-18.00 virka daga og frá kl. 16.00-18.00 á laugardögum.

Opnunartími hafnavoga á grásleppuvertíð er frá kl. 08.00-18.00 virka daga og laugardaga frá kl. 15.00-18.00.

Fyrir þjónustu hafnarvarða utan opnunartíma og eftir kl. 19.00 á tímabili b greiðist yfirvinna.

III. KAFLI

Um innheimtu og greiðslu gjalda.

22. gr.

Skrifstofa Fjallabyggðar sér um innheimtu gjalda skv. gjaldskrá þessari og hefur heimild til að leggja á innheimtugjald kr. 200.

Hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga reiknast dráttarvextir af gjaldfallinni fjárhæð frá gjalddaga skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

23. gr.

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnarsjóðs Fjallabyggðar vegna skipsins. Skipstjóra er skylt við komu til hafnar að gefa starfsmönnum viðkomandi hafnar upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál. Hann skal einnig afhenda þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef þess er krafist vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra. Hafnarsjóður hefur haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni. Skipstjóri getur ekki vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

24. gr.

Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða er komið á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður sem skip hefur siglingu, nema sérstaklega sé samið um annað. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

25. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.

Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum, sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Hafnarsjóði Fjallabyggðar er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

26. gr.

Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hafnarsjóði Fjallabyggðar er skylt að innheimta virðisaukaskatt af gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

IV. KAFLI

Gildistaka.

27. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Fjallabyggðar er samþykkt af hafnarstjórn þann 10. desember 2014, skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 og staðfest af bæjarstjórn þann 15. desember 2014.

Gjaldskráin tekur þegar gildi og er til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Fjallabyggð, 8. janúar 2015.

Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 22. janúar 2015

Tengd mál