Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Borgarbyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Borgarbyggð
Undirritunardagur
18. mars 2026
Útgáfudagur
1. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 327/2026
18. mars 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Borgarbyggð.
Húsafell 3, verslunar- og þjónustulóð við Kaldadalsveg, óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti óverulega breytingu á deiliskipulagi í landi Húsafells 3 á fundi sínum 12. febrrúar 2026. Breytingin tekur til stækkunar á skipulagssvæði úr 1,5 ha í 4,8 ha og liggja mörk skipulagssvæðisins meðfram Kaldadalsvegi eftir stækkun og til suðurs að birkikjarri sem er hverfisverndað. Bætt er við lóð milli núverandi lóðar og Kaldadalsvegar þar sem gert er ráð fyrir fjórum geymsluhúsum. Aðkoma að núverandi lóð er færð til austurs um 180 m til samræmis við núverandi staðsetningu og verður vegtenging að nýrri lóð frá þeim vegi. Tillagan samræmist gildandi aðalskipulagi.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Borgarbyggð, 18. mars 2026.
Ásgerður Hafsteinsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild — Útgáfudagur: 1. apríl 2026