Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðiseftirlit Austurlands

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Matvæli, Umhverfismál, Múlasýslur, Fjarðabyggð, Múlaþing

Undirritunardagur

2. janúar 2026

Útgáfudagur

16. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 13/2026

2. janúar 2026

GJALDSKRÁ

fyrir heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit á Austurlandssvæði.

1. gr.

Af starfsemi sem háð er starfsleyfi eða eftirliti Heilbrigðiseftirlits Austurlands samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum nr. 6/2002 um tóbaksvarnir og lögum nr. 93/1995 um matvæli og reglugerðum settum með stoð í þeim, er heimilt að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

2. gr.

Tímagjald kr. 19.000
Gjald vegna rannsóknar á neysluvatnssýni, skv. eftirlitsáætlun kr. 35.500
Gjald vegna rannsókna á öðrum sýnum, skv. eftirlitsáætlun kr. 25.500

Af eftirlitsskyldri starfsemi er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta árlegt gjald af starfsemi eins og fram kemur á fylgiskjali, viðauka A, með gjaldskrá þessari, enda fari fram reglubundið eftirlit með starfseminni, samkvæmt eftirlitsáætlun.

Eftirlitsaðila er heimilt að fjölga tímabundið eftirlitsferðum ef nauðsyn krefur t.d. þegar nýr búnaður hefur verið tekinn í notkun eða vegna kvartana. Hækkar þá eftirlitsgjald sem því nemur.

Heimilt er að breyta eftirlitsáætlun hjá einstaka fyrirtæki verði eftirlit frábrugðið s.s. vegna takmarkaðrar starfsemi, vottaðs gæðakerfis eða öflugs innra eftirlits og lækka gjaldið til samræmis.

Ef einungis hluti margþætts eftirlits með starfsemi fer fram, er heimilt að lækka eftirlitsgjald, sem því nemur.

Um starfsemi sem er eftirlitsskyld og ekki kemur fram á fylgiskjali, viðauka A, greiðist eftirlitsgjald eins og um þjónustuverkefni væri að ræða.

3. gr.

Af starfsleyfisskyldri starfsemi og starfsemi sem telst skráningarskyld skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur, er heimilt að innheimta gjald fyrir starfsleyfi, staðfestingu á skráningu og þjónustu sem hér segir:

Ný starfsemi:  
  Starfsleyfisgjald, skráningargjald kr. 35.000
  og eftirlitsgjald í samræmi við viðkomandi  
  fyrirtækjaflokk ásamt auglýsingakostnaði ef við á.  
Endurnýjun og/eða breyting á starfsleyfi:  
  Starfsleyfisgjald og auglýsingakostnaður ef við á kr. 25.000
Önnur starfsleyfi og leyfi sem ekki eru í eftirlitsáætlun, t.d. tóbakssöluleyfi:  
  Starfsleyfisgjald, skráningargjald kr. 35.000
  og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings, ferðar,  
  úttektar og frágangs, ásamt auglýsingakostnaði ef við á.  
Endurnýjun annarra leyfa, sbr. hér að ofan:  
  Starfsleyfisgjald kr. 25.000
Fyrir leyfi útgefin vegna sölu á útimörkuðum eða aðra skammtíma starfsemi:  
  Leyfisgjald og eftirlitsgjald viðkomandi fyrirtækjaflokks kr. 25.000
  eða gjald skv. reikningi vegna undirbúnings, ferðar,  
  úttektar og frágangs, ásamt auglýsingakostnaði ef við á.  

4. gr.

Gjald skv. 3. gr. greiðist við afhendingu leyfisbréfs og reiknast dráttarvextir 30 dögum eftir útgáfudag leyfis.

Heimilt er að semja um annað fyrirkomulag óski rekstraraðilar eftir og skal það þá gert skriflega.

5. gr.

Fyrir vottorð og umsagnir sem Heilbrigðiseftirlit Austurlands gefur út samkvæmt fyrirliggjandi gögnum skal greiða eitt tímagjald.

Gjald fyrir þjónustuverkefni greiðist samkvæmt reikningi.

Ef um aukin eftirlitsverkefni er að ræða, umfram reglubundið eftirlit og sýnatöku sem gert er ráð fyrir í eftirlitsáætlun Heilbrigðiseftirlits Austurlands er heimilt að gera sérstakan reikning vegna þeirra eins og um þjónustuverkefni sé að ræða, nema um annað hafi verið samið.

6. gr.

Aðildarsveitarfélögin annast innheimtu eftirlitsgjalda vegna fyrirtækja með reglubundna starfsemi.

Heilbrigðiseftirlit Austurlands innheimtir önnur gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, s.s. fyrir tímabundna starfsemi, leyfi, vottorð, sýnatökur umfram eftirlitsáætlun og önnur þjónustuverkefni.

Heilbrigðiseftirlitið gerir skrá yfir eftirlitsskylda starfsemi í samræmi við viðauka A sem fylgir gjaldskrá þessari og sendir viðkomandi aðildarsveitarfélagi.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

7. gr.

Þegar sami aðili rekur fleiri en eina tegund eftirlitsskyldrar starfsemi á einum og sama stað, er heimilt að innheimta eitt árlegt gjald. Gjaldið reiknast þannig að tími sem áætlaður er í hverja tegund fyrirtækjaflokks er lagður saman, en einungis eitt akstursgjald tekið, enda sé unnt að samnýta ferðir til eftirlits í allar tegundir umræddrar starfsemi.

8. gr.

Innheimt gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til reksturs heilbrigðiseftirlitsins skv. 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

9. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er af stjórn Byggðasamlags um Heilbrigðiseftirlit Austurlands og samþykkt af aðildarsveitarfélögunum á aðalfundi HAUST 13. nóvember 2025 með vísun til ákvæða 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 25. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 12/2025.

Egilsstöðum, 2. janúar 2026.

F.h. heilbrigðisnefndar Austurlands,

Lára Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 16. janúar 2026

Tengd mál