Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
11. nóvember 2019
Útgáfudagur
27. nóvember 2019
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1031/2019
11. nóvember 2019
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 75. gr. reglnanna:
- 2. og 3. málsl. 1. mgr. orðast svo: Rannsóknasjóður Háskóla Íslands skiptist í Verkefnasjóð og Doktorsstyrkjasjóð. Verkefnasjóður veitir styrki til rannsóknarverkefna akademískra starfsmanna og Doktorsstyrkjasjóður styrki til framfærslu doktorsnema.
- Á eftir 1. málsl. 1. mgr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Um Doktorsstyrkjasjóð Háskóla Íslands gilda sérstakar reglur.
-
3.
mgr.
orðast
svo:
Stjórn Rannsóknasjóðs er skipuð formönnum fimm sjálfstæðra fagráða, einu fyrir hvert fræðasvið. Rektor skipar fagráðin, sem í sitja fjórir til fimm sérfræðingar og þar af skal einn vera í meginstarfi utan háskólans. Rektor skipar formann fyrir hvert fagráð og formann stjórnar Rannsóknasjóðs, sem ekki á sæti í fagráðum. Hlutverk fagráða er að annast faglegt mat og forgangsröðun umsókna í Rannsóknasjóð Háskóla Íslands vegna verkefnastyrkja og doktorsstyrkja. Formenn fagráða halda reglulega samráðsfundi meðan á mati umsókna stendur. Faglegt mat skal byggjast á viðmiðum sem vísindanefnd háskólaráðs setur. Verkefnisstjóri á vísinda- og nýsköpunarsviði háskólans starfar með stjórn sjóðsins og fagráðum. - Á eftir 2. málsl. 4. mgr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Ákvarðanir stjórnar Rannsóknasjóðs um styrkveitingar eru endanlegar á stjórnsýslustigi.
-
7.
mgr.
orðast
svo:
Vísindanefnd háskólaráðs ákveður styrkupphæð, skiptingu fjár á milli Verkefnasjóðs og Doktorsstyrkjasjóðs og setur stjórn Rannsóknasjóðs og fagráðum viðmið um úthlutun. - Í stað orðsins „sjóðnum“ í lok 1. málsl. 8. mgr. kemur: sjóðunum.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 11. nóvember 2019.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 27. nóvember 2019