Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
30. júní 2025
Útgáfudagur
14. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 792/2025
30. júní 2025
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps vegna efnistökusvæðis við Vatnsfellsvirkjun.
Skipulagsstofnun staðfesti 30. júní 2025 óverulega breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032 sem samþykkt var í hreppsnefnd Ásahrepps 21. maí 2025.
Skilgreining á nýju efnistökusvæði E59 innan eldra námusvæðis á iðnaðarsvæði I7. Efnismagn er allt að 1.500 m³ og flatarmál námusvæðis 0,5 ha.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 30. júní 2025.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 14. júlí 2025