Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

31. mars 2022

Útgáfudagur

1. apríl 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 385/2022

31. mars 2022

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

3.48 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/411 frá 10. mars 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.48.
3.49 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/429 frá 15. mars 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.49.
4.53 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/408 frá 10. mars 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.53.
4.54 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/427 frá 15. mars 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.54.
7.18 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/395 frá 9. mars 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.18.
7.19 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/430 frá 15. mars 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.19.
8.10 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/394 frá 9. mars 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.10.
8.11 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/428 frá 15. mars 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.11.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 31. mars 2022.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 1. apríl 2022

Tengd mál