Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Ríkisstjórn, Stjórnarráð Íslands

Undirritunardagur

9. apríl 2024

Útgáfudagur

9. apríl 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 32/2024

9. apríl 2024

FORSETAÚRSKURÐUR

um skiptingu starfa ráðherra.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands og forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti er störfum þannig skipt með ráðherrum:

1. gr. Forsætisráðherra.

Bjarni Benediktsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir forsætisráðuneytið skv. 1. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið forsætisráðherra.

2. gr. Dómsmálaráðherra.

Guðrún Hafsteinsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir dómsmálaráðuneytið skv. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið dómsmálaráðherra.

3. gr. Félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti skv. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið félags- og vinnumarkaðsráðherra.

4. gr. Fjármála- og efnahagsráðherra.

Sigurður Ingi Jóhannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir fjármála- og efnahagsráðuneytið skv. 4. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið fjármála- og efnahagsráðherra.

5. gr. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið skv. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

6. gr. Heilbrigðisráðherra.

Willum Þór Þórsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið skv. 6. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið heilbrigðisráðherra.

7. gr. Innviðaráðherra.

Svandís Svavarsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir innviðaráðuneytið skv. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið innviðaráðherra.

8. gr. Matvælaráðherra.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir matvælaráðuneytið skv. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið matvælaráðherra.

9. gr. Menningar- og viðskiptaráðherra.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir menningar- og viðskiptaráðuneytið skv. 9. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið menningar- og viðskiptaráðherra.

10. gr. Mennta- og barnamálaráðherra.

Ásmundur Einar Daðason fer með stjórnarmálefni sem heyra undir mennta- og barnamálaráðuneytið skv. 10. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið mennta- og barnamálaráðherra.

11. gr. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Guðlaugur Þór Þórðarson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið skv. 11. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

12. gr. Utanríkisráðherra.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir utanríkisráðuneytið skv. 12. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið utanríkisráðherra.

13. gr.

Úrskurður þessi öðlast þegar gildi. Með úrskurði þessum fellur úr gildi úrskurður nr. 7 frá 31. janúar 2022 um skiptingu starfa ráðherra.

Gjört á Bessastöðum, 9. apríl 2024.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.

A deild - Útgáfud.: 9. apríl 2024

Tengd mál