Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

6. mars 2018

Útgáfudagur

23. mars 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 306/2018

6. mars 2018

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 501/2011 um meistaranám við menntavísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað orðsins „fimm“ í 1. málslið 1. mgr. 2. gr. reglnanna kemur: sex.

2. gr.

2. mgr. 7. gr. reglnanna fellur brott.

3. gr.

Í stað orðanna „20-60 einingar“ í 3. málslið 1. mgr. 9. gr. reglnanna kemur: 30-60 einingar.

4. gr.

Í stað orðanna „40-60 einingar“ í 3. málslið 2. mgr. 13. gr. reglnanna kemur: 50 eða 60 einingar.

5. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu menntavísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast gildi frá og með háskólaárinu 2018-2019.

Háskóla Íslands, 6. mars 2018.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 23. mars 2018

Tengd mál