Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Reykhólahreppur

Málaflokkur

Sorphreinsun, Barðastrandarsýslur

Undirritunardagur

15. desember 2025

Útgáfudagur

9. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1718/2025

15. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykhólahreppi.

1. gr.

Sveitarstjórn Reykhólahrepps er heimilt að innheimta gjald fyrir alla meðhöndlun úrgangs og tengda starfsemi. Gjaldið skal lagt á allar íbúðir sem birtar eru í fasteignamati, aukaíbúðir í húsum sem eru birtar í fasteignamati sem óskiptar eignir, lögbýli og atvinnuhúsnæði sem birt eru í fasteignamati. Sorpeyðingargjald er ætlað til að standa undir kostnaði við sorphirðu, móttöku og eyðingu sorps ásamt urðun og kostnaði við rekstur endurvinnslustöðva og grenndarstöðva. Sorpeyðingargjald greiðist til sveitarsjóðs Reykhólahrepps árlega og skulu gjalddagar vera hinir sömu og gjalddagar fasteignagjalda.

2. gr.

Úrgangur frá heimilum í sveitarfélaginu skal flokkaður í 7 flokka og er að lágmarki greitt gjald fyrir grunneiningu fjögurra íláta við húsvegg. Grunneining samanstendur af ílátum fyrir plastefni, pappír og pappa, lífrænan úrgang og blandaðan heimilisúrgang. Til viðbótar skal safna gleri, málmum og textíl sem skila skal í lúgur við endurvinnslustöð.

Sorpílátagjald:
 
Blandaður heimilisúrgangur 240 l tunna 35.500 kr.
Endurvinnslutunna 360 l, plast    9.500 kr.
Endurvinnslutunna 360/660 l tunna, pappír     9.500 kr.
Lífrænn úrgangur 140 l tunna 10.500 kr.

Rekstur grenndar- og söfnunarstöðvar:

Frístundahús og lögbýli í dreifbýli hafa aðgang að grenndarstöðvum á nokkrum stöðum í sveitarfélaginu. Gjald fyrir þá þjónustu er 16.600 kr. yfir árið.

Fast gjald 31.000 kr. er lagt á allar fasteignir í sveitarfélagsins til að standa straum af veittri þjónustu tengdri málaflokknum og er ekki beintengt úrgangsmagni s.s. umsýsla, fræðsla, hreinsun rusls á víðivangi, rekstur endurvinnslustöðvar fyrir gler, málm og textíl og aðgengi að endurvinnslusvæði með gjaldfrjálsan úrgang.

3. gr.

Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga, auk áfallins innheimtukostnaðar. Sorpeyðingargjald skal tryggt með lögveði í viðkomandi fasteign í tvö ár eftir gjalddaga.

4. gr.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt ákvæðum 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Gjöld samkvæmt gjaldskránni miðast við vísitölu neysluverðs í desember 2025 og breytast í samræmi við hana árlega. Gjaldskráin tekur þegar gildi. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1817/2024.

Gjaldskrá þessi er samþykkt í sveitarstjórn Reykhólahrepps 15. desember 2025.

Reykhólahreppi, 15. desember 2025.

Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 9. júní 2026

Tengd mál