Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjarðabyggð

Málaflokkur

Sorphreinsun, Fjarðabyggð

Undirritunardagur

6. desember 2024

Útgáfudagur

18. desember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1536/2024

6. desember 2024

GJALDSKRÁ

fyrir meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð.

1. gr.

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar innheimtir gjöld vegna meðhöndlunar úrgangs eins og fram kemur í gjaldskrá þessari.

2. gr.

Úrgangsförgunargjald greiðist árlega. Gjald skal innheimt með fasteignagjöldum.

Árið 2025 er gjaldið 36.639 kr. vegna hverrar almennrar sorptunnu.

Úrgangshreinsunargjald þ.e. gjald vegna meðhöndlunar úrgangs, annarrar en förgunar, greiðist árlega. Gjaldið skal innheimt með fasteignagjöldum.

Árið 2025 er gjaldið 53.279 kr. fyrir hverja almenna sorptunnu. Með hverri almennri sorptunnu fylgja endurvinnslutunnur.

Óski greiðendur eftir auka tunnum, fyrir endurvinnsluúrgang (græna, brúna eða bláa tunnu) skal greiða 16.520 kr. á ári fyrir.

3. gr.

Árið 2025 greiða heimili og fyrirtæki fyrir gjaldskyldan úrgang sem skilað er á móttöku- og söfnunarstaði Fjarðabyggðar. Upplýsingar um gjaldskyldan og gjaldfrjálsan úrgang frá heimilum má finna á heimasíðu Fjarðabyggðar. Klippikort sem rúmar 2 m³ má nálgast á næstu móttökustöð eða skrifstofu Fjarðabyggðar. Verð á klippikorti til heimila er 8.000 kr.

Allur úrgangur fyrirtækja sem skilað er á móttökustöðvar er gjaldskyldur árið 2025. Greitt er með klippikorti fyrirtækja sem fæst á skrifstofu Fjarðabyggðar (klippikort@fjardabyggd.is) fyrir 32.000 kr. Hvert klippikort fyrirtækja rúmar 2 m³.

Klippikort rúma 2 m³ efnis og skiptast í 6 x 0,125 m³ einingu og 5 x 0,250 m³ einingu.

Gjöld vegna móttöku úrgangs á móttökustöðvunum eru eftirfarandi:

Fjöldi klippa
Heimiliskort Fyrirtækjakort
Gjaldfrjáls heimilisúrgangur – flokkað efni **) 0 0
Gjaldskyldur úrgangur – flokkað efni *) 1 x 1 x
Óflokkaður úrgangur 2 x 2 x

*) Asbest, einangrun, blandaður úrgangur, flísar, flugeldar, gifs, gashylki, gluggar, matarolía, hreinlætistæki, járnbundin steypa, olíumálning, rúðugler, olíusíur, malbik, brunaboðar málað timbur, ómálað timbur, urðunarefni, steypa, slökkvitæki, vörubretti, spilliefni, tjörupappír.

**) Gler, bækur, hjólbarðar, flúrperur, sólarrafhlöður, plastumbúðir, kæli- og frystitæki, úðabrúsar, frauðplast, vírar og kaplar, raftæki, glær plastfilma, dagblöð, prenthylki, ljósaperur, möl og sandur, glært gler, harðar og mjúkar plastumbúðir, rafgeymar, garðaúrgangur, litað gler, sléttur pappír, rafhlöður, pappír, sjónvörp og skjáir, hart plast, málmar, smáraftæki, vatnsmálning, skjöl, málmumbúðir, stór raftæki, stór plastfilma, bylgjupappi, postulín, úrgangsolía, trjábolir og rætur, lituð plastfilma.

4. gr.

Úrgangur skal vera flokkaður við skil á urðunarstað í samræmi við móttökuskilyrði. Viðskiptavinir greiða fyrir úrgang eftir þyngd (kr./kg) samkvæmt gjaldskrá.

Gjöld vegna móttöku og/eða meðhöndlunar úrgangs á móttökustöð í Þernunesi eru eftirfarandi:

kr./kg með vsk
Blandaður/grófur úrgangur 76
Timbur 56
Kjöt og sláturúrgangur 50
Seyra 44
Fita 44

Ef vinna þarf úrgang sérstaklega fyrir urðun er heimilt að innheimta tímagjald skv. gjaldskrá.

Aðeins fyrirtækjum með starfsleyfi til að flytja úrgang er heimilt að koma með úrgang beint í móttökustöðina í Þernunesi. Öll losun skal fara fram í samráði við rekstraraðila, Fjarðabyggð.

5. gr.

Gjalddagar gjalda skv. 2. gr. fylgja reglum um gjalddaga fasteignagjalda og er skipt jafnt niður á þá. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Gjalddagi gjalda skv. 3., 4. og 5. gr. er 1. hvers mánaðar og eindagi 15 dögum síðar.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

6. gr.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af bæjarstjórn Fjarðabyggðar með stoð í samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð nr. 247/2011, sbr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum. Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2025. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1436/2023.

Fjarðabyggð, 6. desember 2024.

Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 18. desember 2024

Tengd mál