Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

7. febrúar 2022

Útgáfudagur

21. febrúar 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 206/2022

7. febrúar 2022

AUGLÝSING

um álagningu opinberra gjalda á árinu 2022.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 31. maí 2022 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga. Álagningu lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 31. október 2022. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 7. febrúar 2022.

F. h. fjármála- og efnahagsráðherra,

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 21. febrúar 2022

Tengd mál