Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

1. október 2025

Útgáfudagur

15. október 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1065/2025

1. október 2025

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 720/2019 um sameiginlegar kröfur fyrir veitendur þjónustu á sviði rekstrarstjórnunar flugumferðar/flugleiðsöguþjónustu og á sviði starfsemi neta fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og eftirlit með þeim.

1. gr.

Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1771 frá 12. september 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/373 að því er varðar kerfi og kerfishluta rekstrarstjórnunar flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu og um niðurfellingu reglugerða (EB) nr. 1032/2006, (EB) nr. 633/2007 og (EB) nr. 262/2009, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 162/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 504-527.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi. Á sama tíma falla úr gildi reglugerð nr. 601/2008 um kröfur um sjálfvirkt kerfi til að skiptast á fluggögnum milli flugstjórnardeilda, reglugerð nr. 108/2009 um kröfur varðandi beitingu reglna um samskipti milli flugstjórnardeilda við skeytasendingar vegna flugs og reglugerð nr. 693/2010 um kröfur um samræmda úthlutun og notkun á spurnakóðum kögunarsvarratsjár fyrir samevrópska loftrýmið.

Innviðaráðuneytinu, 1. október 2025.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 15. október 2025

Tengd mál