Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Árborg

Málaflokkur

Sorphreinsun, Sveitarfélagið Árborg

Undirritunardagur

15. desember 2021

Útgáfudagur

6. janúar 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1703/2021

15. desember 2021

GJALDSKRÁ

fyrir sorphirðu og gámasvæði í Sveitarfélaginu Árborg.

1. gr.

Sveitarfélagið Árborg annast sorphirðu frá öllu íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar er heimilt að leggja á sérstakt sorphirðugjald samkvæmt samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Árborg nr. 115/2010.

2. gr.

Sorphirðugjald fyrir íbúðir er árlega sem hér greinir:

Gjaldtegund 120 l spartunna 140 l spartunna og brúntunna 240 l tunna
Sorphreinsunargjald 28.500 kr. 28.500 kr. 28.500 kr.
Sorpeyðingargjald 23.430 kr. 27.335 kr. 36.500 kr.
Samtals 52.000 kr. 55.835 kr. 65.000 kr.

Gjaldið skal innheimt með fasteignagjöldum og er gjalddagi sorpgjalds hinn sami og fasteignagjalda. Sorpgjaldið nýtur lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

Innifalið í sorphirðugjaldi er móttaka á gjaldfrjálsu flokkuðu sorpi til eyðingar og endurvinnslu á gámasvæði Sveitarfélagsins Árborgar.

Innifalið í sorphirðugjaldi er móttaka á heimilissorpi allt að 0,5 m³ á gámasvæði Sveitarfélagsins Árborgar.

Innifalið í sorphirðugjaldi er móttaka á gleri og blátunnuefni í grenndarstöðvar í sveitarfélaginu.

Frá og með 1. janúar 2021 verður ekki hægt að kaupa 120 l heldur verður þess í stað boðið upp á 140 l spartunnu.

Íbúar geta skilað allt að ½ rúmmetra af heimilissorpi á dag til móttökustöðvarinnar gjaldfrjálst.

Af sorpgjaldi vegna sumarhúsa og annars íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu sem nýtt er til tímabundinnar dvalar, án fastrar búsetu, er heimilt að veita allt að 50% afslátt.

Önnur gjöld:

Pokagjald: Sérmerktir sorppokar 480 kr./stk.
Tunnugjald: Nýjar 140 l tunnur 10.560 kr./ílát
Tunnugjald: Nýjar 240 l tunnur 13.530 kr./ílát
Tunnugjald: Ný 600 l ker 43.000 kr./ílát
Samsetningar- og útkeyrslugjald 2.500 kr./ílát
Tunnufesting 3.800 kr./stk.
Teygjufesting á lok í lausasölu 800 kr./stk.
Teygjufesting á lok sett á nýjar tunnur 1.000 kr./stk.

Pokagjald, tunnugjald og/eða samsetningar- og útkeyrslugjald greiðist við afhendingu.

Samsetningar- og útkeyrslugjald greiðist við afhendingu nýrra tunna og ef skipt er milli stærða.

Sé tunnu skipt út fyrir aðra stærð er eldri tunna tekin upp í nýja tunnu. Verð eldri tunnu miðast við verð á nýrri tunnu að frádreginni afskriftarupphæð sem nemur 1/10 fyrir hvert ár sem liðið er frá því notkun hófst.

Sé tunnum fækkað og tunnu skilað er hún innleyst á upprunalegu verði að frádreginni afskriftarupphæð sem nemur 1/10 fyrir hvert ár sem liðið er frá því að notkun hófst.

3. gr.

Gjaldskrá vegna móttökustöðvar í Sveitarfélaginu Árborg (gámastöðvar) skal vera með eftirfarandi hætti, virðisaukaskattur innifalinn:

Óflokkað Kr./kg m.vsk
Blandaður úrgangur:
Að mestu úrgangur sem fer ekki í skilgreindan endurvinnsluferil og þarfnast ekki sérstakrar meðhöndlunar í böggun
52
Grófur úrgangur:
Úrgangur sem þarf að flokka og vinna sérstaklega fyrir böggun og aðra meðhöndlun. Sem dæmi: teppi, dýnur, kaðlar, net, húsgögn, jarðvegur, málmar og gifs
58
Flokkað Kr./kg
Steinefni frá framkvæmdum:
Postulín, flísar, keramik og gler
Timbur:
Hvítmálað, plasthúðað og blandað
Ólitað timbur, trjábolir og greinar (ekki hvítmálað og án aðskotahluta)
Hey, trjáafklippur, gras, hálmur og arfi
Dagblöð/tímarit
Skrifstofupappír og hvítur afskurður frá prentsmiðju
Málmar:
23

29
16
0
11
12
0
Úrgangur sem ber úrvinnslugjald: Kr./kg
Umbúðir úr sléttum pappa
Plastumbúðir
Heyrúlluplast
Bylgjupappi
Hjólbarðar
Raftæki
Spilliefni
0
35
0
0
0
0
0
Annað: Kr./kg
Smádýrahræ og sláturúrgangur (lágmark 2.000 kr. við afgreiðslu) 232
Húsdýraúrgangur 15
Ómengaður úrgangur til urðunar, t.d. jarðvegur, steinefni. 25
Jarðefni til afhendingar: Kr./kg
Mulningur 0-25 3,43
Drenmöl 10-25 4,18
N. sandur 0-8 3,16
Fjörusandur á gámasvæði 2,44
Sandur úr Eyrarbakkafjöru – afgreiddur í fjörunni 1.400 kr./m³

Lágmarkskomugjald er 600 kr.

Lágmarksgjald fyrir eðlislétt sorp (t.d. einangrunarplast) er 1.140 kr./m³.

4. gr.

Gjaldskrá þessi, sem er samin og samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar, staðfestist hér með, skv. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum og öðlast gildi þegar í stað.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu í Sveitarfélaginu Árborg, nr. 1565/2020.

Þannig samþykkt í bæjarstjórn 15. desember 2021.

Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 6. janúar 2022

Tengd mál