Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hörgársveit

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Eyjafjarðarsýsla

Undirritunardagur

30. desember 2013

Útgáfudagur

20. janúar 2014

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1305/2013

30. desember 2013

GJALDSKRÁ

fráveitna í Hörgársveit.

1. gr.

Sveitarstjórn Hörgársveitar innheimtir árlega fráveitugjöld skv. gjaldskrá þessari og samþykkt nr. 263/2011 um fráveitur í Hörgársveit.

Fráveitur í Hörgársveit eru tvær, Fráveita Hjalteyrar og Fráveita Lónsbakka. Þar nefnast fráveitugjöldin holræsagjöld. Auk þess gildir gjaldskrá þessi um rotþróargjöld í dreifbýli.

Gjöldin skulu innheimt með fasteignagjöldum.

2. gr.

Álagningarstofn holræsagjalds Fráveitu Hjalteyrar skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja og lóða sem tengjast fráveitunni. Upphæð holræsagjalds skal vera 0,14% af fasteignamati húss og lóðar samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki holræsagjald.

3. gr.

Álagningarstofn holræsagjalds Fráveitu Lónsbakka skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja og lóða sem tengjast fráveitunni. Upphæð holræsagjalds skal vera 0,18% af fasteignamati húss og lóðar samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki holræsagjald.

4. gr.

Fyrir hreinsun og losun rotþróa í Hörgársveit, annarra en þeirra sem eru eign Fráveitu Hjalteyrar og Fráveitu Lónsbakka, skal húseigandi greiða árlegt þjónustugjald, rotþróargjald, sbr. 4. gr. samþykktar nr. 671/2003 um hreinsun og losun rotþróa á starfssvæði heilbrigðisnefndar á Norðurlandi eystra að undanteknum Húsavíkurbæ. Rotþróargjaldið skal vera sem hér segir:

Stærð rotþróar í lítrum Gjald kr.
0-1.800 8.500
1.801-3.600 11.500
3.601-6.000 16.000
6.001-9.000 21.000
9.000 og stærri 39.500

Rotþróargjald fyrir frístundahús sem er tengt 3.600 lítra rotþró eða minni skal vera skv. lægsta gjaldi. Rotþróargjald tekur breytingum skv. byggingarvísitölu. Rotþróargjaldið miðast við vísitölu nóvembermánaðar árið á undan. Byggingarvísitala í nóvember 2010 er 505,8 stig. Þar sem fleiri en einn húseigandi tengist rotþró skal rotþróargjaldi skipt á milli þeirra. Rotþróargjaldið miðast við að hreinsun og tæming rotþróa sé á þriggja ára fresti. Það getur tekið hlutfallslegum breytingum ef hreinsun og tæming er tíðari en á þriggja ára fresti.

5. gr.

Gjalddagar fráveitugjalda skulu vera þeir sömu og fasteignaskatts og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds.

6. gr.

Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

7. gr.

Gjaldskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt V. kafla laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna til að öðlast gildi strax við birtingu hennar. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fráveitna í Hörgársveit nr. 316/2011.

Þelamerkurskóla, 30. desember 2013.

Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 20. janúar 2014

Tengd mál