Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Neytendavernd
Undirritunardagur
17. febrúar 2015
Útgáfudagur
4. mars 2015
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 217/2015
17. febrúar 2015
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 944/2014, um öryggi leikfanga og markaðssetningu þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu.
1. gr.
Í stað viðbætis A við II. viðauka reglugerðarinnar kemur eftirfarandi:
Listi yfir CRM-efni og leyfða notkun þeirra í samræmi við 4., 5. og 6. lið 3. hluta.
| Efni | Flokkun | Leyfð notkun |
| Nikkel | CMR 2 |
Í
leikföngum
og
íhlutum
leikfanga
gerðum
úr
ryðfríu
stáli. Í íhlutum leikfanga sem ætlað er að leiða rafmagn. |
2. gr.
Í stað viðbætis C við II. viðauka reglugerðarinnar kemur eftirfarandi:
Sértæk
viðmiðunarmörk
fyrir
íðefni
sem
notuð
eru
í
leikföng,
sem
eru
ætluð
börnum
yngri
en
36
mánaða
eða
önnur
leikföng
sem
gert
er
ráð
fyrir
að
notendur
setji
upp
í
sig,
sem
samþykkt
eru
í
samræmi
við
2.
mgr.
46.
gr.
tilskipunar
2009/48.
| Efni | CAS-númer | Viðmiðunarmörk |
| TCEP | 115-96-8 | 5 mg/kg (viðmiðunarmörk) |
| TCPP | 13674-84-5 | 5 mg/kg (viðmiðunarmörk) |
| TDCP | 13674-87-8 | 5 mg/kg (viðmiðunarmörk) |
| Bisfenol A | 80-05-7 | 0,1 mg/l (flæðimörk) í samræmi við aðferðirnar sem mælt er fyrir um EN 71-10:2005 og EN 71-11:2005 |
3. gr.
Við 30. gr. reglugerðarinnar koma þrír nýir stafliðir, svohljóðandi:
- Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/79/ESB um breytingu á viðbæti C við II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/48/EB um öryggi leikfanga, að því er varðar TCEP, TCPP og TDCP, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 276/2014, frá 12. desember 2014. Bíður birtingar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins.
- Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/81/ESB um breytingu á viðbæti C við II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/48/EB, um öryggi leikfanga, að því er varðar bisfenol A, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 278/2014, frá 12. desember 2014. Bíður birtingar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins.
- Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/84/ESB um breytingu á viðbæti A við II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/48/EB um öryggi leikfanga, að því er varðar nikkel, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 278/2014. Bíður birtingar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins.
4. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 10. gr. og 3. mgr. 13. gr., sbr. 3. mgr. 27. gr. laga nr. 134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, með síðari breytingum, og öðlast hún þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 17. febrúar 2015.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
B deild - Útgáfud.: 4. mars 2015