Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Opinber innkaup - framkvæmdir
Undirritunardagur
28. maí 2014
Útgáfudagur
5. júní 2014
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 65/2014
28. maí 2014
LÖG
um breytingu á lögum nr. 84/2007, um opinber innkaup (innkaup á sviði öryggis- og varnarmála).
FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
5. gr. laganna orðast svo:
Með fyrirvara um ákvæði 9. gr. gilda ákvæði XIV. og XV. kafla um innkaup á sviði varnar- og öryggismála sem falla undir gildissvið tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/81/EB frá 13. júlí 2009 um samræmingu reglna um útboð og gerð samningsyfirvalda eða samningsstofnana á tilteknum verksamningum, vörusamningum og þjónustusamningum á sviði varnar- og öryggismála, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 129/2013. Að öðru leyti taka lögin ekki til slíkra innkaupa.
Ráðherra skal í reglugerð mæla fyrir um innkaup á sviði varnar- og öryggismála sem falla undir gildissvið tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/81/EB, til samræmis við skuldbindingar íslenska ríkisins á sviði opinberra innkaupa samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og öðrum milliríkjasamningum. Í reglugerð skal jafnframt kveðið nánar á um réttarúrræði vegna slíkra innkaupa.
2. gr.
Á eftir orðinu „póstþjónustu“ í 2. mgr. 91. gr. laganna kemur: tilskipunar 2009/81/EB um samræmingu reglna um útboð og gerð samningsyfirvalda eða samningsstofnana á tilteknum verksamningum, vörusamningum og þjónustusamningum á sviði varnar- og öryggismála.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 102. gr. laganna:
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Innleidd er tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/81/EB um samræmingu reglna um útboð og gerð samningsyfirvalda eða samningsstofnana á tilteknum verksamningum, vörusamningum og þjónustusamningum á sviði varnar- og öryggismála og um breytingu á tilskipunum 2004/17/EB og 2004/18/EB, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 129/2013 frá 14. júní 2013. - Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Innleiðing.
4. gr.
Við lögin bætist nýtt fylgiskjal, II, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:Breyting á tilskipun 2004/18/EB.
Í stað 10. gr. tilskipunar 2004/18/EB komi eftirfarandi:
10. gr. Samningar á sviði varnar- og öryggismála
Með fyrirvara um [123. gr. EES-samningsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2006] gildir þessi tilskipun um opinbera samninga, sem gerðir eru á sviði varnar- og öryggismála, að undanskildum samningum sem tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/81/EB frá 13. júlí 2009 um samræmingu reglna um útboð og gerð samningsyfirvalda eða samningsstofnana á tilteknum verksamningum, vörusamningum og þjónustusamningum á sviði varnar- og öryggismála gildir um.
Þessi tilskipun gildir ekki um samninga sem tilskipun 2009/81/EB gildir um skv. 8., 12. og 13. gr. hennar.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Gjört á Bessastöðum, 28. maí 2014.
Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)
Bjarni Benediktsson.