Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar, Umhverfismál, Félagsmál, Almannatryggingar, Póstmál
Undirritunardagur
23. desember 2025
Útgáfudagur
29. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 98/2025
23. desember 2025
LÖG
um breytingu á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld (aðgerðir gegn peningaþvætti, viðurlög o.fl.).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
I. KAFLIBreyting á tollalögum, nr. 88/2005.
1. gr.
Orðin „eða 84. gr. búvörulaga, nr. 99/1993“ í 2. mgr. 5. gr. laganna falla brott.
2. gr.
2. mgr. 13. gr. laganna fellur brott.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 27. gr. a laganna:
- Í stað orðanna „og farmönnum“ í 1. mgr. kemur: farmönnum og notendum póstþjónustu hér á landi samkvæmt lögum um póstþjónustu, nr. 98/2019.
- Í stað orðanna „og tollmiðlara“ í 3. mgr. kemur: tollmiðlara og notenda póstþjónustu hér á landi.
4. gr.
3. mgr. 93. gr. laganna fellur brott.
5. gr.
2. málsl. 3. tölul. 98. gr. laganna fellur brott.
6. gr.
2. málsl. 3. tölul. 103. gr. laganna fellur brott.
7. gr.
3. mgr. 107. gr. laganna fellur brott.
8. gr.
Á eftir 116. gr. laganna kemur ný grein, 116. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Leiðréttingar vegna breyttrar framkvæmdar.
Tollyfirvöldum er heimilt að eigin frumkvæði sé þess kostur eða samkvæmt beiðni innflytjanda að leiðrétta ákvörðun um fjárhæð aðflutningsgjalda ef yfirskattanefnd eða dómstólar hafa í hliðstæðu máli endanlega hnekkt framkvæmd sem lá til grundvallar tollafgreiðslu vöru. Sama á við sé beinlínis kveðið svo á um í lögum að fallið sé frá fyrri framkvæmd afturvirkt. Breyting af þessu tilefni getur tekið til álagningar aðflutningsgjalda frá og með því ári sem um var fjallað í máli því sem hliðstætt er talið, þó lengst sex ár aftur í tímann, talið frá því ári þegar mál hófst, svo sem við móttöku beiðni.
9. gr.
Á eftir orðunum „116. gr.“ í 1. mgr. 118. gr. laganna kemur: og 116. gr. a.
10. gr.
Við 156. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. er tollgæslu heimilt að leita í innrituðum farangri farþega og áhafnar að viðkomandi fjarstöddum ef það leiðir til óhóflegra tafa eða annarra erfiðleika að hann sé viðstaddur leitina. Upplýsa skal viðkomandi um að tollskoðun hafi farið fram ef hann hefur ekki verið viðstaddur leitina.
11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 172. gr. laganna:
- 4. mgr. fellur brott.
- Í stað orðanna „1., 3. eða 4. mgr.“ í 5. mgr. kemur: 1. eða 3. mgr.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Gera má lögaðila sekt fyrir brot gegn ákvæði þessu, óháð því hvort brotið verði rakið til saknæms verknaðar fyrirsvarsmanns eða starfsmanns lögaðilans, enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann eða hann hafi notið hagnaðar af brotinu.
12. gr.
Á eftir 172. gr. laganna kemur ný grein, 172. gr. a, svohljóðandi:
Innflytjandi, útflytjandi, tollmiðlari, ferðamaður, farmaður eða notandi póstþjónustu hér á landi sem lætur hjá líða að gera grein fyrir flutningi á fjármunum skv. 27. gr. a, eða veitir rangar eða villandi upplýsingar um slíka flutninga, skal sæta sektum. Sektir skulu nema 20% af verðmæti þeirra fjármuna sem ekki var tilkynnt um.
Gera má lögaðila sekt fyrir brot skv. 1. mgr. óháð því hvort brotið verði rakið til saknæms verknaðar fyrirsvarsmanns eða starfsmanns lögaðilans.
13. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 185. gr. laganna:
- Við 1. málsl. 2. mgr. bætist: sbr. þó 4. mgr.
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Tollyfirvöldum er heimilt að ákveða sekt skv. 172. gr. a ef brot er skýlaust sannað og sökunautur játast undir þá ákvörðun og greiðir sektina þegar í stað. Við slíka sektarákvörðun skal greina í bókun, skýrt og stuttlega, frá því broti sem um er að tefla og refsiákvæði sem það varðar. Um uppgjör á greiðslu sekta fer samkvæmt reglugerð sem ráðherra setur. - Á eftir orðinu „grein“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: þ.m.t. skv. 4. mgr.
- Í stað tilvísunarinnar „2. mgr.“ í 6. mgr. kemur: 2. og 4. mgr.
- Við 6. mgr. bætist: eftir því sem við á.
14. gr.
Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2024“ í 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XIX í lögunum kemur: 30. júní 2026.
II. KAFLIBreyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
15. gr.
Í stað orðanna „tollskrárnúmer 9701.1000–9703.0000“ í 4. tölul. 5. mgr. 2. gr. laganna kemur: vöruliði nr. 9701–9703 í tollskrá.
16. gr.
Í stað orðanna „tollskrárnúmer 9701.1000–9703.0000“ í 2. tölul. 4. gr. laganna kemur: vöruliði nr. 9701–9703 í tollskrá.
17. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 29. gr. A laganna:
- 4. og 5. málsl. falla brott.
- Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ríkisskattstjóra er heimilt að eigin frumkvæði sé þess kostur eða samkvæmt beiðni skattaðila að leiðrétta ákvörðun um virðisaukaskatt ef yfirskattanefnd eða dómstólar hafa í hliðstæðu máli endanlega hnekkt skattframkvæmd sem skattskil eða ákvörðun ríkisskattstjóra var byggð á. Sama á við sé beinlínis kveðið svo á um í lögum að fallið sé frá fyrri framkvæmd afturvirkt. Breyting af þessu tilefni getur lengst tekið til virðisaukaskattsstofns eða virðisaukaskatts frá og með því rekstrarári sem um var fjallað í máli því sem hliðstætt er talið. Um tímamark heimildar til breytinga skv. 1. og 2. málsl. fer skv. 1. málsl. 1. mgr. eftir því sem við á.
Skattaðila er heimilt að kæra ákvarðanir ríkisskattstjóra samkvæmt lagagrein þessari til yfirskattanefndar, sbr. lög um yfirskattanefnd.
18. gr.
Í stað orðanna „tollskrárnúmer 9701.1000–9703.0000” í 4. tölul. 1. mgr. 36. gr. laganna kemur: vöruliði nr. 9701–9703 í tollskrá.
III. KAFLIBreyting á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009.
19. gr.
2. mgr. 13. gr. laganna orðast svo:
Fjárhæð skatts á hvert kíló flúoraðrar gróðurhúsalofttegundar skal vera eftirfarandi:
| Tollnr. (IS) | Iðnaðarheiti | Skattur |
| 2812.9010 | Brennisteinshexaflúoríð (SF6) | 10.000 kr./kg |
| 3827.6110 | Blanda R404A | 9.805 kr./kg |
| 3827.6410 | Blanda R407C | 4.435 kr./kg |
| 3827.6420 | Blanda R407F | 4.563 kr./kg |
| 3827.6310 | Blanda R410A | 5.220 kr./kg |
| 3827.6210 | Blanda R422A | 7.858 kr./kg |
| 3827.6220 | Blanda R422D | 6.823 kr./kg |
| 3827.6120 | Blanda R428A | 9.018 kr./kg |
| 3827.6130 | Blanda R434A | 8.113 kr./kg |
| 3827.6430 | Blanda R437A | 4.513 kr./kg |
| 3827.6320 | Blanda R438A | 5.663 kr./kg |
| 3827.6510 | Blanda R448A | 3.468 kr./kg |
| 3827.6520 | Blanda R449A | 3.493 kr./kg |
| 3827.6140 | Blanda R507 | 9.963 kr./kg |
| 3827.5110 | Blanda R508B | 10.000 kr./kg |
| 3827.6330 | Blanda R452A | 5.350 kr./kg |
| 2903.4411 | HFC-125 | 8.750 kr./kg |
| 2903.4511 | HFC-134 | 2.750 kr./kg |
| 2903.4512 | HFC-134a | 3.575 kr./kg |
| 2903.4412 | HFC-143 | 883 kr./kg |
| 2903.4413 | HFC-143a | 10.000 kr./kg |
| 2903.4311 | HFC-152 | 133 kr./kg |
| 2903.4312 | HFC-152a | 310 kr./kg |
| 2903.4911 | HFC-161 | 30 kr./kg |
| 2903.4611 | HFC-227ea | 8.050 kr./kg |
| 2903.4100 | HFC-23 | 10.000 kr./kg |
| 2903.4612 | HFC-236cb | 3.350 kr./kg |
| 2903.4613 | HFC-236ea | 3.425 kr./kg |
| 2903.4614 | HFC-236fa | 10.000 kr./kg |
| 2903.4711 | HFC-245ca | 1.733 kr./kg |
| 2903.4712 | HFC-245fa | 2.575 kr./kg |
| 2903.4200 | HFC-32 | 1.688 kr./kg |
| 2903.4811 | HFC-365 mfc | 1.985 kr./kg |
| 2903.4313 | HFC-41 | 230 kr./kg |
| 2903.4812 | HFC-43-10 mee | 4.100 kr./kg |
| 2903.4912 | PFC-116 | 10.000 kr./kg |
| 2903.4913 | PFC-14 | 10.000 kr./kg |
| 2903.4914 | PFC-218 | 10.000 kr./kg |
| 2903.4915 | PFC-3-1-10 (R-31-10) | 10.000 kr./kg |
| 2903.4916 | PFC-4-1-12 (R-41-12) | 10.000 kr./kg |
| 2903.4917 | PFC-5-1-14 (R-51-14) | 10.000 kr./kg |
| 2903.8910 | PFC-c-318 | 10.000 kr./kg |
IV. KAFLIBreyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003.
20. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 101. gr. laganna:
- 4. og 5. málsl. 2. mgr. falla brott.
- 3. mgr. orðast svo:
Ríkisskattstjóra er heimilt að eigin frumkvæði sé þess kostur eða samkvæmt beiðni að leiðrétta álagningu á skattaðila ef yfirskattanefnd eða dómstólar hafa endanlega í hliðstæðu máli hnekkt skattframkvæmd sem skattskil eða ákvörðun ríkisskattstjóra var byggð á. Sama á við sé beinlínis kveðið svo á um í lögum að fallið sé frá fyrri skattframkvæmd afturvirkt. Breyting af þessu tilefni getur lengst tekið til skattstofns eða skatts frá og með því tekjuári sem um var fjallað í máli því sem hliðstætt er talið. Um tímamark heimildar til breytinga skv. 1. og 2. málsl. fer skv. 1. málsl. 2. mgr. eftir því sem við á. - Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Skattaðila er heimilt að kæra ákvarðanir ríkisskattstjóra skv. 2. og 3. mgr. til yfirskattanefndar, sbr. lög um yfirskattanefnd.
21. gr.
Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2024“ í ákvæði til bráðabirgða LXXVII í lögunum kemur: 31. desember 2027.
22. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Viðbótarhúsnæðisstuðningur til tekju- og eignaminni Grindvíkinga sem veittur er vegna leigu húsnæðis á tímabilinu 1. apríl 2025 til og með 30. nóvember 2025 á grundvelli 2. mgr. 3. gr. laga um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, nr. 40/2024, telst ekki til skattskyldra tekna samkvæmt lögum þessum.
V. KAFLIBreyting á lögum um póstþjónustu, nr. 98/2019.
23. gr.
Við 30. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Óheimilt er að afhenda póstrekanda sendingu til útlanda eða sendingu til landsins sem inniheldur fjármuni í reiðufé eða handhafabréfum, þ.m.t. ferðatékkum, að fjárhæð sem nemur 10.000 evrum eða meira, miðað við opinbert viðmiðunargengi eins og það er skráð hverju sinni, nema notandi póstþjónustunnar, sendandi vegna sendingar til útlanda eða viðtakandi vegna sendingar til landsins, hafi áður tilkynnt um flutning á fjármunum til tollyfirvalda skv. 27. gr. a tollalaga, nr. 88/2005.
24. gr.
Á undan orðunum „30. gr.“ í 1. málsl. 1. mgr. 46. gr. laganna kemur: 1. mgr.
VI. KAFLIBreyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007.
25. gr.
Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
Viðbótarhúsnæðisstuðningur til tekju- og eignaminni Grindvíkinga sem veittur er vegna leigu húsnæðis á tímabilinu 1. apríl 2025 til og með 30. nóvember 2025 á grundvelli 2. mgr. 3. gr. laga um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, nr. 40/2024, telst ekki til tekna við ákvörðun greiðslna samkvæmt lögum þessum.
VII. KAFLIBreyting á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007.
26. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Viðbótarhúsnæðisstuðningur til tekju- og eignaminni Grindvíkinga sem veittur er vegna leigu húsnæðis á tímabilinu 1. apríl 2025 til og með 30. nóvember 2025 á grundvelli 2. mgr. 3. gr. laga um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, nr. 40/2024, telst ekki til tekna við ákvörðun greiðslna samkvæmt lögum þessum.
27. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Frá og með gildistöku 8., 9., 17. og 20. gr. tekur yfirskattanefnd við öllum óloknum ágreiningsmálum vegna synjunar ríkisskattstjóra, þ.m.t. tollyfirvalda, um breytingu á fyrri ákvörðun sem til meðferðar eru hjá ráðherra.
Gjört á Bessastöðum, 23. desember 2025.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Daði Már Kristófersson.
A deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025