Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Rangárvallasýsla, Náttúrurannsóknir - náttúruvernd
Undirritunardagur
18. nóvember 2024
Útgáfudagur
3. desember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1397/2024
18. nóvember 2024
AUGLÝSING
um niðurfellingu auglýsingar um verndarsvæði á Suðurlandi – vatnasvið Hólmsár í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar.
1. gr.
Með vísan til reglna stjórnsýsluréttar um afturköllun er auglýsing um verndarsvæði á Suðurlandi – vatnasvið Hólmsár í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar, nr. 1021/2021, sem birtist í B-deild Stjórnartíðinda 26. ágúst 2021, felld úr gildi.
2. gr.
Auglýsing þessi er sett með vísan til 4. mgr. 39. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013, og tekur þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 18. nóvember 2024.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Stefán Guðmundsson.
B deild - Útgáfud.: 3. desember 2024